Vesturbæjarblaðið - 01.10.2005, Page 7
Tjöld ljósum lit
löng að prýða
með furðu fárámleg
farfa skipti;
krossaum og pells
kasta í þéttan tvist
augna og refilsaum
einnig sprang og glit.
Þannig orti Stefán Ólafsson
skáld um kvenlegar listir árið
1645 en ljóðið birtist í Heilræða-
kvæðum.
Helga Jóna Þórunnardóttir er
textíl-framhaldsskólakennari frá
Skals Textilseminariet í Dan-
mörku. Fyrsta árið í Danmörku
var hún nemandi við Skals Hånd-
arbejdsskole, þar sem hún lærði
m.a. útsaum, fatasaum, vefnað,
prjón á vélar, þæfingu og fleira.
Að því ári loknu hóf hún nám í
Skals Textilseminarium og lauk
vorið 2005 námi sem handavinnu-
kennari fyrir fullorðna. Aðalfögin
þar voru útsaumur, prjón (hand-
og vélprjón), vefnaður og fata-
saumur. Auk þess sótti Helga
Jóna mismunandi vikunámskeið á
vegum skólans, s.s. í þrykki, þæf-
ingu, skapandi prjónavélanotkun
o.fl.
Í janúar 2004 hóf hún að kenna
útsaum í kvöldskóla á Skals Hånd-
arbejdsskole, m.a. til þess að
dýpka enn frekar þekkingu sína í
útsaumi og einnig kenndi hún or-
keringu um tíma.
Samhliða þessu hefur Helga
Jóna tekið þátt í nokkrum hand-
verkssýningum á Íslandi, sem og
sýningum á vegum skólanna, tek-
ið að sér útsaum fyrir fólk og
skrifað greinar í „Dansk Husflid.“
Sýningarnar eru m.a. Töskur,
Handverk og hönnun 2003; Allir fá
þá eitthvað fallegt, Handverk og
hönnun 2003 og 2004; Jólasýning
Norrænahússins 2003; Category
X, Listasafni Árnesinga 2004; Vest
Norden í Laugardalshöll 2004 og
Sögur af landi, Handverk og hönn-
un 2005.
Verðmætamat fólks að
breytast
Helga Jóna er með útsaums-
námskeið heima hjá sér í Vestur-
bænum á Víðimel 69 en auk þess
kennir hún á námskeiðum hjá
Handíðum í Kópavogi. Helga Jóna
var spurð að því hvort stöðugt
færri Íslendingar kynnu útsaum.
„Það var þannig, en mér finnst
að þetta sé í sókn aftur, það eru
stöðugt fleiri sem vilja læra þetta.
Ég er núna með tvo hópa hérna
heima á námskeiði, en það er
hægt að komast á námskeið hjá
mér, bara hafa samband. Að sjálf-
sögðu er þetta ekki bara fyrir
Vesturbæinga, þetta er opið öll-
um. Skýringin á því af hverju
handverk nýtur vaxandi vinsælda
gæti verið sú að fólk vill stundum
vera öðru vísi en fjöldinn og það
vill líka læra að skapa eitthvað
sjálft, en ekki kaupa flík eins og
allir aðrir. Það er alltaf gaman að
nota eitthvað sem þú hefur skap-
að sjálfur, það verður svo per-
sónulegt. Fólk er farið að meta
handverk miklu meira en áður var
en á tímabili ríkti svolítið mikið í
fólki að það borgaði sig alls ekki
að gera hlutina sjálfur, og alls ekki
að vera með útsaum vegna þess
að það væri svo tímafrekt. Ætli
verðmætamat fólks sé ekki að
breytast, það er að verða öðru
vísi í þessu þjóðfélagi þar sem
hægt er að fá nánast allt fyrir pen-
inga,“ segir Helga Jóna Þórunnar-
dóttir.
Helga Jóna bendir á, máli sínu
til staðfestingar, að handverks-
búðum hafi fjölgað undanfarin
misseri og verslanir sem hafi
starfað um árabil hafi verið að
auka sín umsvif. Hún segir að
alltaf þurfi að vera endurnýja hug-
myndir fyrir nemendurna, það sé
kannski ekki svo erfitt þar sem
fjölbreytileikinn sé svo mikill. Svo
sé það mikilvægt að þetta er ekki
dýrt, en það ræðst auðvitað af því
hversu margir litir séu notaðir, en
hver litur á venjulega mynd kost-
ar kannski um 100 krónur, þ.e. ein
dokka fyrir utan ramma.
Frekar karlar en konur
fyrr á öldum
„Til þessa hafa eingöngu konur
sótt þessi námskeið, en auðvitað
eru karlmenn velkomnir. Þetta
getur líka verið ágætis tóm-
stundagaman fyrir karlana t.d.
fyrir framan sjónvarpið á kvöldin.
Svo er hægt að taka þetta með
sér hvert sem farið er, svo fram-
arlega sem ekki er t.d. verið að
sauma út í veggteppi eða eitthvað
svipað. En líklega eru karlarnir
svo feimnir eða óframfærnir og
telji að þetta sé eingöngu fyrir
konur, þetta sé of fínlegt og kven-
legt. En það er mesti misskilning-
ur. Í Evrópu fyrr á öldum voru
það oft karlmennirnir sem voru
á sauma út,“ segir Helga Jóna
Þórunnardóttir.
OKTÓBER 2005 7Vesturbæjarblaðið
Vaxandi áhugi á kvenlegum listum:
Fjölbreytt útsaumsnámskeið á Víðimelnum
Helga Jóna Þórunnardóttir textílkennari á vinnustofu sinni á Víðimel
69 með ýmislegan fallegan útsaum eftir hana sjálfa.