Vesturbæjarblaðið - 01.10.2005, Page 11

Vesturbæjarblaðið - 01.10.2005, Page 11
Allmörg undanfarin ár hafa verið haldin jóganámsskeið á Aflagrandanum undir heitinu JÓGA OG HEILSA. Þessi náms- skeið eru öllum opin en flestir sem koma eru úr Vesturbænum eða nánasta umhverfi. Konur eru í meirihluta og þær eru gjarnan á miðjum aldri. Námskeiðin eru haldin alla virka daga frá klukk- an 18.00 til 19.00 nema föstu- daga, og þriðjudags- og fimmtu- dagsmorgna eru jóganámskeiðin frá klukkan 09.00 til 10.00. Jóga vekur stundum svolitla for- vitni almennings, margir telja þetta vera sprottið upp af ein- hverri dulúð, en hins vegar er raunar engin dulúð kringum það. Á síðasta áratug hefur fjöldi jógaá- stundenda margfaldast hér á landi, raunar má segja að hér hafi orðið jógasprenging. Samhliða þeirri fjölgun, en þó öllu hraðar, er orðinn til stór hópur af fólki sem hefur sótt jógakennara- eða leið- beinendanámskeið af ýmsu tagi. Hildur Björg Eydal jógakennari og jógaþerapisti sér um starfssemina á Aflagranda. Hún var spurð hverj- ir sæktu þessi námskeið og hvern- ig þau væru og eins hvort jóga væri betra fyrir konur en karla. „Jóga er gott fyrir alla, konur sem karla og fólk á öllum aldri. En það má kannski segja að jóga sé sérstaklega gott fyrir fólk á miðj- um aldri þegar líkaminn þarf á því að halda að viðhalda styrk sínum og sveigjaleika og til að fyrirbyggja stirðleika og liðverki. Konur sem eru meðvitaðar um heilsu eru sér- staklega duglegar að sækja þessa líkamsrækt, þær virðast gera sér mjög vel grein fyrir hve mikilvægt það er að huga bæði að líkamlegri og andlegri heilsu. Konur sem oft eru undir miklu álagi finna vel hvað jóga gerir þeim gott bæði til að styrkja og byggja upp líkamann og til að læra að slaka á og vinna gegn streitu. Karlmenn mættu vera duglegri að taka þátt en það kemur örugglega, það er bara að byrja og prófa. Jóga er alls ekki eingöngu konu- sport en karlmenn halda kannski og þessi mjúka, hæga og rólega lík- amsþjálfun sé einkum ætluð kon- um en það er algjör misskilningur. Karlmenn hafa ekki síður gott af jóga, þeir sem eru oft í miklu stres- si og hraða hafa einmitt gott af því að hægja á sér og slaka á. Góð lík- amsþjálfun þarf ekki bara að vera púl og hraði. Það tilheyrir því líka að byggja sig upp að læra að slaka á og hugsa um andlega líðan,“ seg- ir Hildur Björg Eydal. - Hvernig tengist jóga heilsunni, er það heilsubætandi? „Jóga er einstök aðferð til að byggja líkamann upp, minnka and- lega spennu og kyrra og róa hug- ann. Líkamsæfingarnar sem eru framkvæmdar hægt og rólega styrkja líkamann, losa um spennu í vöðvum, koma betra jafnvægi á taugakerfið, örva innri líffæri lík- amans og auka mjög sveigjanleika í liðum. Jóga sem er byggt á þúsunda ára gamalli reynslu hefur löngu sannað gildi sitt sem sú heilsurækt sem eykur bæði andlega og líkam- lega vellíðan og hefur því veruleg áhrif á að viðhalda góðri heilsu.“ - Það munu vera til margar teg- undir af jóga. Hvaða jóga kennir þú? „Ég kenni svokallað Hathajóga sem er einna algengast á Vestur- löndum. Hathajóga byggir á sér- stökum líkamsstöðum, önd- unaræfingum, slökun og hug- leiðslu. Ég legg sérstaklega mikla áherslu á að kenna góða slökun og hver tími hjá mér endar alltaf með langri slökun. Ég hef fengið ein- staklega góð prógrömm í þessu skyni í samráði við erlenda aðila sem vinna á svipuðum nótum og ég. Fólk í nútímasamfélögum þarf að læra og kunna að slaka á og finna innri hvíld.“ - Af hverju er svo mikilvægt að kunna að slaka á? „Í hraða dagsins gleymum við oft líkamanum en keyrum okkur áfram. Við hlustum oft ekki á þau merki sem líkaminn er að gefa okk- ur um að við séum undir of miklu álagi og það geti verið heilsu okk- ar hættulegt. Líkaminn bregst alltaf við of miklu álagi eða streitu eins og það er líka kallað. Streitu- viðbrögð eru mismunandi frá ein- um einstaklingi til annars. En al- geng streitueinkenni eru t.d. þrey- ta, spenna í líkamanum, magaverk- ir og svefntruflanir. Einnig er al- gengt að fólk verði önugt, óþolin- mótt og lítið þurfi til að koma við- komandi úr jafnvægi. Þegar fólk lærir djúpa slökun lærir það að höndla streitu betur, slökunin hefur áhrif á allt líkams- kerfið, vöðvar slaka á, djúp öndun róar hugann og manneskjan finnur velllíðan og innri ró. Rannsóknir sýna jákvæð áhrif slökunar koma m.a. fram í betra ónæmiskerfi og eykur hæfni mannsins til að lækna sig sjálfur.“ - Hvað þarf að stunda jóga oft til að það geri gagn. Er kannski nóg að mæta „stundum“? „Það er kannski ekki hægt að gefa neina eina uppskrift af því en allir finna að regluleg ástundun hefur mikil og góð áhrif. Þú finnur vellíðan bara þegar þú prófar jóga en ef þú stundar það tvisvar eða þrisvar í viku þá kemstu að raun um að þú nærð verulegum ár- angri. Allt sem þarf í byrjun er að gefa sér tíma, vera jákvæður og hafa lögun til að vilja lifa heilsu- samlegra lífi þar sem maður sjálf- ur er virkur þátttakandi til að bæta líkamlega sem andlega heilsu sína. Margir sem byrja að stunda jóga finna að þeir geta hreinlega ekki verið án þess.“ - Er jóga fyrir alla, geta allir lært jóga? „Já, það geta allir lært það. Sum- ir virðast hræddir um að jóga sé svo flókið og erfitt að þeir ráði ekki við það. Jóga sem ég kenni er alhliða og miðast við að allir geti verið með. Prógrammið er ólíkt frá skipti til skipti en margt er líka endurtekið þannig að fólk lærir að verða betra og betra að gera sum- ar æfingar. Hver og einn gerir bara eins og hann getur og á sínum hraða. Auðvitað er hægt að hafa prógrammið með erfiðum æfing- um en mér finnst aðalmarkmiðið að vera með prógram sem hentar öllum þó svo að ég geti haft prógrammið misþungt,“ segir Hild- ur Björg Eydal. Þeir sem vilja kynna sér starfssemina betur geta bæði far- ið inn á heimasíðuna www.jogaog- heilsa.com eða haft samband í síma 864-4476. ■ OKTÓBER 2005 11Vesturbæjarblaðið Félagsmiðstöðin Aflagranda 40: Jóga og heilsa fyrir alla Vesturbæjarblaðið vakti á því athygli í vor að umferðarhraði um Ægisíðuna væri allt of mikill. Það var eins og við manninn mælt, hafist var handa við að setja upp hraðahindranir. Margir íbúar við Ægisíðu eru mjög sáttir við þessa framkvæmd því hún hefur dreg- ið mjög úr umferðarhraðanum, sem mörgum stóð stuggur af. Svona hraðahindranir mætti víðar setja upp. Hraðahindranir á Ægisíðu

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.