Fréttablaðið - 13.10.2015, Blaðsíða 26

Fréttablaðið - 13.10.2015, Blaðsíða 26
Stór hluti gamalla hjólbarða sem nýtast ekki lengur undir bílinn er endurnýtt- ur. Annars vegar er hluti þeirra endurnýttur til framleiðslu nýrra hjólbarða en ekki síður nýtast gömul dekk í alls kyns hluti á borð við undirlag á leikvelli og sundlaugarbakka, í ýmis leiktæki eða jafnvel fallegan tískuvarning. Hér á landi hefur endurnýt- ing gamalla dekkja helst sést í dekkjarólum á leikvöllum auk þess sem þau hafa nýst í höfn- um landsins og sem undirstöður undir skilti. Víða erlendis er þróunin þó mun lengra á veg komin þegar kemur að endurnýtingu og end- urvinnslu gamalla hjólbarða. Hjólbarðar eru t.d. víða nýttir í görðum erlendis, bæði á heimil- um og í almenningsgörðum. Þar er þeim til dæmis staflað saman og þeir nýttir sem blómapott- ar og trjábeð eða jafnvel hengd- ir upp á útvegg í sama tilgangi. Einnig kemur oft vel út að hengja hálfa hjólbarða upp í loft, fylla þá af mold og gróðursetja blóm þar. Séu hjólbarðarnir líka málaðir í björtum litum geta þeir sett mjög skemmtilegan svip á garð- inn. Margir möguleikar Með traustri viðar- plötu er einnig auð- velt að útbúa bekk í garðinn en þá eru tvö dekk grafin hálf ofan í jörðu og platan fest á milli þeirra. Ein- föld, ódýr og þægileg lausn. Úr nokkrum gömlum hjól- börðum má líka búa til hjóla- grindur auk þess sem eldri dekk nýtast líka í ýmis útilistaverk en mörg slík má sjá í almennings- görðum víða í Evrópu og í Banda- ríkjunum. Þegar kemur að leiktækjum eru notkunarmöguleikar dekks- ins miklir utan gömlu góðu ról- unnar. Úr þeim er t.d. hægt að útbúa ýmis skemmtileg dýr á borð við snigla, bjöll- ur og slöngur með hjálp smá máln- ingar. Lögun dek kja gerir það að verkum að þau eru fyrirtaks undirstaða fyrir borð, hvort sem um er að ræða lítil borð eða stærri borð sem standa með stól- um. Þá er einfaldlega gler eða fal- leg tréplata sett ofan á dekkið og smekklegum borðfótum jafn- vel bætt undir. Á ýmsum heim- ilum má einnig finna skemmti- lega húsmuni úr dekkjum á borð við skálar og blómavasa sem setja skemmtilegan svip á umhverfið. Spennandi tískuvörur Tískuhönnuðir hafa einnig um nokkra hríð prófað sig áfram með endurnýtingu dekkja. Ýmiss konar inniskór og sandalar auk götuskóa og stígvéla eru til sem gerð eru að stærstum hluta úr gömlum dekkjum. Margs konar skartgripir hafa einnig litið dags- ins ljós undanfarin ár þar sem dekk spila stórt hlutverk, t.d. hringar, hálsmen og eyrnalokkar. Það er því ljóst að gömul dekk er hægt að nýta á ýmsa vegu og líklega eiga þau eftir að verða al- gengara hráefni í margs konar vörum á næstu árum. Garðurinn fær nýtt útlit með litfögrum dekkjum sem búið er að breyta í blómaker. Gamalt dekk í nýjum búningi. Gömlu hjólbarðarnir fá ný og skemmtileg hlutverk Á undanförnum árum hafa gömlu hjólbarðarnir verið endurnýttir á ýmsa vegu. Hvort sem um er að ræða húsgögn eða garðvörur, leikföng eða fallegan tískuvarning er ljóst að gamla dekkið er komið til að vera sem spennandi hráefni til margs konar sköpunar. Í FARARBRODDI Í LÆKKUN DEKKJAVERÐS FRÁ ÞVÍ Í JANÚAR HÖFUM VIÐ LÆKKAÐ VERÐIÐ Á RÚMLEGA 990 VÖRUNÚMERUM HJÁ OKKUR Nú gerum við enn betur og bjóðum áður óséð verð á vetrardekkjum GERIÐ VERÐSAMANBURÐ /dekkjahollin VERÐDÆMI verð frá DEKKJASTÆRÐ pr. stk.* neglt 175/70R13 7.818,- 9.818,- 175/65R14 7.864,- 9.864,- 185/65R14 9.158,- 11.158,- 185/65R15 9.767,- 11.767,- 195/65R15 9.901,- 11.901,- 205/70R15 11.672,- 14.172,- 205/55R16 11.343,- 13.343,- 215/65R16 13.713,- 16.213,- 235/65R17 19.757,- 22.257,- 265/70R17 23.522,- 26.022,- *staðgreiðsluverð AKUREYRI Draupnisgötu 5 460 3000 EGILSSTAÐIR Þverklettum 1 460 3001 REYKJAVÍK Skeifunni 5 460 3002 REYKJAVÍK Skútuvogi 12 460 3003 www.dekkjahollin.is Skoðaðu úrvalið á vefnum okkar: 13. október 2015 ÞrIÐJUDAGUr6 Vetrardekk 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 4 K _ N ÝT T .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 B F -F 9 6 0 1 6 B F -F 8 2 4 1 6 B F -F 6 E 8 1 6 B F -F 5 A C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 8 s _ 1 2 1 0 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.