Vesturbæjarblaðið - 01.11.2005, Síða 11

Vesturbæjarblaðið - 01.11.2005, Síða 11
Hvað varð um yður, Austur- strætisdætur, spurði Tómas Guð- mundsson. Og spurningin hefur aldrei verið jafn viðeigandi og nú að mati Gísla Marteins Baldurs- sonar. Þessi gata sé aðeins skugg- inn af sjálfri sér. „Myndin til vinstri hér var tekin fyrir nokkrum dögum af Austur- stræti á milli Lækjargötu og Póst- hússtrætis. Þarna er krot á götu- stöplum og veggjum, þarna eru tyggjóklessur og þarna er al- mennt óyndislegt að vera. Þarna er bannað að vera með hunda, meira að segja þótt fólk hafi þesa vini sína í ól. Við eigum að gera betur en þetta, og þeir sem segja að þetta ástand sé óviðráðanlegt, eitthvað náttúrulögmál, eiga ekki að vera í borgarstjórn. Þeir geta bara verið í einhverju öðru. Það er á ábyrgð borgaryfirvalda að þetta skuli vera svona. Þarna var einu sinni allt iðandi af lífi. Götu- markaðir, fólk sat í sólbaði á bekkjunum undir veggjum Út- vegsbankans og umhverfið var hreint og fallegt. Og síðast en ekki síst: Þarna var fólk!,“ segir Gísli Marteinn. „Austurstræti, ys og læti. Fólk á hlaupum í innkaupum. Fólk að tala, fólk í dvala og fólk sem ríkið þarf að ala,“ eins og Laddi kvað, svo vitnað sé í fleiri en einn lista- mann sem ort hefur um Austur- strætið. Þið sjáið á þessum mynd- um hvernig þetta var, og þótt gamla myndin til hægri sé vissu- lega tekin að sumarlagi en sú nýja um haust, þá er sáralítill munur á götunni núna á haustdögum, eða um sumar, enda varla nokkur gróður, fáir á ferli og veggjakrot og óhreinindi alveg jafn mikil.“ Samtök um að gera Aust- urstrætið aftur yndislegt „Við eigum að bindast samtök- um um að gera Austurstrætið aft- ur jafn yndislegt og það var hér á neðri myndinni. Þannig að í fram- tíðinni vakni endurminningar hjá fólki um þessa góðu götu, eins og Tómas sagði. Í ljóðinu Austur- stræti gerir Tómas einmitt versl- un og viðskipti að umtalsefni, því hann skildi að þessir þætti stuðla að mannlífi. Það voru mikil mis- tök hjá einum af þremur borgar- stjórum R-listans á þessu kjör- tímabili, að gefa út dánarvottorð fyrir verslun í miðborginni. Auð- vitað getur hún þrifist með mikl- um glæsibrag. Það sýnir til dæmis frábær verslun Eymundssonar. Við þurfum bara fleiri slíkar og við þurfum borgaryfirvöld sem gera versluninni kleift að blóm- stra með skynsamlegri bílastæða- stefnu, almennilegum þrifum á borginni og snjöllum hugmyndum sem kveikja líf. Ég enda þetta bara á borgarskáldinu og hvet ykkur til að lesa. Hver myndi kveða svona um Austurstrætið einsog það er í dag?“ Því lífið heldur áfram, Austurstræti, og önnur kynslóð tekur við af hinni, sem forðum daga fór með þys og læti og fagnaði og hló á gangstétt þinni. Svo jafnvel þó að þynnist okkar flokkur, við þurfum ekki heimsins vegna að kvíða. Því eilífðina munar minnst um okkur, - og munar ekki vitund um að bíða! Strætið mitt! Þú ert enn á æskuskeiði, órótt þitt skap og fullt af strákapörum. Siðferðið stundum einsog hurð á hjörum. Hverfult að börn þín skuldir sínar greiði. NÓVEMBER 2005 11Vesturbæjarblaðið Mikil breyting á Austurstræti á 30 árum www.hannabirna.is Kosningaskrifstofa stuðningsfólks Hönnu Birnu er í gamla Landssímahúsinu við Austurvöll. Sími 561 0900 - hannabirna@hannabirna.is HEIMSINS BESTA HÖFUÐBORG Ég vil vinna að því að gera Reykjavík að heimsins bestu höfuðborg. Með nýjum áherslum, auknu vali og öfl ugri sókn getum við tryggt fl eiri tækifæri fyrir Reykvíkinga og borgina okkar. Hanna Birna - 2. sætið! Við mælum þig út Opnunartími: Virka daga 9-21 og um helgar 10-21 JL húsinu Í apóteki Lyf & heilsu í JL húsinu við Hringbraut er boðið upp á þrenns konar mikilvægar mælingar sem segja til um líkamsástand þitt. Við mælum: • Blóðþrýsting • Blóðsykur • Blóðfitu (kólesteról) Pantaðu tíma í mælingu í síma 561 4600 Austurstæti í dag, ........... og 1974.

x

Vesturbæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.