Vesturbæjarblaðið - 01.11.2005, Side 14

Vesturbæjarblaðið - 01.11.2005, Side 14
Marta Guðjónsdóttir sækist eft- ir 6. sætinu í prófkjöri sjálfstæð- ismanna þann 4. og 5. nóvember nk. og segist með góðri sam- visku geta fullyrt að hún sé bæði KR-ingur og Vesturbæingur. „,Fjölskyldan flutti úr Þingholt- unum vestur á Fálkagötu þegar ég var þriggja ára og þar ólumst við systkinin upp, m.a. í leikarablokk- inni frægu þar sem Halldór Lax- ness og Auður áttu íbúð, sem og Nína Tryggvadóttir myndlistar- kona. Halldór bjó fyrir ofan okkur og það kom fyrir að ganghurðin var opin hjá okkur en Halldór var á leiðinni upp í sína íbúð, - en svo þungt hugsi að hann og hundur- inn hans, Lubbi, voru komnir inn á stofugólf hjá okkur áður en nokkur vissi af. Halldór leit þá á okkur undrunaraugum, setti fram hökuna og sagði á sinn einstæða hátt: „Ó afsakið gott fólk, afsakið gott fólk. Lubbi minn komdu!’’ -og tók strikið fram á gang. Hann var alltaf eins og klipptur út úr tísku- blaði, elegant og háttvísin upp máluð. Á unglingsárunum bjuggu við á Meistaravöllunum en við hjónin hófum svo okkar búskap á Víði- melnum. Við höfum svo átt heima í Skerjafirðinum í sextán ár,“ segir Marta Guðjónsdóttir. „Við systurnar vorum í Mela- og Hagaskóla og æfðum bæði hand- bolta og körfubolta með KR. Mað- urinn minn, Kjartan Gunnar Kjart- ansson, er einnig KR-ingur, er einn höfunda 100 ára afmælisbók- arinnar, Fyrsta öldin, og sonur okkar, Vilhjálmur Andri, keppti með félaginu í mörg ár. Hann og dóttir okkar tilheyra þriðju kyn- slóð KR-inga í fjölskyldunni.“ - Munt þú kannski fyrst og fremst líta á þig sem málsvara Vesturbæj- arins og KR ef þú kemst að sem borgarfulltrúi? „Ég mun fyrst og fremst líta á mig sem málsvara Reykvíkinga. Enginn ætti að bjóða sig fram í borgarstjórn án þess að taka það starf mjög alvarlega fyrir alla Reykvíkinga. Ég hef reyndar lengi verið þeirrar skoðunar að samfé- lagið og fjölmiðlar hafi vanmetið þau pólitísku áhrif sem felast í borgarstjórn og borgarráði. Fimmtán borgarfulltrúar hafa feikilega mikil áhrif á nánasta um- hverfi Reykvíkinga og reyndar allra íbúa höfuðborgarsvæðisins, sem telja meira en helming þjóð- arinnar.’’ - Þýðir það að þú ætlir kannski að vanrækja Vesturbæinn? „Að sjálfsögðu ekki! Vesturbær- inn er, - og verður alla tíð, - minn heimur, í mjög veigamiklum skiln- ingi. Það væri rangt af mér, og ósanngjarnt af öðrum, að reyna að hafna þeirri staðreynd. Ég sé enga ástæðu til að spara krafta mína gagnvart KR og Vesturbæn- um, bara vegna þessa að ég er Vesturbæingur. Reyndar ætti það að vera mikilvægt málefni borgar- stjórnar að huga að og hlúa að öll- um eldri hverfum borgarinnar. Hverfi verða aldrei fullbyggð.“ - Hvar kreppir skóinn hjá KR og Vesturbænum? „KR er elsta knattspyrnufélag landsins og hefur um langt árabil verið eitt fjölmennasta æskulýðs- félag þjóðarinnar. Sú margra ára- tuga viðleitni félagsins að halda börnum og unglingum að upp- byggilegu íþróttastarfi verður seint fullmetin eða þökkuð. Sú var tíðin að KR var ætlað allt svæðið frá núverandi æfingasvæði félags- ins og norður að Eiðisgranda. Þá voru menn framsýnir. En við það var því miður ekki staðið. Kannski vegna þess að KR-ingar hafa ætíð verið duglegri en aðrir að bjarga sér sjálfir.’’ Nú þrengir hins vegar að að- stöðu KR-inga og því er brýnt að félaginu verði tryggð sem fyrst framtíðaraðstaða og er þá nær- tækast að bæta við SÍF-lóðinni sem er í aðeins 100 metra fjar- lægð frá KR-svæðinu. Einnig þarf að tryggja æfingasvæði fyrir félag- ið og í samráði við það á fleiri stöðum, og byggja upp góða sparkvelli sem víðast í Vestur- bænum. Við megum aldrei gleyma því að félagsstarf KR hefur verið, er og verður, ómetan- legt forvarnarstarf.’’ Undirgöng frá háskólasvæðinu - Er eitthvað fleira sem betur má fara? „Að sjálfsögðu. Ég hef t.d. lengi verið þeirrar skoðunar að huga þurfi að undirgöngum fyrir gang- andi vegfarendur frá háskóla- svæðinu austan Suðurgötu og vestur að Þjóðarbókhlöðunni, og eins frá Félagsstofnun stúdenta og norður yfir Hringbraut.“ - Þú hefur verið að viðra hug- myndir um Vesturbæjarlaugina, ekki satt? „Jú. Vesturbæjarlaugin hefur lengi gegnt mikilvægu hlutverki sem kennslulaug, æfingarlaug og almenningslaug. Hún hefur verið endurbætt en í þeim efnum má gera miklu betur. Ég hef lengi haft áhuga á því að Vesturbæjarlaug og umhverfi hennar verði gert að myndarlegri miðstöð fyrir al- menningsíþróttir í Vesturbænum. Þetta skemmtilega miðsvæði mætti gera að íþrótta- og úti- vistarperlu ef viljinn væri fyrir hendi.“ - Að lokum Marta, - ertu íhalds- söm á umhverfið og mótun þess? „Bæði og! Það er skylda okkar að búa í haginn fyrir komandi kynslóðir og gera slíkt af ítrustu framsýni á öll- um sviðum. En það merkir ekki að við eigum að afneita fortíðinni. Víða í Vesturbænum er að finna kennimörk um fyrri tíma búsetu- og atvinnuhætti. Ég vil varðveita þau og merkja eftir aðstæðum. Það yrði komandi kynslóðum ómetanleg verðmæti. Ég nefni t.d. grásleppuskúrana við Ægisíðu og dráttarbrautirnar þar sem eru elstu minjar um smábátaútgerð í Reykjavík. Þá mætti færa í upp- runalegt horf og koma þar upp margmiðlunarskjám með upplýs- ingum. Eins vil ég minnast á sjó- varnargarðinn niður af Reynis- stað í Skerjafirði sem nú er að hruni kominn. Ég hef unnið mjög eindregið að friðun og uppbygg- ingu þessara mannvirkja í um- hverfis- og heilbrigðisnefnd og mun halda því áfram. Vesturbær- inn á sér spennandi framtíð en hann á sér líka merka sögu.“ ■ Einn þeirra sem gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokks- ins nú um helgina er Ragnar Sær Ragnarsson, fyrrum sveitar- stjóri og leikskólakennari. Ragnar bjó lengi í Vesturbænum og rak hér um árabil einkarekna skólastofnun. Ragnar var spurður fyrst að því hvenær hann hefði fyrst flutt í Vesturbæinn. „Fyrsta íbúðin sem ég eignaðist var risíbúð við Garðastræti 6. Þá var ég 19 ára og sumarlaunin í álveri í Noregi dugðu fyrir útborg- un en afgangur kaupverðsins var tekinn að láni. Ég átti þessa íbúð í 6 ár en síðar bjó ég við Ásvalla- götuna.“ - En hvernig atvikaðist það að þú fórst að reka skólastofnun hérna og hvernig gekk sá rekstur? „Það var ljóst að það var erfitt fyrir ungan fjölskyldumann að lifa af á launum sem greidd voru leik- skólakennurum, ekkert ólíkt því sem það er í dag. Ég fór á fund þáverandi borgarstjóra Davíðs Oddssonar og lagði fyrir hann hugmynd um að ég seldi borginni þjónustu fyrir 22 börn, eða ræki fyrir borgina sambærilegt heimili og borgin væri að gera. Ég hefði að öðru leiti frjálsar hendur með reksturinn. Davíð tók ekki marga daga í að hugleiða málið og þrem mánuðum síðar var ég búin að kaupa húsnæði sem tók um mán- uð að gera upp. Galdurinn við reksturinn var að kennarar gætu sinnt fleiri börnum en almennt var hjá borginni og því voru sex börn á hvern kennara í heima- námi og tómstundum á Marargöt- unni á móti skólatímanum eða 24 börn á hverjum tíma. Þetta gekk í áratug eða þar til heilsdagsskól- inn byrjaði og börnin hófu öll skólagöngu að morgni. Ekki var vilji borgaryfirvalda að halda þessu gangandi eftir það og reka áframhaldandi tómstundaþjón- ustu fyrir börn á þessum stað og breyttist starfsemin í leikskóla. Á þeim tímamótum ákvað ég að gera nýja hluti og réð mig sem sveitarstjóra í Biskupstungur en aðrir héldu áfram rekstri leikskól- ans. Þessi tími var samt ógleyman- legur og ég held að börn þeirra foreldra sem nýttu þessa þjón- ustu hafi notið þess. Ætli það hafi ekki dvalið hjá mér börn frá um 300 heimilum í Vesturbænum á þessum 10 árum. Á þeim tíma sem ég rak skóla- dagheimilið bjó ég í 6 ár að Ásvallagötu 46. Það var gott að búa nálægt vinnustaðnum og um- ferðavandamál voru ekki til að- eins reiðhjól og rómantík. Það var oft farið niður í bæ á kaffihús og spjallað við vini og Vesturbæjar- sundlaugin var fastur liður þar sem stelpurnar sleiktu sólskinið á sumrin!“ - En þú komst eitthvað nálægt félagsmálum hér í Vesturbænum? „Árið 1997 tók ég við for- mennsku í íbúasamtökum Vestur- bæjar af Bryndísi Schram. Það voru fjölmargar hugmyndir uppi hjá stjórninni og við fórum yfir skipulagshugmyndir en megin- hugmyndin á þessum tíma var samt að koma upp hverfishúsi, smá aðstöðu fyrir þá íbúa sem hefðu áhuga á því að hittast með áhugamál sín og ditta að hlutum. Svo má nefna að ég rak á eigin vegum smíðavöll eitt sumar fyrir öll börn í Vesturbænum. Ég fékk bróður minn til að stýra því verk- efni sem gekk vel og var mjög vel sótt. Ég fékk leyfi til að hafa þetta á skólalóð Vesturbæjarskóla og var að vekja athygli á aðstöðu- leysi barna í hverfinu með þessu framtaki. Borgaryfirvöld sáu ekki þörfina á þessu og því var þetta aðeins starfrækt eitt sumar á þessum stað.“ Sveitarstjóri í 7 ár - En hvað kom til að þú fluttir aft- ur til borgarinnar og hvaða erindi telur þú þig eiga í prófkjörsslag- inn? „Það var nú aldrei ætlunin að gera sveitarstjórastarfið fyrir austan fjall að ævistarfi og við hjónin eigum bæði rætur okkar í Reykjavík. Auk þess fer að líða að því að dóttir okkar fari í fram- haldsskóla og þá þykir okkur betra að vera hér í höfuðborginni. Ég hef mikinn áhuga á sveitar- stjórnarmálum og tel mig búa yfir töluverðri þekkingu á því sviði. Ég var sveitarstjóri í Biskupstungna- hreppi og síðar Bláskógabyggð í sjö ár og nú þegar ég er fluttur aftur til Reykjavíkur þá upplifi ég umhverfið á annan hátt en áður og í ljósi reynslu minnar finnst mér ég sjá frekar það sem má bet- ur fara og hvaða lausna má leita,“ segir Ragnar Sær Ragnarsson. Opnuð hefur verið heimasíðan www.ragnarsaer.is og kosninga- skrifstofa að Ármúla 1. ■ NÓVEMBER 200514 Vesturbæjarblaðið KR-ingur í kosningaham: Marta Guðjónsdóttir sækir upp hægri kantinn og stefnir á 6. sætið Marta Guðjónsdóttir býr í Skerja- firðinum en á myndinni er hún stödd við Ægisíðuna. Hún segist halda mikið upp á gömlu grá- sleppuskúrana við Ægisíðuna og umhverfi þeirra. Þeir hafi sögu- lega skírskotun. Þá mætti færa í upprunalegt horf og koma þar upp margmiðlunarskjám með upplýsingum. Ragnar Sær var um tíma fomaður Íbúasamtaka Vesturbæjar: Vill skipa 5. sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins Ragnar Sær Ragnarsson. Dregið hvar í „opnunarleik“ Lyf & heilsu Eiðistorgi sem stóð yfir í september. Vinnigshafinn er Ragnar Marinósson og vann hann gjafabréf frá Iceland Express fyrir 30 þúsund krónur. Vantar þér góðar síðbuxur? Eiðistorgi 13, 2. hæð á torginu Sími 552 3970 • Seltjarnarnesi Opið mán - föst 14 - 18

x

Vesturbæjarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.