Breiðholtsblaðið - 01.06.2006, Qupperneq 14
Hugsum stórt, horfum langt og
byrjum strax eru einkunnarorð
nýs meirihluta sjálfstæðismanna
og framsóknarmanna í borgar-
stjórn Reykjavíkurborgar sem
tók til starfa sl. þriðjudag. Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, oddviti
sjálfstæðismanna í borgarstjórn
var kjörinn borgarstjóri án at-
kvæðagreiðslu á fyrsta fundi
nýrrar borgarstjórnar, Hanna
Birna Kristjánsdóttir var kjörinn
forseti borgarstjórnar. Björn Ingi
Hrafnsson var kjörinn fyrsti
varaforseti og Júlíus Vífill Ingv-
arsson var kjörinn annar vara-
forseti.
Björn Ingi formaður
borgarráðs
Borgarráð verður skipað
Hönnu Birnu Kristjánsdóttur,
Gísla Marteini Baldurssyni og
Kjartani Magnússyni frá Sjálf-
stæðisflokki, Degi B. Eggertssyni
og Steinunni Valdísi Óskarsdóttur
frá Samfylkingu, Árna Þór Sig-
urðssyni frá Vinstri hreyfingunni
grænu framboði og Birni Inga
Hrafnssyni frá Framsóknarflokki.
Björn Ingi Hrafnsson verður for-
maður borgarráðs.
Guðlaugur Þór
í orkuveituna
Af öðrum kosningum sem fram
fóru á fundi borgarstjórnar má
nefna að Guðlaugur Þór Þórðar-
son alþingismaður var kjörinn
formaður stjórnar Orkuveitu
Reykjavíkur en kosning hans er til
eins árs. Þá tekur Haukur Leós-
son við formennsku í eitt á en síð-
an fellur formennskan framsókn-
armönnum í hlut tvö síðari ár
kjörtímabilsins. Guðlaugur Þór er
hættur í borgarstjórn en var tals-
maður sjálfstæðismanna í málefn-
um orkuveitunnar á síðasta kjör-
tímabili. Björn Ingi Hrafnsson
borgarfulltrúi var kjörinn varafor-
maður stjórnar orkuveitunnar og
auk þeirra voru Haukur Leósson,
Stefán Jón Hafstein og Ólafur F.
Magnússon kjörnir í stjórnina.
Björn Ingi Hrafnsson var kjörinn
formaður stjórnar Faxaflóahafna
sf. Auk hans voru Kjartan Magn-
ússon, Ólafur R. Jónsson, Dagur
B. Eggertsson og Árni Þór Sig-
urðsson kjörnir í stjórnina.
Kosning formanna í ráð borgar-
innar fór þannig að Kjartan Magn-
ússon verður formaður menning-
ar- og ferðamálaráðs, Júlíus Vífill
Ingvarsson verður formaður
menntaráðs, Þorbjörg Helga Vig-
fúsdóttir verður formaður leik-
skólaráðs, Jórunn Frímannsdóttir
verður formaður velferðarráðs og
Óskar Bergsson verður formaður
framkvæmdaráðs. Sjálfstæðis-
menn hafa því formensku í sex af
átta helstu nefndum borgarinnar
en framsóknarmenn stýra tveim-
ur.
Hreinsun, búsetuúrræði
aldraðra og lóðaframboð
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
sagði er hann hafði verið kjörinn
borgarstjóri að hann myndi legg-
ja áherslu á gott samstarf við alla
borgarfullrúa og borgarstarfs-
menn og verða borgarstjóri allra
Reykvíkinga. „Ég mun þjóna borg-
arbúum á skilvirkan hátt með
kurteisi og tillitsemi að leiðar-
ljósi.“ Vilhjálmur kvaðst enn
fremur ætla að heimsækja fyrir-
tæki og stofnanir, halda fundi og
sinna beiðnum um viðtöl eins og
tími myndi leyfa. „Sem borgarfull-
trúi hef ég lagt mikla áherslu á að
sinna erindum einstaklinga og því
ætla ég að halda áfram og leið-
beina og aðstoða þá við að koma
erindum sínum í gegnum það
mikla völundarhús sem stjórn-
kerfi borgarinnar er.“ Hann þakk-
aði síðan Steinunni Valdísi Ósk-
arsdóttur, fráfarandi borgar-
stjóra, vel unnin störf í þágu borg-
arinnar. Hann sagði að þau Stein-
unn hefðu unnið lengi saman og
átt gott heiðarlegt samstarf þótt
þau hefðu ekki alltaf verið sam-
mála.
Vilhjálmur kvaðst leggja mikla
áherslu á hreinsun borgarinnar
og nú þegar yrði gerð áætlun um
hreinsun hinna mörgu opnu
svæða hennar. Þetta yrði eitt af
fyrstu verkum sínum sem borgar-
stjóra ef ekki það fyrsta. Þá yrði
fljótlega haft samband við félög
og samtök eldri borgara um bú-
setuúrræði fyrir eldra fólk en þar
væri um brýnt verkefni að ræða.
Þá yrði að huga að auknu lóða-
framboði, ekki síst fyrir sérbýli
þar sem eftirspurnin væri mjög
mikil og lóðaskortur m.a. ástæða
þess að fólk hefði flust til ná-
granna sveitarfélaganna. Vil-
hjálmur lagði áherslu á fjármál
borgarinnar og sagði að á næsta
fundi borgarráðs yrði óskað eftir
að gerð verði úttekt á fjármálum
borgarinnar til og með 1. júní.
Hann benti á að við síðustu fjár-
hagsáætlun hafi þáverandi meiri-
hluti sett sér sem markmið fyrir
árið 2007 að geta lokað áætlun-
inni með kröfu um hagræðingu
upp á 600 milljónir. „Þegar ég er
að kynna mér það nákvæmlega
hvernig eigi að spara 600 milljónir
liggur ekkert fyrir um það, þess-
ari tölu er bara skellt inn til að
geta sýnt betri stöðu,“ sagði Vil-
hjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgar-
stjóri.
Óbyggðanefnd hefur úr-
skurðað að eignarland ÍR á
Hengilsvæðinu sé ekki þjóð-
lenda.
Nefndin hvað upp úrskurð
sinn um málið 31. maí sl. en rík-
ið hafði gert kröfu um að þetta
land félli undir þjóðlendu.
Með þessum úrskurði er
fengin viðurkenning á því að
landið er undirorpið einkaeign-
arrétti en ÍR eignaðis landið
samkvæmt þinglýstu afsali
1939. Þetta er mikill sigur í lan-
gri baráttu ÍR til að halda landi
sínu sem verið hefur alla tíð
notað til skíðaiðkana og skíða-
deildin byggt marga skíðaskála
og lyftur á landinu.
JÚNÍ 200614 Breiðholtsblaðið
ÍR landið
ekki þjóðlenda
Netsaga.is
Hugsum stórt, horfum
langt og byrjun strax
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson. Hanna Birna Kristjánsdóttir. Björn Ingi Hrafnsson.
Golfkennsla
Nökkvi Gunnarsson
Meðlimur hjá USGTF og IPGA
UNITED STATES GOLF TEACHERS FEDERATION
Einkakennsla og hópar
Upplýsingar í síma 893 4022