Vesturbæjarblaðið - 01.11.2005, Qupperneq 1
10. tbl. 8. árg.
NÓVEMBER 2005Dreift ókeypis í öll hús í Vesturbæ og Miðborg
Eiðistorg • Opið virka daga 9-19 og laug. 10-14
JL húsið • Opið virka daga 9-21og helgar 10-21
Melhaga • Opið virka daga 9-18 og laug. 10-14
Austurstræti • Opið virka daga 10-18
Hrekkjavaka í Selinu
Nokkur þeirra barna sem voru á hrekkjavöku í Selinu sl. mánudag.
Frístundaheimilið Selið er í
Melaskóla. Á mánudaginn var
þar hrekkjavökudagur. Foreldra-
viðtöl voru í skólanum svo
krakkarnir höfðu tök á að mæta
klukkan 8:00 um morguninn.
Þeir sem vildu og gátu komu í
búningum og var mikið glatt á
hjalla. Mikið var af alls kyns kynja-
verum, vampírum, draugum,
ninja, skröttum og nornum en svo
voru auðvitað líka nokkuð af
spiderman, batman og prinsess-
um. Valdir voru flottustu og frum-
legustu búningarnir, farið var í rat-
leik um nágrennið, farið niður á
Tjörn og öndum og smáfuglum
gefið, lesnar draugasögur, hlustað
á draugahljóð og fleira skemmti-
legt. Dagurinn endaði svo á
draugamynd „Undir stiga“ og með
henni var borið fram popp og
djús.
Frístundaheimilið Selið í Mela-
skóla hefur umsjón með skipu-
lagðri tómstundadagskrá fyrir
börn í 1. - 4. bekk. Dagskrá hefst
við lok venjulegs skóladags og
henni lýkur kl. 17:00. Markmið
Selsins eru í tvíþætt.
Í fyrsta lagi að bjóða upp á
skipulagða og metnaðarfulla tóm-
stundadagskrá þar sem allir geta
fundið eitthvað við sitt hæfi og
hver einstaklingur fær að njóta
sín. Í öðru lagi er markmiðið að
bjóða foreldrum upp á skemmti-
legan og öruggan stað fyrir börn
þeirra að leika sér á. Eins að for-
eldrar geti verið vissir um að eftir-
lit með börnunum sé skilvirkt og
faglegt en þó á mannlegum nót-
um. Í Selinu leitast starfsfólk við
að leiðbeina börnunum í leikjum
og ýmiss konar verkefnum, þar
sem áhersla er lögð á samvinnu,
vinskap og skemmtun. Selið er því
góð viðbót fyrir skólastarfið, bæði
fyrir börnin og foreldra þeirra
sem geta treyst því að börnin
þeirra eru í öruggri umsjón við
skemmtilega iðju áður en þau eru
sótt og haldið er heim á leið. ■Marta – 6. sætið