Vesturbæjarblaðið - 01.03.2007, Qupperneq 2
Verður Gröndalshús eft-
ir allt í miðborginni?
Á fundi borgarstjórnar var lögð
fram tillaga Margrétar Sverrisdótt-
ur, Frjálslyndum, um Gröndalshús
þar sem lagt er til að borgarstjórn
Reykjavíkur samþykki að Grön-
dalshús fái að standa á núverandi
stað og fallið verði frá áformum
um flutning þess í Árbæjarsafn.
Fulltrúar meirihluta Framsóknar-
flokks og Sjálfstæðisflokks lögðu
til að tillögunni yrði vísað frá.
Jafnframt yrði skipulagsráði falið
að kanna möguleika á því að hús-
ið verði staðsett í miðborginni.
Tillaga borgarfulltrúa Framsókn-
arflokks og Sjálfstæðisflokks var
samþykkt með 8 atkvæðum gegn
3 að því er varðar frávísun á til-
lögu Margrétar Sverrisdóttur en
tillagan að öðru leyti samþykkt
með 15 samhljóða atkvæðum.
Lögreglan og leikskóla-
börn á Vetrarhátíð
Leikskólabörn og lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu fóru saman
í skrúðgöngu frá Hlemmi og að
Miklatúni við upphaf Vetrarhátíð-
ar í Reykjavík. Um 350 manns,
börn og fullorðnir, tóku þátt í
skrúðgöngunni. Krakkarnir, sem
komu frá leikskólum í miðborg-
inni og Hlíðahverfi, tóku lagið
með Lögreglukórnum og skem-
mtu allir sér hið besta. Lúlli löggu-
bangsi var með í för en hann vakti
óskipta athygli barnanna.
Innisundlaug við
Sundlaug Vesturbæj-
ar á þessu ári
Innisundlaug verður gerð við
Vesturbæjarlaugina innan tíðar og
verður byrjað á verkinu á næst-
unni. Er þetta fyrsta meiriháttar
framkvæmd við sundlaug í Reykja-
vík frá því stóra 50 metra innilaug-
in í Laugardal var tekin í notkun.
Íþrótta- og tómstundaráð ráðgerir
nú að endurbæta og byggja við
Vesturbæjarlaugina á næstunni
og hefur borgarráð nýlega sam-
þykkt að viðhafa forval vegna fram-
kvæmda við laugina og hugsanlegr-
ar aðstöðu til heilsubótar þar. Jafn-
vel er gert ráð fyrir að um einka-
framkvæmd verði að ræða. Um
er að ræða 25 metra innisundlaug
á lóðinni austan við Vesturbæjar-
laugina og líkamsræktarsal. Kostn-
aður hefur ekki verið reiknaður
út en ráðgert er að klára viðbygg-
ingarnar á einu ári. Á ári hverju
koma um 250 þúsund manns í Vest-
urbæjarlaugina en starfsemin er
orðin of viðamikil fyrir núverandi
pláss. Mikil ásókn hefur verið síð-
ustu misseri í sunddeildir íþrótta-
félaganna eftir að stóra innilaugin í
Laugardal var opnuð.
Miðlæg stýring
umferðaljósa
Á undanförnum árum hef-
ur verið unnið að undirbúningi
samtengingu umferðarljósa á höf-
uðborgarsvæðinu og miðlægri
stýringu þeirra, en verkefnið er
samstarfsverkefni Reykjavíkur-
borgar og Vegagerðarinnar. Í apr-
íl verður lokið við uppsetningu
fyrsta áfanga verkefnisins þegar
fyrstu 40 gatnamótin verða tengd
stjórntölvu í húsnæði Fram-
kvæmdasviðs Reykjavíkur í Skúla-
túni 2. Að loknu þriggja mánaða
prufukeyrslutímabili verður kerf-
ið tekið formlega í notkun í lok
júní. Þetta eru merk tímamót og
taka sumir svo djúpt í árinni að
verið sé að nútímavæða stjórn-
un umferðar í borginni. Verkefn-
ið bíður upp á marga spennandi
möguleika, en vonir standa til að
á árinu 2010 nái kerfið til stýring-
ar allra umferðarljósa í Reykjavík.
Markmiðið er m.a. að kerfið safni
umferðarupplýsingum sem nýt-
ast til að lágmarka umferðartafir
við mismunandi aðstæður og að
stýring umferðarljósa samræm-
ist umferðinni hverju sinni og að
mögulegt sé að veita Strætó for-
gang.
Veruleg ásókn í
félagslegar íbúðir
Á fundi borgarráðs lögðu full-
trúar Samfylkingarinnar fram
fyrirspurn vegna leiguíbúða þar
sem segir að á þeim áratug sem
Reykjavíkurlistinn stýrði málum
í Reykjavík hafi félagslegum leigu-
íbúðum fjölgað frá því að vera
688 árið 1994 í 1518 árið 2006 fyr-
ir utan þjónustuíbúðir. Á sama
tíma hafi verið markvisst unnið
að því að gera úthlutanir fagleg-
ar þar sem sameiginlegt úthlut-
unarteymi raðar umsækjendum
í forgangsröð eftir félagslegum
aðstæðum. Aðstoðarmaður borg-
arstjóra hafi nýlega sat að hann
hafi persónulega tekið inn fólk í
félagslega húsnæðiskerfið. Því sé
spurt hversu margra hefur aðstoð-
armaður borgarstjóra tekið inn
og sé verið að hverfa frá þeim
vinnubrögðum að forgangsraða
umsækjendum eftir aðstæðum og
úthluta pólitískt í félagslegar leigu-
íbúðir í eigu borgarinnar?
Borgarstjóri lagði fram svar
þar sem segir: “Aðstoðarmaður
borgarstjóra hefur ekki úthlutað
neinum félagslegum leiguíbúð-
um í félagslega húsnæðiskerfi
borgarinnar. Það er hlutverk sér-
staks úthlutunarhóps á vegum
velferðarsviðs. Hins vegar hafa
fjölmörg mál komið inn á borð
hans þar sem einstaklingar og fjöl-
skyldur í djúpri neyð hafa leitað
upplýsinga og leiðbeininga varð-
andi umsóknir um leiguhúsnæði.
Aðstoð af þessu tagi hefur verið
veitt fúslega af hálfu skrifstofu
borgarstjóra enda um verulega
uppsafnaða þörf á aðstoð og upp-
lýsingum að ræða.”
Byggingu verslunar-
og þjónustuhúss á
Granda hafnað
Eignarhaldsfélagið Barðinn ehf.
hefur sótt um leyfi til að byggja
stálgrindarhús með millilofti í
hluta húss fyrir verslun og þjón-
ustu á lóðinni nr. 23-25 við Fiski-
slóð en stærð hússins er fyrirhug-
uð 3.073 fermetrar. Beiðninni var
synjað þar sem hún samræmist
ekki deiliskipulagi.
Ný íslenskuverðlaun
fyrir skólabörn í
Reykjavík
Menntaráð Reykjavíkurborgar
ætlar að efna til íslenskuverðlauna
fyrir reykvísk skólabörn. Þeim
verður úthlutað árlega, á Degi
íslenskrar tungu, þann 16. nóvem-
ber. Verndari verðlaunanna er frú
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi
forseti Íslands. Markmið þessarar
verðlauna er að auka áhuga æsku-
fólks á íslenskri tungu og hvetja
það til framfara í tjáningu talaðs
máls og ritaðs. Verðlaunin verða
veitt nemendum sem hafa tekið
framförum og eða náð góðum
árangri í íslensku, hvort heldur þeir
hafa hana að móðurmáli eða læra
hana sem annað tungumál. Sérhver
grunnskóli í Reykjavík getur tilnefnt
þrjá nemendur eða nemendahóp
til verðlaunanna og fá allir sem til-
nefningu hljóta verðlaunagrip. Skól-
ar geta t.d. tilnefnt þá sem sýnt
hafa færni, frumleika eða sköpun-
argleði í að nota tungumálið sem
samskiptatæki í hagnýtum eða list-
rænum tilgangi. Íslenskuverðlaun
reykvískra skólabarna verða veitt í
fyrsta sinn á hausti komanda.
Karl Steinar Valsson
yfirmaður fíkniefna-
deildar LRH
Karl Steinar Valsson aðstoðaryf-
irlögregluþjónn verður yfirmaður
fíkniefnadeildar lögreglunnar á höf-
uðborgarsvæðinu. Hann var skip-
aður aðstoðaryfirlögregluþjónn
1997 og stýrði þá forvarnadeild
lögreglunnar í Reykjavík. Karl Stein-
ar hefur verið aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn í almennu deild lögreglunn-
ar frá 2002. Hann hefur farið með
málefni almennu löggæslunnar og
sólarhringsvaktanna frá þeim tíma,
fyrst hjá lögreglunni í Reykjavík
en frá áramótum hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu. Karl Steinar
lauk námi í afbrotafræði frá Cali-
fornia State University í Bandaríkj-
unum 1994. Hann útskrifaðist frá
Lögregluskóla bandarísku alríkis-
lögreglunnar (FBI) 1999 og lauk
námi fyrir stjórnendur í lögreglu
frá sama skóla 2002. Karl Steinar
lauk MBA-námi frá Háskólanum í
Reykjavík 2006.
Ónýtum rafhlöðum
skal safnað
Úrvinnslusjóður hefur hrint
af stað kynningarátaki vegna
söfnunar á ónýtum rafhlöðum
til úrvinnslu. Markmið átaksins
er að fá fleiri til að safna og skila
notuðum rafhlöðum, auka vitund
almennings um mikilvægi þess
að rafhlöðum sé skilað og vekja
athygli á að einfalt sé að losna við
þær. Þátttakendur í kynningarátak-
inu ásamt Úrvinnslusjóði eru Olís,
Efnamóttakan, Gámaþjónustan og
Hringrás. Árið 2004 var aðeins 18%
rafhlaðna skilað til úrvinnslu og
ári seinna, 2005, var hlutfallið kom-
ið í 21%. Samkvæmt könnun sem
Capacent gerði fyrir Úrvinnslusjóð
safna 22% landsmanna rafhlöðum
til úrvinnslu. Nýleg rafhlöðutilskip-
un Evrópusambandsins sem verð-
ur innleidd á Íslandi innan tíðar
kveður á um að skilahlutfall raf-
hlaðna skuli vera komið í 25% á
árinu 2012 og 45% árið 2016.
2 Vesturbæjarblaðið
Útgefandi: Borgarblöð ehf.
Vesturgötu 15 • 101 Reykjavík
Sími: 511 1188 • 561 1594
Fax: 561 1594
Ritstjóri: Geir A. Guðsteinsson, Sími 564 5933, 898 5933
Netfang: geirgudsteinsson@simnet.is
Auglýsingasími: 511 1188 • 561 1594 • 895 8298
Netfang: borgarblod@simnet.is
Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Kristján Jóhannsson
Umbrot: Valur Kristjánsson
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Dreifing: Íslandspóstur
3. tbl. 10. árgangur
Vesturbæjarblaðinu er dreift í hvert hús í Vesturbæ og Miðbæ.
S T U T T A R
B O R G A R F R É T T I R
S tefnt er að gríðarlegri uppbyggingu byggðar í Örfirisey, og á landfyllingu samkvæmt hugmyndum Bygg og Björgunar. Tillaga þeirra hefur verið tekin fyrir í stjórn Faxaflóahafna og var síðan
vísað til starfshóps um uppbyggingu á svæðinu. Það stefnir því í mikla
íbúðabyggingu í nágrenni hafnarsvæðisins, líkt og víða má sjá erlend-
is. Nú hefur þróunarfélagið Þyrping bæst í hópinn og kynnt tillögur
um íbúðabyggð á um 25 hektara landfyllingu út af Ánanaustum og í átt
til Örfiriseyjar. Þar mundu rísa einbýlis-, par- og fjölbýlishús til þess
að mæta þörfum sem flestra, og sum fjölbýlishúsanna munu standa
í vatni. Þyrping stefnir að því að hefja framkvæmir við landfyllingar
innan tveggja ára. Í starfshópi um ummbyggingu svæðisins sitja Björn
Ingi Hrafnsson, sem er formaður, Árni Þór Sigurðsson, Hanna Birna
Kristjánsdóttir, Gísli Marteinn Baldursson og Dagur B. Eggertsson.
Þeirra bíður því ærið og vandasamt verkefni. Vaxandi áhugi er á þessu
svæði, og nýlega var skýrt frá því að fjárfestingafélagið Lindberg hefði
keypt fjölda fasteigna í Örfirisey, og samkvæmt því virðast fjárfestar
og byggingaaðilar treysta því að þarna rísi á næstu árum stór byggð
sem fjölga mun íbúum í Vesturbænum verulega, eða um allt að 5.000
manns. En getur gatnakerfið tekið við svo mörgum nýjum íbúum? Alls
ekki að óbreyttu, nú þegar er oft örtröð um þetta svæði, s.s. um Hring-
brautina, Mýrargötuna og jafnvel um Hofsvallagötuna og niður Túngöt-
una. Umferðarmálin þurfa að liggja á hreinu áður en framkvæmdaleyfi
verður gefið út, ef það verður þá gefið út svo vitnað sé til frægs dæmis
um vatnslögn í nágrannasveitarfélaginu. En vissulega eru þessar hug-
myndir allra athygli verðar, en þær tempra svolítið að byggð teygist
lengra og lengra upp á Hellisheiði, og það hlýtur að teljast hið besta
mál.
Kennarar á lágum launum
G runnskólakennarar eru enn að hugsa sér til hreyfings í kjara-málum þó samningar séu langt í frá útrunnir. Kennara telja að efnahagsþróunin í landinu hafi verið slík frá undirskrift samn-
ings að þar séu farið fram úr svartsýnustu spám. Reykjavíkurborg
hefur ekki rætt við sína kennara, en það hafa hins vegar bæjaryfirvöld
í Hafnarfirði og á Akureyri gert og líklega hefur Launanefnd sveitar-
félaga eitthvað fundað, þó það fari heldur hljótt að því er virðist. Í
Vesturbænum eru frábærir grunnskólar, þ.e. Melaskóli, Vesturbæjar-
skóli, Grandaskóli og Tjarnarskóli sem hafa sýnt frábæran árangur á
landsvísu. En það gerist ekki nema þar starfi framúrskarandi kennarar.
Það er erfitt að trúa því að sumir kennarar hafi ekki nema liðlega 100
þúsund krónur í útborguðum launum, á sama tíma og fréttir berast af
kaupréttarsamningum í bönkunum sem skila yfirmönnunum tugum
milljóna! Ef Launanefnd sveitarfélaga er ekki tilbúin til að koma til
móts við grunnskólakennara, á Reykjavíkurborg að taka af skarið og
semja beint við sína umbjóðendur. Kennarar eiga það skilið, ekki síst í
Vesturbænum!
Virðum hámarkshraða
Í Litla-Skerjafirði er 30 km hámarkshraði, en það virðist vefjast fyrir einhverjum, a.m.k. þeim sem undiritaður mætti nýlega í hverf-inu. Ég á erfitt með að trúa því að um íbúa hafi verið að ræða, og
þannig er einnig um mörg önnur 30 km hverfi í Vesturbænum þar sem
hámarkshraði er hunsaður. Þessi stressaða þjóð þarf að taka sig á
þessum efnum, og það strax í dag. Akstur er dauðans alvara, ekki síst í
íbúðahverfum.
Geir A. Guðsteinsson
Gríðarlegar landfyll-
ingar í sjónmáli
Vesturbæingar
Væri það ekki verðugt
verkefni að Vesturbæingar
sameinuðust gegn veggjakroti.
MARS 2007