Fréttablaðið - 13.10.2015, Blaðsíða 22
www.n1.is facebook.com/enneinn
Michelin er dekkið í vetur
Hljóðlát gæði
Michelin X-Ice
vetrardekk með
góðu gripi.
Góð ending
Michelin X-Ice North
er öruggt á ísnum
og traust vetrardekk.
Öruggt grip
Michelin Alpin A5
er naglalaust og endist
þér aukavetur.
Hjólbarðaþjónusta N1
Bíldshöfða 440-1318
Fellsmúla 440-1322
Réttarhálsi 440-1326
Ægisíðu 440-1320
Langatanga Mosfellsbæ 440-1378
Reykjavíkurvegi Hafnarfirði 440-1374
Grænásbraut Reykjanesbæ 440-1372
Dalbraut Akranesi 440-1394
Opið
mán –fös kl. 08-18
laugardaga kl. 09-13
www.dekk.is
2015
Vetrardekk 13. október 2015 ÞrIÐJUDAGUr2
Stærstur hluti allra hjólbarða sem fellur til sem úrgang-ur á Íslandi er endurnotað-
ur sem byggingarefni á urðun-
arstað Sorpu í Álfsnesi. Kurluð
dekkin eru notuð í drenlag fyrir
vatn eða þekjuefni í tengslum við
rásir vegna gassöfnunar.
„Hringrás tekur á móti og
safnar dekkjum til endurvinnslu.
Hjá okkur eru dekkin tætt niður
í gróft kurl í samræmi við kröf-
ur Sorpu og þeim er svo ekið á
urðunarstað Sorpu í Álfsnesi. Til
þess að tæta dekkin eru notað-
ir stórtækir tætarar en dekk eru
eitt erfiðasta efnið að tæta vegna
þess hve seigt er í þeim og vegna
dekkjavírsins sem er gríðarlega
harður,“ segir Ásmundur Einars-
son, umhverfis- og gæðastjóri hjá
Hringrás.
Samkvæmt Ásmundi þá skila
flest dekkjaverkstæði höfuðborg-
arsvæðisins, Gámaþjónustan og
mörg sveitarfélög ónýtum dekkj-
um til Hringrásar en Hringrás
býður upp á gáma og akstur fyrir
fyrirtæki sem eru stórtæk í söfn-
un dekkja eins og stór dekkja-
verkstæði.
Dekkjum má skila af sér end-
urgjaldslaust þar sem úrvinnslu-
gjald er lagt á hjólbarða sem
fluttir eru til landsins hvort sem
þeir eru nýir eða sólaðir, stak-
ir eða sem hluti af ökutækj-
um. Þetta kemur fram á vef Úr-
vinnslusjóðs. Úrvinnslugjaldið
er notað til að greiða fyrir með-
höndlun hjólbarða, förgun eða
endurnýtingu eftir að notkun á
þeim lýkur. Einstaklingar og fyr-
irtæki geta því skilað hjólbörð-
um til móttöku- eða söfnunar-
stöðva án þess að greiða sérstakt
gjald fyrir meðhöndlun og förg-
un þeirra.
Aðrar endurvinnsluleiðir
Nokkrar leiðir hafa verið farn-
ar hér á landi á undanförn-
um árum til að endurnýta
hjólbarða. Meðal annars hafa
hafnir landsins endurnýtt þá
sem árekstrarvarnir á bryggj-
ur. Kalka, Sorpeyðingarstöð
Suðurnesja, notar hjólbarða
sem eldsneyti í brennslu, það
er nýtir þá sem orku. Gúmmí-
vinnslan endurvinnur dekk
þannig að bæði eru framleidd-
ir sólaðir hjólbarðar undir stór-
ar bifreiðar og einnig er kurlið
sem fellur til við þá framleiðslu
notað í að búa til gúmmímott-
ur og íhluti í veiðarfæri ásamt
fleiru.
„Hringrás framleiddi í nokk-
ur ár hreint dekkjakurl sem
notað var meðal annars í
nokkrar litlar reiðhallir hér á
landi sem undirlag. Mest allt
kurlið var þó selt til Englands
þar sem kurlið var litað með
hreinu náttúrulegu gúmmíi og
notað meðal annars sem leik-
vallamöl,“ segir Ásmundur.
Sú endurnotkun á dekkj-
um sem kannski er þekktust
er að nota fíntætt dekkjakurl
á gervigrasvelli. Allt það efni
sem notað er þannig er innflutt
efni. Hlaupabrautir eða svo-
kallað tartan er einnig búið til
úr dekkjakurli sem og gúmmí-
yfirborð leikvalla og sundlauga.
Endurvinnsla um víða veröld
Um víða veröld reyna menn að
finna góðar endurvinnsluað-
ferðir fyrir hjólbarða. Nefna má
tilraunir til að „bræða“ dekkin
niður og vinna járn, olíu, gas og
kolefni úr þeim. Sú aðferð kall-
ast á ensku pyrolysis.
Í Bandaríkjunum er dekkja-
kurl notað sem byggingarefni
í vegaframkvæmdum á ýmsan
hátt; allt frá því að byggja vegi
upp með dekkjakurli yfir í að
blanda gúmmíinu í malbik. Þá
er vel þekkt að nota gúmmí úr
hjólbörðum í stað kola í orku-
verum, stálframleiðslu og sem-
entframleiðslu.
Kurluð dekkin urðuð
Skylt er að skila notuðum dekkjum til endurvinnslu. Stærstur hluti þeirra er endurnotaður sem byggingarefni á urðunarstað.
Hjá Hringrás eru dekkin tætt niður í gróft kurl í samræmi við kröfur Sorpu og þeim svo
ekið á urðunarstað Sorpu í Álfsnesi. MyNDir/ANToN BriNK
Nokkrar leiðir hafa verið farnar hér á landi
til að endurnýta hjólbarða.
Ásmundur
Einarsson
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
6
C
0
-6
1
1
0
1
6
C
0
-5
F
D
4
1
6
C
0
-5
E
9
8
1
6
C
0
-5
D
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K