Vesturbæjarblaðið - 01.11.2005, Qupperneq 13

Vesturbæjarblaðið - 01.11.2005, Qupperneq 13
Hanna Birna Kristjánsdóttir er 39 ára gömul, stjórnmálafræðing- ur með BA próf frá Háskóla Ís- lands og framhaldsnám í evrópsk- um og alþjóðlegum stjórnmálum frá Edinborgarháskóla. Hún hefur vakið athygli fyrir skeleggan mál- flutning og baráttugleði í stjórn- málum. Samhliða námi starfaði Hanna Birna m.a. við afgreiðslustörf, vann í Seðlabanka Íslands og fyrir Öryggismálanefnd. Að loknu námi starfaði hún um tíma fyrir menntamálaráðuneytið, en árið 1995 var hún ráðin framkvæmda- stjóri þingflokks Sjálfstæðis- manna. Frá árinu 1999 hefur hún verið aðstoðarframkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins og frá árinu 2002 borgarfulltrúi. Hanna Birna er gift Vilhjálmi Jens Árnasyni heimspekingi og eiga þau tvær dætur, Aðalheiði 7 ára og Theó- dóru Guðnýju eins árs. - Á hvað leggur þú helst áherslu varðandi borgarmálin? „Ég held að megináherslu minni í stjórnmálum verði best lýst þannig að ég vil auka val íbúa á öllum sviðum. Mig langar að búa til borg, þar sem afskipti hins op- inbera ráðast fyrst og síðast af því að tryggja fólki fjölbreytt val, en felast hvorki í því að velja fyrir fólk né hafa vit fyrir því. Ég treysti fólki best til að ráða eigin ráðum og vil þess vegna sjá aukið val í öllum málaflokkum , hvort sem um er að ræða fjölbreytt val í húsnæðismálum, fjölbreytt val í þjónustu við foreldra og börn eða fjölbreytt val fyrir eldri borgara varðandi þá mikilvægu þjónustu sem við eigum að veita þeim hópi. Því miður hefur Reykjavíkurlist- anum ekki tekist að nýta þau fjöl- mörgu tækifæri sem Reykjavík og Reykvíkingar hafa haft. Borgin hefur ekki vaxið sem skyldi, ekki hefur tekist að halda úti þeirri þjónustu sem hún á að sinna, auk þess sem skattar og álögur hafa hækkað verulega, líkt og skuldir borgarinnar. Nú er svo komið að skuldirnar eru í kringum 70 til 80 milljarðar króna, en þegar vinstri meirihlutinn tók við stjórn hér voru þessar skuldir aðeins um 4 milljarðar króna. Auðvitað er þetta algjörlega óviðunandi og segir kannski allt sem segja þarf um stjórn R-listans á borginni.“ - Lóðaskortur hefur verið í Reykjavík. Hvernig ætlar þú að leysa það? „Ég hef miklar áhyggjur af því hvernig haldið hefur verið á lóða- málum og skipulagsmálum al- mennt í Reykjavík. Ég hef áhyggj- ur af því, vegna þess að val íbúa varðandi ný byggingarsvæði og fjölbreyttar gerðir íbúða er afar takmarkað. Þetta hefur valdið því að fjölgun íbúa hér er í engu sam- ræmi við það sem er að gerast í nágrannasveitarfélögum okkar. Fólk flytur einfaldlega annað. Mér finnst þetta óskiljanleg stefna í sveitarfélagi þar sem landrými er nægt. Mér finnst að við eigum að tryggja fjölbreytt og nægilegt framboð lóða, jafnt undir sambýli og sérbýli. Við eigum að skipu- leggja ný hverfi með hliðsjón af því að þar geti fólk á ólíkum aldri og við ólíkar aðstæður búið.“ Vill tryggja nægt framboð lóða - Hvernig hyggjast sjálfstæðis- menn aðstoðað unga húsbyggjend- ur í borginni að koma sér þaki yfir höfuðið? „Með því að tryggja nægt fram- boð lóða og þar með íbúðahús- næðis, þannig að framboð fjöl- breyttra eigna standi þessum hópi til boða og verðið sé ekki sprengt upp vegna þeirrar skömmtunarstefnu sem hér hefur alltof lengi ríkt. Að auki skiptir ungt fólk eins og alla aðra að álög- ur séu sem lægstar, fasteigna- gjöldum sé stillt í hóf og útsvar eins lágt og mögulegt er.“ - Hvernig er komið fyrir Reykvík- ingum ef sjálfstæðismönnum mis- tekst að ná meirihluta í borginni? „Ég held að það skipti afar miklu máli fyrir borgina okkar og alla borgarbúa að áherslur Sjálf- stæðisflokksins verði ráðandi hér í Reykjavík að loknum næstu kosningum. Ég er sannfærð um að þá mun Reykjavík ná forystu á ný og sækja fram á öllum sviðum. Ég er einnig sannfærð um að það mun bæta lífsgæði allra Reykvík- inga og tryggja að tækifærin verði nýtt til fulls.“ Ekkert kosningabandalag Hanna Birna segir það alrangt að hún og Gísli Marteinn Baldurs- son, sem sækist eftir 1. sætinu séu í kosningabandalagi. Hún seg- ist eiga nóg með eigin baráttu og blanda sér ekki í slaginn um 1. sætið. Hún segist hlakka til sam- starfs við Gísla Martein og Vil- hjálm Vilhjálmsson, hvernig sem prófkjörið fari. ■ NÓVEMBER 2005 13Vesturbæjarblaðið Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarfulltrúi sækist eftir 2. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í komandi borgarstjórnarkosningunum: Treystir fólki til að ráða eigin ráðum Hanna Birna Kristjánsdóttir stjórnmálafræðingur. Svæðisskrifstofa Reykjaness leitar að starfsfólki til starfa á heimili fólks með fötlun að Sæbraut á Seltjarnarnesi. Um er að ræða vaktavinnu í starfshlutföllum frá 30 - 100%. Spennandi starf fyrir metnaðarfullt og áhugasamt starfsfólk. Boðið er upp á öflugan stuðning í starfi, þjálfun og námskeið. Nánari upplýsingar um starfið og önnur störf hjá Svæðisskrifstofu eru veittar á skrifstofutíma í síma 525-0900. Umsóknareyðublöð má nálgast á skrifstofunni að Fjarðargötu 13-15 í Hafnarfirði og á heimasíðu okkar www.smfr.is. Laus störf á Seltjarnarnesi !

x

Vesturbæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.