Fréttablaðið - 06.10.2015, Page 19

Fréttablaðið - 06.10.2015, Page 19
Bílar BETRA START MEÐ EXIDE RAFGEYMUM Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir mótorhjóla. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda. PI PA R\ TB W A • SÍ A • 13 18 58 Exide rafgeymarnir fást hjá: Volvo XC90 B andalag íslenskra bílablaðamanna lýsti kjöri á bíl árs­ ins í síðustu viku og var það Volvo XC90 jeppinn sem kjörinn var þetta árið. Í öðru sæti varð Volks­ wagen Golf GTE og í þriðja sæti Audi Q7 jeppinn. Við val á bíl ársins í ár voru 30 bílar gjaldgengir, sem er ekki ósvip­ uð tala og á síðustu árum en aðeins eru gjaldgengar nýjar bílgerðir eða nýjar kynslóðir eldri bílgerða. Flokkum fjölgað vegna grænna bíla og jepplinga Dómnefndin ákvað vegna samsetningar bílanna þetta árið að skipta þeim upp í 5 flokka, minni fólksbíla, stærri fólksbíla, jepplinga, jeppa og umhverfisvæna bíla. Bæði fer jepplingum og græn­ um bílum svo ört fjölgandi að þeir voru nú í sérstökum flokki og ekki kæmi á óvart að þessi flokkun muni hald­ ast á næstu árum. Fimm dóm­ nefndarmanna prófuðu alla bílana sem til greina komu og völdu þá 3 bíla sem komust í úrslit í hverjum flokki, alls 15 bíla. Lokaprófanir fóru fram á þessum bílum með fullskip­ aðri dómnefnd snemma í síð­ asta mánuði og var það gert á stórbættri Kvartmílubraut­ inni. Öllum bílunum var í kjöl­ far prófananna gefin einkunn hvað 12 mismunandi þætti þeirra varðar og heildarniður­ staða í hverjum flokki þann­ ig fengin út, svo og hvaða bíll fékk hæsta samanlagða ein­ kunn og er því réttkjörinn Bíll ársins í ár. Citroën C4 Cactus, VW Passat og Mazda CX-3 flokkasigurvegarar Í flokki minni fólksbíla varð Citroën C4 Cactus efstur, Mazda2 rétt þar á eftir í öðru sæti og Skoda Fabia í þriðja sæti. Í flokki stærri fólks­ bíla varð Volkswagen Passat hlutskarpastur, Skoda Superb í öðru sæti og Ford Mondeo í því þriðja. Þess má geta að Volkswagen Passat varð í fjórða sæti í heildinni. Í flokki jepp­ linga trónaði Mazda CX­3 hæst, Renault Kadjar varð í öðru sæti og Nissan X­Trail í því þriðja. Volkswagen Golf GTE sigurvegari í flokki umhverfisvænna bíla Í flokki jeppa varð Volvo XC90 efstur á blaði, sem og hæstur allra bíla að stigum. Í öðru sæti var Audi Q7, sem og í þriðja sæti í heildina, en í þriðja sæti í flokkn­ um var svo Land Rover Discovery Sport. Í flokki umhverfisvænna bíla endaði efstur á blaði Volks­ wagen Golf GTE tvinnbíllinn og varð hann einnig annar í heildina. Í öðru sæti í flokknum varð Tesla Model S og í þriðja sæti Volks­ wagen e­Golf, sem líkt og Teslan er hreinræktaður rafmagnsbíll. Bíll ársins er VolVo XC90  Citroën C4 Cactus, VW Passat, Mazda CX-3 og Volkswagen Golf GTE eru sigurvegarar í sínum flokkum. ÞrIÐJUDaGUr 6. okTóBEr 2015 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 C 3 -A 3 8 0 1 6 C 3 -A 2 4 4 1 6 C 3 -A 1 0 8 1 6 C 3 -9 F C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 5 1 0 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.