Vesturbæjarblaðið - 01.10.2005, Qupperneq 14
OKTÓBER 200514 Vesturbæjarblaðið
Ý M I S Þ J Ó N U S T A
Hreinsum allan fatnað,
sængur, millidýnur og
gardínur á athyglisverðu verði.
EFNALAUGIN
DRÍFA
Hringbraut 119 • Rvk.
ÖLL ALMENN PRENTUN
SÍMI 561 1594
895 8298
HRÓLFSSKÁLAVÖR 14
NETFANG: NES@ISHOLF.IS
AUGLÝSINGASÍMI
511 1188
895 8298
Netfang:
borgarblod@simnet.is
Myndasagan eftir Þuríði Blævi Jóhannsdóttur
Ægisbúar með Hrekkjavöku-
útilegu við Úlfljótsvatn
Sumarið var afar gott hjá Ægis-
búum en starfssvæði þess er
Vesturbærinn og Seltjarnarnesið.
Starfsemi Ægisbúa er hafin en
þeir hafa starfsaðstöðu í íþrótta-
húsi Hagaskóla. Eins og síðastlið-
in sumur hefur skátafélagið Ægis-
búar rekið Útilífsskóla og var
hann vel sóttur í sumar. Krakkar í
Vesturbæ og af Seltjarnarnesinu
tóku þátt og skemmtu sér vel við
ýmiskonar verkefni, leiki, glens og
gaman. Krakkarnir fóru m.a. að
dorga við höfnina, í vettvangs-
ferðir í Öskjuhlíð og Elliðaárdal,
fóru í sund og einnar nætur úti-
legu við Úlfljótsvatn í tjaldi. Við
þökkum öllum þátttakendum fyrir
samveruna í sumar.
Hápunktur sumarsins var þegar
Ægisbúar fóru á Landsmót skáta
vikuna 19 til 26. júlí sl. Um 90 Æg-
isbúar fóru á landsmótið og
skemmtu sér sem aldrei fyrr. Blíð-
an var einstök á meðan mótinu
stóð, 20-30 stiga hiti allan tímann
og margt um að vera. Klifur, sig,
bátar, vatnasafarí, ýmsar þrautir
og leikir. Að sjálfsögðu kynntust
Ægisbúar fullt af öðrum skátum,
innlendum og erlendum. Farar-
stjóri Ægisbúa hafði lofað því að
éta hatt sinn ef að einn skáti gæti
sagt að honum þætti allt við
landsmótið leiðinlegt. Hatturinn
er enn á sínum stað, óétinn!
Starfið er hafið á ný í Ægisbú-
um með skemmtilegu fundarstarfi
og enn þá skemmtilegri útilegum.
Á fundum verður lögð áhersla á
leiki og gagnlega kunnáttu. Ylfing-
ar (8-9 ára) munu fara í spennandi
dagsferðir en skátar (10-12 ára)
fara í útilegur. Framundan eru
sveitarútilegur Sjórara, Hafmeyja
og Sefmeyja. Hápunkturinn verð-
ur helgina 21-23. október nk. þeg-
ar Hrekkjavökuútilegan verður
haldin við Úlfljótsvatn. Verða
nornir? Verða hrekkir? Vitað er
að Paddan mætir.
Óhætt er að hvetja alla hressa
krakka til að vera með skátaævin-
týrinu, það er aldrei of seint
að byrja. Skátastarfið er nokkuð
sem er varanlegt, fólk býr að því
alla tíð. ■
Hressir strákar í vagni í Útilífsskóla Ægisbúa.
MARTA GUÐJÓNSDÓTTIR
6. SÆTIÐ Kosningaskrifstofa Mörtu í Kirkjuhvoli,
Kirkjutorgi 4, þriðju hæð, er opin alla virka
daga frá klukkan 16.00 - 19.00.
Laugardaga og sunnudaga er opið frá
klukkan 14.00 - 18.00.
Kjósum Mörtu í prófkjöri sjálfstæðismanna
vegna borgarstjórnarkosninganna í vor.
Marta er traust, áræðin og framsækin.
Marta situr nú í borgarstjórnarflokki
Sjálfstæðisflokksins og hefur á kjörtíma-
bilinu setið í umhverfis-og heilbrigðisnefnd,
velferðarráði, hverfisráði Kjalarness og er
auk þess varamaður í menntaráði.
stuðningsmenn
Marta er formaður
Félags sjálfstæðismanna
í Nes-og Melahverfi.
Samkeppni um
ljósker í húsi OR
Ljóstæknifélag Íslands varð 50
ára 22. október 2004. Markmið
félagsins er að stuöla að betri
lýsingu og sjónskilyrðum og
veita almenna, hlutlausa fræðslu
um allt er varðar lýsingu og
sjónstarf. Félagið vinnur að
þessu markmiði sínu með því að
stuðla að flutningi erinda, um-
ræðum, útgáfu rita, námskeiðum
og sýningum eða með öðru móti
er henta þykir.
Í desembermánuði verður fé-
lagið með sýningu í húsi Orku-
veitu Reykjavíkur í sal sem heitir
100 gráður en sýningin tengist
samkeppni sem fer fram um ljós-
ker í öllum mögulegum útgáfum
og útfærslum. Markmiðið er að
auka áhuga folks á hönnun lýs-
ingar og ljósgjafa.
Sýningin hefst 3. desember
nk. En úrslit í samkeppninni
verða kynnt 14. janúar 2006.
Vegleg verðlaun eru í boði, en sá
sem hreppir 1. verðlaun fær 500
þúsund krónur. ■