Fréttablaðið - 06.10.2015, Síða 13
Gamall og góður nemandi minn úr Menntaskólanum í Reykja-vík fyrir hartnær hálfri öld, Jón
Steinar Gunnlaugsson, lögmaður og
fyrrum dómari við Hæstarétt Íslands,
skrifar grein í Morgunblaðið 28. f.m.
um, hvernig nú skuli skipa í Hæsta-
rétt. Telur Jón Steinar marga álíta „að
þar ættu helst að sitja dómarar sem
talist gætu einhvers konar „þverskurð-
ur“ af fólkinu í landinu! Í öllu talinu
felst einhvers konar grundvallarmis-
skilningur á starfsemi dómstóla.“
Réttarfar í landinu er of mikils-
verður þáttur nútímalýðræðis, þar
sem gilda skal jafnrétti og jafnræði á
öllum sviðum, til þess að lögfræðing-
ar, lögmenn og hæstaréttardómarar
fjalli einir um það mál. Af þeim sökum
leyfi ég mér sem gamall kennari að
leggja orð í belg.
Andstætt því sem Jón Steinar álítur
grundvallarmisskilning – að krefjast
þess að í Hæstarétti sitji „dómarar
sem talist gætu einhvers konar „þver-
skurður“ af fólkinu í landinu“, tel ég
að einmitt þannig ætti það að vera,
þ.e.a.s. að í Hæstarétti sitji karlar og
konur, afkomendur iðnaðarmanna,
verkamanna og sjómanna – og sól-
baðstofunuddara, en ekki aðeins
nemendur Menntaskólans í Reykja-
vík úr fyrstu stétt, aldir upp í Vestur-
bænum eða Hlíðunum.
Jón Steinar segir, að dómstólar
eigi að leysa úr réttarágreiningi milli
manna og beri að dæma einungis
eftir lögum [nema hvað], enda sé það
í reynd forsenda fyrir starfi dómstóla
„að hin lagalega rétta niðurstaða sé
aðeins ein“. Þar fór hins vegar í verra,
Jón Steinar, vegna þess sem þú bendir
réttilega á, að oft þarf „á mikilli hæfni
að halda því leitin er stundum ekki
einföld og menn kann að greina á um
niðurstöður hennar“. Þetta er merg-
urinn málsins: „Allt orkar tvímælis
þá gert er“, eins og haft er eftir lög-
vitringnum Njáli á Bergþórshvoli. Auk
þess sjá augu betur en auga. Auk þess
þarf að taka tillit til ólíkra viðhorfa
þegar leyst er úr ágreiningi manna. Og
þótt ekki væri nema af þeim sökum
eiga í Hæstarétti að sitja dómarar
sem talist gætu einhvers konar þver-
skurður af fólkinu í landinu.
Kynferði dómara skiptir máli
Jón Steinar segir að í „hópi þeirra
sem kallast mega [takið eftir orða-
laginu: kallast mega] lögfræðingar
er margur misjafn sauðurinn. Við
viljum ekki að aðrir en þeir hæfustu
fái í hendur völd til að kveða upp
dóma í málefnum fólksins í landinu.
… Í því efni skiptir kynferði dómara
engu máli.“
Öllum mun ljóst vera, að í „hópi
þeirra sem kallast mega lögfræðingar
er margur misjafn sauðurinn“ og af
þeim sökum „viljum við“ að þeir
hæfustu fái í hendur það mikilsverða
þjónustuhlutverk – ekki völd – að
kveða upp dóma í málefnum fólks-
ins í landinu. En í því efni skiptir
kynferði dómara máli. Konur og
karlar hafa nefnilega ólík viðhorf
vegna kynferðis síns.
Krafa nútíma lýðræðis á Vestur-
löndum er að konur komi alls staðar
að málum þar sem velferð okkar og
örlög eru ráðin. Og meðan sjónarmið
á borð við skoðanir Jóns Steinars eru
enn við lýði að bera saman „lækna,
iðnaðarmenn, verkamenn, veitinga-
menn og sólbaðstofunuddara“ ann-
ars vegar og konur hins vegar, er eina
leiðin að alls staðar þar sem velferð
okkar og örlög eru ráðin sé viðhafður
kynjakvóti – og þá meðal annars og
ekki síst í Hæstarétti Íslendinga. Nóg
er til af hæfum konum í hópi þeirra
sem kallast mega lögfræðingar.
Konur og aðrir sólbaðstofunuddarar
Tryggvi Gíslason
fv. skólameistari
MA
Auk þess þarf að taka tillit til
ólíkra viðhorfa þegar leyst
er úr ágreiningi manna. Og
þótt ekki væri nema af þeim
sökum eiga í Hæstarétti að
sitja dómarar sem talist gætu
einhvers konar þverskurður
af fólkinu í landinu.
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
Með fulla stjórn í
eldhúsinu
Nýir Bosch bakstursofnar, Serie 8.
Bosch-gæði í hverju smáatriði.
Bosch kynnir til sögunnar nýja, glæsilega ofna með háþróuðum
skynjurum og fleiri byltingarkenndum nýjungum.
Nýju skynjararnir gefa frábæra niðurstöðu, hvort sem er verið
að elda lax, kalkúna eða baka bollakökur. Þetta er framtíðin í
steikingu og bakstri. Allir nýju ofnarnir geta gengið saman hver
með öðrum og myndað samstæða heild.
Kynntu þér málið nánar hjá sölumönnum okkar.
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 13Þ R i ð J u D A G u R 6 . o k T ó B e R 2 0 1 5
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:3
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
2
-5
3
C
0
1
6
C
2
-5
2
8
4
1
6
C
2
-5
1
4
8
1
6
C
2
-5
0
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
5
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K