Vesturbæjarblaðið - 01.10.2005, Qupperneq 4

Vesturbæjarblaðið - 01.10.2005, Qupperneq 4
OKTÓBER 20054 Vesturbæjarblaðið Þjónustumiðstöðin Vesturgarður opnuð með hausthátíð: Meirihluti borgarstjórnar sýndi frábæra takta í því að sippa Laugardaginn 24. september sl. var haldinn hausthátíð á Hjarðarhaganum í tilefni af opn- un þjónustuskála Vesturgarðs. Hátíðin hófst með árvarpi borg- arstjóra, Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, síðan flutti Skerja- fjarðarskáldið Kristján Hreins- son ljóð sem hann afhenti síðan Vesturgarði; reynt var að slá met í þátttökufjölda í því að sippa, sem nokkrir borgarfulltrúar tóku þátt í og loks var keppt í óhefðbundnum keppnisgreinum eins og pokahlaupi þar sem þrír þátttakendur voru í tveimur pok- um. Síðast, en ekki síst, fengu allir viðstaddir súkkulaðiköku. Fimm þjónustumiðstöðvar hafa tekið til starfa í Reykjavík. Þar er veitt þjónusta við einstaklinga og fjölskyldur, sem áður var veitt var frá Félagsþjónustunni í Reykjavík. Auk þess veita þjónustumiðstöðv- arnar sérfræðiþjónustu frá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur og Leikskólum Reykjavíkur og frí- stundaráðgjöf frá Íþrótta- og tóm- stundasviði. Markmiðið með stofnun þjón- ustumiðstöðvanna er að bæta þjónustu borgarinnar með því að gera hana aðgengilegri fyrir íbúa og með því að auka samstarf sér- fræðinga í málefnum barna og fjölskyldna. Jafnframt munu þjón- ustumiðstöðvarnar leggja mikla áherslu á að efla hvers kyns hverfastarf í samstarfi við íbúa, félagasamtök að aðra þá sem vilja láta til sín taka. Þjónustumiðstöðvarnar eru Vesturgarður, þjónustumiðstöð fyrir íbúa Vesturbæjar, er að Hjarðarhaga 45-47; þjónustumið- stöð fyrir íbúa Miðborgar og Hlíð- ar að Skúlagötu 21; þjónustumið- stöð fyrir íbúa Laugardals- og Háaleitis að Síðumúla 39; þjón- ustumiðstöð fyrir íbúa Breiðholts að Álfabakka 12. Auk þess er þjónustumiðstöð (útibú frá Breið- holti) fyrir íbúa Árbæjar og Graf- arholts að Bæjarhálsi 1. Miðgarð- ur, þjónustumiðstöð fyrir íbúa í Grafarvogi og á Kjalarnesi er í Langarima 21. Borgarstjórinn í Reykjavík, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, seg- ir að opnun Vesturgarðs sé liður í því að færa þjónustuna nær íbú- unum og þessar þjónustumið- stöðvar sé verið að opna hverja af fætur annari um alla borg á undanförnum helgum. Á þessum stöðum eiga Reykvíkingar að geta sótt alla þá þjónustu sem þeir þarfnast frá borginni. Þessar þjónustumiðstöðvar muni einnig skapa sterkari hverfisvitund.T.d. verði Vesturgarður miðja Vestur- bæjarins, og þar verður staðið fyrir hverfauppákomum og fleira sem tengist þjónustu við Vestur- bæinga. Hverfavitund Vesturbæinga sterk - Er enginn hætta á því að með þessum þjónustumiðstöðvum fjarlægist íbúar Reykjavíkur hver annan vegna þess að þeir eigi minna að sækja í miðlæga þjón- ustu eins og t.d. Ráðhúsið við Tjörnina? „Ég held að það sé engin hætta á því. Það er auðvitað þannig að það er mjög mismunandi mikil hverfavitund og hún er mjög sterk hér í Vesturbænum. Ég held að Vesturbæingar líti á sig eins og „Þingeyingana“ í borginni því þeir finna svolítið til sín. Þessi hverfis- vitund er einnig vaxandi í öðrum hverfum borgarinnar, hún er mik- il í Grafarvogi og einnig töluverð í Árbænum, en minni annars stað- ar,“ segir Steinunn Valdís Óskars- dóttir borgarstjóri í viðtali við Vesturbæjarblaðið. - Hver var ástæða þess að borg- arstjórn ákvað að útfæra þjónust- una með þessum hætti? „Þetta er liður í þessum stjórn- kerfisbreytingum, þetta er upp- stokkun á stjórnkerfi borgarinnar, og í því að skilgreina betur borg- ina sem þjónustuvæna. Reykjavík er orðin mjög stór og fjölskyldur sem þurftu áður að leita eftir þjónustu Reykjavíkurborgar, hvort sem er vegna skóla, frí- stundamála, leikskóla, félagslegr- ar heimaþjónustu, þurftu iðulega áður fyrr að fara milli margra staða. Markmiðið er að einfalda þessar boðleiðir, færa þjónustuna nær íbúunum og gera þjónustuna markvissari. Í framtíðinni á þetta fyrirkomu- lag einnig að skila sparnaði. Það fylgir ekki kostnaðarauki rekstri þjónustumiðstöðvarinnar hér í Vesturgarði, eða annars staðar í borginni.“ Ekki kostnaðarauki „Minnihluti borgarstjórnar- flokks Sjálfstæðisflokksins hefur haldið fram að kostnaðurauki vegna þessara þjónustumið- stöðva sé um 300 milljónir króna. Það er rangt, það er hægt að nota liðlega 100 milljónir króna til að brúa bil til að koma þjónustumið- stöðvunum á laggirnar, en af þeirri upphæð hafa aðeins verið notaðar um 20 milljónir króna. Þetta skilar sér til baka,“ sagði borgarstjóri við formlega opnun Vesturgarðs 24. september sl. Fjölbreytt þjónusta Í Vesturgarði má finna fjöl- breytta þjónustu en leiðarljósið er að að hafa viðskiptavininn alltaf í öndvegi og að traust tengsl inn á við skapi betri lausnir út á við. Þarna má finna m.a. úrlausn vegna: • Kennsluráðgjafar • Leikskólaráðgjafar • Daggæsluráðgjafar • Sálfræðiráðgjafar • fjárhagsaðstoðar • Mati á heimaþjónustu • Umsókna um leiguhúsnæði • Innritun í leikskóla • Umsagna vegna ættleiðinga • Sérkennsluráðgjafar • Þjónustu við eldri borgara o.fl. ■ Borgarstjóri, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sýndi að hún hefur engu gleymt frá því hún var að sippa í barnaskóla. Með henni sippaði einnig borgarfulltrúinn Stefán Jón Hafstein, sem einnig sýndu mikið úthald, en sippað var í 3 mínútur. Kór eldri borgara við Neskirkju söng undir stjórn Ingu J. Backman. Skerjafjarðarskáldið Kristján Hreinsson flytur ljóðið „Garðurinn okkar“ sem var ort í tilefni dagsins.

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.