Fréttablaðið - 13.10.2015, Blaðsíða 44
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir svansi@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Jónatan Atli Sveinsson jonatan@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Dikta
páll Óskar
úLFUR úLFUR
GLOWIE
fylgstu með á
FM957 og þú gætir
nælt þér í miÐa
15. október KL. 20:30hlégarðimosfellsbæ
„Ég hef alltaf sagt sögur, bæði í sam-
bandi við Skálmaldarplöturnar,
skrifað leikrit og hitt og þetta. Ætli
ég hafi ekki alltaf haft þetta svo
á bak við eyrað, en ferlið óx mér í
augum. Það þarf rosalega mörg orð í
eina bók,“ segir Snæbjörn, sem oftar
en ekki gengur undir nafninu Bibbi.
„Svo fór ég á túr með Skálmöld og
bloggaði á meðan. Einhvern veginn
hrönnuðust orðin upp og dag-
lega voru komin um þúsund orð,“
útskýrir Bibbi og segir að þá hafi
runnið upp fyrir honum að líklega
gæti hann alveg splæst í eina skáld-
sögu eða svo.
Segir sagan Gerill frá Arngrími
Sævari Eggertssyni, sem langar til
að meika það í tónlistinni. Það
ætlar kauði sér að gera með tveimur
mögnurum og óbilandi sjálfstrausti.
Aðspurður hvort þetta sé sjálfsævi-
saga með skáldlegu ívafi segir Bibbi
svo ekki vera, þótt sannarlega megi
sjá þar einhver líkindi. „Stundum
stendur maður sig að verki, þegar
maður er að spila sig stóran og töff.
Ég hef gert það að gamni
mínu að halda utan um
aðstæður þar sem ég
hef hagað mér kjána-
lega og verið bein-
línis hallærislegur í
aðstæðum þar sem
ég taldi mig frekar
töff. Ég nota þann-
ig aðstæður, en fæ
líka lánuð karakter-
einkenni héðan og
þaðan. Það verður
alveg hægt að setja
í samhengi, “ bendir hann á.
„Félagarnir eru dálítið að pissa á
sig, og spyrja svolítið „þú segir nú
ekki allt úr rútunni“, en það er bara
allt í lagi að láta þá svitna svolítið,“
skýtur hann svo að og skellir upp úr.
Ætlar sér ekki hefðbundnar
leiðir
„Að gefa út bók, fara svo og lesa upp
úr henni í Eymundsson og bíða svo
eftir að um hana verði kannski
fjallað í Kiljunni heillaði mig ekki,
en ég vinn hjá Pipar
auglýsingastofunni og
hef fengið bókaútgáfur
inn á borð til mín. Ég sá
þannig fyrir mér að gera
eitthvað stærra og meira,
viðraði þá hugmynd við
bókaútgáfuna, reif smá
kjaft og var með það sama
kominn með samning. Þá
var komið að því að standa
við stóru orðin og gera eitt-
hvað annað,“ segir Bibbi.
Úr varð að nú kemur Bibbi
til með að flétta saman upp-
lestur og rokkmennskuna. „Ég ætla
sem sagt alveg að mæta í Eymund-
son, en ég ætla að spila lögin sem
Arngrímur semur í bókinni.“ Má
því búast við aðeins öðrum vinkli á
Bibba, þar sem hann segist sannar-
lega finna fyrir ákveðnu frelsi þegar
hann semur tónlist undir nafni Arn-
gríms.
„Þannig getur maður verið pass-
lega asnalegur, og gert eitthvað allt
öðruvísi.“ gudrun@frettabladid.is
„Vinirnir mega alveg svitna aðeins,“ segir Sigurbjörn Ragnarsson,
Bibbi, bassaleikari einhverrar vinsælustu þungarokkshljómsveitar
landsins. Hann segir að um skáldsögu sé að ræða, en hægt verði að
rekja einhverja punkta.
Bókin kemur út þann 5. nóvember næstkomandi. „Ég er búinn að gefa út helling af plötum og hlutir hætta að vera nýir. En nú
er ég allt í einu einn, að fá alla til að fíla nýju bókina mína,“ segir Bibbi, spenntur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
Skáldsaga
Skálmaldarmannsins
1 3 . o k t ó b e r 2 0 1 5 Þ r I Ð J U D A G U r32 L í f I Ð ∙ f r É t t A b L A Ð I Ð
0
2
-1
1
-2
0
1
5
1
0
:2
1
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
6
C
0
-A
6
3
0
1
6
C
0
-A
4
F
4
1
6
C
0
-A
3
B
8
1
6
C
0
-A
2
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
2
1
0
2
0
1
5
C
M
Y
K