Fréttablaðið - 06.10.2015, Side 14

Fréttablaðið - 06.10.2015, Side 14
Nýjast 6 . o k t ó b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U D A G U r14 s p o r t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð sport 91 61 57 49 7876 85 103 ✿ Fjöldi marka erlendra leikmanna í úrvalsdeild karla í fótbolta undanfarin ár FótboLtI Skagamaðurinn Garðar Gunnlaugsson kom um helgina í veg fyrir að erlendir leikmenn tækju alla markaskóna í fyrsta sinn í efstu deild karla á Íslandi en það breytti ekki því að sumarið 2015 er metár í mörkum erlendra leik- manna í úrvalsdeildinni. Alls skoruðu erlendir leikmenn liðanna 103 mörk í leikjunum 132 og er þetta í fyrsta sinn sem þeir rjúfa hundrað marka múrinn á einu tímabili í úrvalsdeild karla. Gamla markametið var frá sumrinu 2008, síðasta tímabilinu fyrir hrun, en erlendir leikmenn skoruðu sam- anlagt 91 mark það sumar. Fleiri erlend mörk á hverju ári Erlendir leikmenn hafa verið meira áberandi með hverju tímabilinu undanfarin ár og var þetta fjórða sumarið í röð þar sem mörkum erlendra leikmanna fjölgar í deildinni. Sumarið 2011 skoruðu íslenskir leikmenn Pepsi-deildar- innar 88 prósent markanna en sú tala var komin niður í 73 prósent í sumar. Hér munar vissulega mikið um það að marksæknustu leikmenn deildarinnar eru að koma að utan. Annað árið í röð voru erlendir leik- Yfir hundrað mörk í fyrsta sinn Það voru danskir dagar í Pepsi-deildinni í sumar en aldrei hafa leikmenn frá einni erlendri þjóð skorað svo mikið á einu tímabili í efstu deild á Íslandi. Erlendir leikmenn skoruðu samanlagt 27 prósent markanna. menn tveir markahæstu leikmenn Pepsi-deildarinnar. Í fyrra voru það Englendingurinn Gary Martin og Trínidad-búinn Jonathan Glenn og í ár varð Glenn aftur að sætta sig við silfurskóinn en Daninn Patrick Pedersen tók gullskóinn. Fyrsti Daninn með gullskó Pedersen er fyrsti Daninn sem fær gullskóinn hér á landi en ekki sá fyrsti sem verður markakóngur. Þróttarinn Sören Hermansen var einn af þremur markakóngum deildarinnar sumarið 2003 en missti þá gullskóinn til liðsfélaga síns Björgólfs Takefusa á fleiri leikjum spiluðum. Danskir leikmenn Pepsi-deild- arinnar skoruðu samanlagt 36 mörk í sumar og bættu tuttugu ára met Júgóslava um átta mörk. Pedersen og Jeppe Hansen (8 mörk) voru markahæstir þeirra en Kennie Knak Chopart (6 mörk í 11 leikjum) átti frábæra innkomu í lið Fjölnis, Rolf Toft skoraði fjögur mörk fyrir Víkinga alveg eins og Sören Frederiksen gerði fyrir KR. Jacob Schoop var sjötti Daninn sem skoraði í Pepsi-deildinni í sumar en markið hans kom strax í fyrsta leik. Metið hafði staðið frá 1995 Júgóslavarnir sumarið 1995 voru sex saman með 28 mörk fyrir sín lið. Mihajlo Bibercic skoraði þrettán mörk og var markahæstur erlendu leikmannanna en næstur honum var Keflvíkingurinn Marko Tanasic með fimm mörk. Mihajlo Bibercic hafði ári fyrr orðið fyrsti erlendi leikmaðurinn til að verða markakóngur þegar hann skoraði fjórtán mörk fyrir Skagamenn. Þetta sumar 1995 var líka í fyrsta sinn sem erlendu mörkin náðu 50 en það met stóð til ársins 2008 þrátt fyrir að litlu hafi munað bæði 2003 (48) og 2005 (49). Nú er að sjá hvort þessi þróun haldi áfram næsta sumar og hvort enn meiri ábyrgð í markaskorun færist þá yfir á herðar erlendra leikmanna sem munu lífga upp á Pepsi-deildina 2016. ooj@frettabladid.is tvö búin að skipta um kana Tvö lið í Domino’s-deild karla í körfubolta eru búin að skipta um bandarískan leikmann þótt tíma- bilið sé ekki enn hafið. Njarðvíkingar fengu Marqiuse Simmons í stað Stefans Bonneau sem sleit hásin eins og talsvert hefur verið fjallað um. Silfurliðið frá því í fyrra, Tinda- stóll, hefur einnig ákveðið að skipta um Kana. Stólarnir leystu Darren Townes undan samningi og fengu Jerome Hill í staðinn. Hann er 1,96 metra hár framherji sem lék með Gardner-Webb háskólanum. snýr bjarni aftur til eyja? Bjarni Jóhannsson er einn þeirra sem koma til greina sem næsti þjálfari ÍBV. Þetta staðfesti Ingi Sigurðsson, gjaldkeri knattspyrnudeildar ÍBV, í samtali við Fréttablaðið í gær. Eyja- menn eru í þjálfaraleit enn eitt árið en frá því að Heimir Hallgrímsson hætti sem þjálfari ÍBV 2011 hefur enginn þjálfari enst lengur en eitt tímabil hjá félaginu. Bjarni þekkir vel til í Eyjum en hann stýrði ÍBV 1997-99 og gerði liðið tvívegis að Íslandsmeisturum og einu sinni að bikarmeisturum. Bjarni var síðast við stjórnvölinn hjá KA en hann er einn reyndasti þjálfari landsins. Jæja, nú eru Liverpool- menn farnir að gera Klopp að óþolandi fígúru. synd og skömm, kunni alltaf vel við hann. Tryggvi Páll Tryggvason @tryggvipall 2015 - 36 1995 - 28 2012 - 27 2012 - 26 2003 - 24 2013 - 23 1994 - 22 2005 - 22 2014 - 21 2013 - 21 2014 - 19 Flest mörk á einu tímabili: 20152008 þriðja liðið á einu ári Ásmundur Arnarsson skrifaði í gær undir þriggja ára samning við 1. deildarlið Fram. Hann tekur við starfinu af Pétri Péturssyni. Fram er þriðja liðið sem Ásmundur stýrir á þessu ári en hann var þjálfari Fylkis áður en honum var sagt upp störfum um mitt sumar. Þá tók hann við ÍBV og tókst að bjarga liðinu frá falli. Ásmundar, sem lék áður með Fram, bíður erfitt verkefni en Fram rétt slapp við fall í 2. deild í sumar. 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 6 C 2 -7 6 5 0 1 6 C 2 -7 5 1 4 1 6 C 2 -7 3 D 8 1 6 C 2 -7 2 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 5 1 0 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.