Fréttablaðið - 13.10.2015, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 13.10.2015, Blaðsíða 28
Bílbelti fyrir hunda Það er truflandi fyrir ökumann að hafa hund lausan í bíln- um, beinlínis hættulegt. Hundurinn á ekki að hanga út um gluggann, klifra yfir farþega eða bílstjórann þegar bíllinn er á ferð. Til eru vönduð bílbelti fyrir hunda sem allir hundaeig- endur ættu að eiga. Það tryggir öryggi allra í bílnum. Flest- ar gæludýrabúðir selja bílbelti en einnig er hægt að skoða þau á erlendum netverslunum. Beltin eiga að vera vönduð, enda eiga þau að koma í veg fyrir meiðsl á hundinum ef bíll- inn lendir í árekstri. Það er því ekkert öðruvísi að velja bílbelti fyrir hund eða barnabílstól. Öryggið á að vera í fyrirrúmi og hundinum á að líða vel með beltið. Vegalengdir Á heimasíðu Vegagerðarinnar, vegagerd.is, eru birtar töflur yfir leiðir frá ýmsum stöðum á landinu. Brottfararstaðir frá einstökum landshlutum eru valdir og síðan er hægt að finna út hversu langt þarf að aka á ákveðna staði á landinu. Yfir tvö hundruð staðir eru í boði. Með því að smella á vegalengd í töflunni má sjá sundurliðun leiðar á vegi/vegnúmer. Þetta getur verið mjög þægilegt fyrir þá sem þurfa að vera komnir á einhvern stað á ákveðnum tíma. Einnig má sjá á töflunni helstu kennileiti á þessari ákveðnu leið. Ef farið er vesturleiðina til Akureyrar er ekið um Hvalfjarðargöng, yfir Borgar- fjarðarbrú, Holtavörðuheiði, Vatnsskarð og Öxnadalsheiði á leiðinni frá Reykjavík. Ástand athugað Mikilvægt er að kanna ástand dekkja reglulega svo fyllsta öryggis sé gætt enda dekkin það eini hluti ökutækisins sem snertir jörð. Fylgjast þarf með sliti í munstri en veggrip dekkjanna minnkar þegar munstrið eyðist upp. Slétt dekk bjóða hætt- unni heim. Dýpt mynsturraufa í dekkjum má ekki vera minni en 1,6 mm. Loftþrýstingur í dekkjum hefur einnig áhrif á snertiflöt dekkja og veggrip og má hvorki vera of lít- ill, of mikill né mismunandi milli dekkja undir bílnum. Sami þrýst- ingur þarf að vera í báðum fram- dekkjum og sami þrýstingur í báðum afturdekkjum. Það fer eftir tegund dekkja hversu mik- ill þrýstingurinn á að vera. Upp- lýsingar um réttan loftþrýsting fyrir þá tegund dekkja sem um ræðir er að finna í handbók bíls- ins. Ef ekki ætti að leita aðstoðar starfsfólks á dekkjaverkstæði eða á skoðunarstöð. Öll dekkin þurfa að vera sömu gerðar undir bílum sem eru 3.500 kg eða minna. Heimild fib.is Veldu margverðlaunuð finnsk gæðadekk sem eru sérstaklega hönnuð fyrir krefjandi aðstæður norðlægra slóða ein öruggustu dekk sem völ er á ítrekað valin bestu dekkin í gæðakönnunum breitt úrval nagla-, vetrar- og heilsársdekkja eigum dekk fyrir fólksbíla, jeppa og sendibíla Skoðaðu dekkjaleitarvélina á MAX1.is MAX1 býður 20% afslátt af hágæða Nokian dekkjum og hluti söluágóða rennur til Krabbameinsfélagsins SENDUM UM ALLT LAND Flutningur með Flytjanda 500 kr. hvert dekk Bíldshöfða 5a, Reykjavík Jafnaseli 6, Reykjavík Dalshrauni 5, Hafnarfirði (Knarrarvogi 2, Reykjavík Ath. ekki dekkjaþjónusta) Aðalnúmer: 515 7190 Opið: Virka daga kl. 8-17 Laugardaga: sjá MAX1.is Fáðu 20% afslátt af NOKIAN dekkjum og styrktu Bleiku slaufuna um leið Max1_BleikaSlaufan_4x30_20150914_END.indd 1 12.10.2015 14:04:51 13. október 2015 ÞrIÐJUDAGUr8 Vetrardekk 0 2 -1 1 -2 0 1 5 1 0 :2 1 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 6 C 0 -8 3 A 0 1 6 C 0 -8 2 6 4 1 6 C 0 -8 1 2 8 1 6 C 0 -7 F E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 1 2 1 0 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.