Fréttablaðið - 06.10.2015, Page 44

Fréttablaðið - 06.10.2015, Page 44
Breska sálar- og popphljómsveitin Simply Red sækir Ísland heim í annað sinn þann 31. maí næstkom- andi og spilar á tónleikum í Laugar- dalshöll. Sveitin spilaði hér á landi þann 16. júní árið 1986 ásamt hljómsveit- inni Lloyd Cole & the Commotions á fyrra kvöldi Listapopps á Listahá- tíð en seinna kvöldið tróðu hljóm- sveitirnar Madness og Fine Young Cannibals upp. „Ég sá þá fyrir 30 árum í Laugar- dalshöll, þá voru þeir rétt að byrja feril sinn og það er gaman að geta séð þá þrjátíu árum síðar á sama stað eftir allar þessar plötur og smelli sem þeir hafa gefið út,“ segir Guðbjartur Finnbjörnsson, sem flyt- ur sveitina inn til landsins, glaður í bragði. „Þeir eru á stórum þrjátíu ára afmælistúr núna sem heitir Big Love. Hann hefst í Evrópu núna síðar í október og  sveitin  spilar meðal annars í Þýskalandi, Frakk- landi, Hollandi, Danmörku og það er allt meira og minna uppselt. Sveitin á dyggan aðdáendahóp og flott lög sem allir þekkja,“ segir Guðbjartur og bætir við: „Sem dæmi spilar sveitin í O2-höllinni í London í desember þrjú kvöld í röð og það er allt orðið uppselt þar þannig að það eru 60.000 manns að fara að sjá hana þar.“ Árið 2010 fór hljómsveit- in í pásu en ákvað að fagna þrjátíu ára afmæli sínu með stæl og halda í tónleikaferð. Guðbjartur segir sitt uppáhalds- lag með hljómsveitinni vera Hold- ing Back the Years sem finna má á fyrstu breiðskífu sveitarinnar, Pict- ure Book, sem kom út árið 1985. Lagið náði fyrsta sæti á Billbord Hot 100 listanum og varð númer tvö á UK Singles Chart sama ár og er annað lag sveitarinnar sem náði sæti númer eitt í Bandaríkjunum en lagið samdi söngvari og aðal sprauta sveitarinnar, Mick Hucknall, þegar hann var sautján ára gamall. Hljómsveitin var upphaflega nefnd Red sem vísun í gælunafn söngvarans en hann skartaði áber- andi rauðum lokkum en nafninu var breytt í Simply Red þegar hljóm- sveitin spilaði á tónleikastað í upp- hafi ferilsins og umboðsmaður staðarins átti í erfiðleikum með að ná utan um nafn sveitarinnar. Þá svaraði Hucknall að nafnið væri „Red, simply R e d “ . E i n hve r s m i s - skilnings varð vart og var nafnið Simply Red prentað á auglýsingaplaköt fyrir tónleikana og festist í kjölfarið við sveitina. Hljómsveitin hefur á starfsævi sinni gefið út ellefu breiðskífur og selt yfir fimmtíu millj- ónir eintaka af plötum en meðal helstu smella hennar er til að mynda ábreiða af laginu If You Don’t Know Me by Now. Mannaskipan hljómsveitarinnar hefur breyst talsvert á síðustu þrjá- tíu árum en forsprakki og söngvari sveitarinnar er eini upphaflegi meðlimur hennar. Auk söngvarans verður átta manna hljómsveit á sviðinu og meðal þeirra er hljómborðsleikarinn Ian Kirkham sem spilað hefur með sveitinni síðan árið 1986. Aðspurður segist Guðbjartur sjálfur þrælspenntur fyrir tónleikunum og lofar að sveitin taki alla sína helstu smelli og fleiri til á tónleikunum en miðasala hefst klukkan 10.00 þann 13. október á midi.is. gydaloa@frettabladid.is l Hljómsveitin á rætur að rekja til borgarinnar Manchester á Englandi og var formlega stofnuð 1985. l Simply Red var stofnuð af Mick Hucknall og umboðsmanninum Elliot Rashman og er nafnið Red vísun í hárlit söngvarans. l Upprunalegir meðlimir voru auk Hucknalls þeir David Fryman, Tony Bowers, Fritz McIntyre, Tim Kellett og Chris Joyce, en Hucknall er nú eini upp- runalegi meðlimur sveitarinnar. l Sama ár kom fyrsta breiðskífa sveitar- innar út, Picture Book, en á henni má finna helsta smell sveitarinnar Holding Back the Years. l Lagið er vinsælasta lag sveitarinnar og náði fyrsta sæti á Billboard Hot 100 listanum en söngvarinn og aðalsprauta sveitarinnar, Mick Hucknall, samdi lagið þegar hann var sautján ára gamall. l Móðir Hucknalls yfirgaf hann og föður hans þegar Hucknall var þriggja ára gamall og segir hann þann atburð hafa veitt sé innblástur þegar hann samdi lagið. l Simply Red hefur gefið út ellefu breið- skífur, þá síðustu, Big Love, þann 29. maí á þessu ári. l Sveitin hefur selt yfir 50 milljónir ein- taka af plötum sínum. l Í byrjun nóvember árið 2014 tilkynnti hljómsveitin að hún myndi halda í afmælistónleikaferð undir yfirskriftinni Big Love og mun sveitin koma fram víða í Evrópu, Ástralíu og Suður-Ameríku en Simply Red spiluðu í Laugardalshöll þann 16. júní árið 1986. l Vinsælustu lög Simply Red eru, auk Holding Back the Years, A New Flame, It's Only Love, If You Don't Know Me By Now, For Your Babies, Stars, Money's Too Tight (to Mention), Fairground og Something Got Me Started. Hljómsveitin Simply Red treður upp í annað sinn í Laugardalshöll Sveitin Simply Red hefur verið starfandi frá árinu 1985 og spilaði í Laugardalshöllinni fyrir rúmum þrjátíu árum. Pönnusteiktur þorskur 900 g þorskur 5 kúfaðar matskeiðar af hveiti 2 egg 150 g brauðrasp 1-2 pressuð hvítlauksrif Nokkrir stönglar af fersku rós- maríni Sítróna, skorin í báta Sætir kartöflubátar 2 stórar eða 4-5 litlar sætar kartöflur 1-1,5 tsk. reykt paprika Salt Pipar Ólífuolía Basilíkumajónes 4 basilíkustönglar Sjávarsalt 2 msk. majónes Safi úr ½ sítrónu Aðferð: Hitið ofninn í 200°C. Afhýðið sætu kartöflurnar og skerið á lengdina í 8 báta. Leggið bátana í eldfast mót og veltið þeim upp úr ólífuolíu og kryddum. Bakið í ofni í 35-40 mínútur. Takið fram þrjár skálar. Setjið hveiti í fyrstu skálina og kryddið með salti og pipar. Hrærið eggin og setjið í aðra skálina. Setjið brauðrasp í þriðju skálina. Veltið þorskbitunum fyrst upp úr hveitiblöndunni, síðan hrærðu eggjunum og að lokum brauðra- spinu. Hitið ólífuolíuna við miðlungs- hita á pönnu og bætið hvít- lauknum og rósmaríngreinunum í olíuna. Þetta er gert til að bragð- bæta olíuna. Þegar hvítlaukurinn byrjar að krauma er þorsknum bætt á pönnuna. Steikið þorskinn í nokkrar mínútur á hvorri hlið, þar til hann fær fallegan lit. Maukið basilíkulaufin í mortéli ásamt sjávarsaltinu. Bætið majónesi og sítrónusafa út í og blandið vel. Uppskrift fengin af Ljufmeti.com. Mynd af Simply Red frá árinu 1987. Pönnusteiktur þorskur með basilíkumajónesi Hucknall er þekktur fyrir rauða hárið en nafn sveitarinnar er vísun í gælunafn sögn- varans. 6 . o k t ó b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U D A G U r24 L í f I Ð ∙ f r É t t A b L A Ð I Ð Lífið 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :3 1 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 C 3 -3 1 F 0 1 6 C 3 -3 0 B 4 1 6 C 3 -2 F 7 8 1 6 C 3 -2 E 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 5 1 0 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.