Vesturbæjarblaðið - 01.11.2005, Síða 16

Vesturbæjarblaðið - 01.11.2005, Síða 16
NÓVEMBER 200516 Vesturbæjarblaðið Bernskuminningar úr Vesturbænum Í fótbolta á Framnesvellinum og í róður með Pétri Hoffman Ég er fæddur þann 11. janúar 1940, vestast í Vesturbænum á Sólvallagötu 55, sem áður hét Sellandsstígur 5. Foreldrar mínir voru Vilhelm Steinsen, spari- sjóðsstjóri í Landsbanka Íslands til 50 ára og móðir mín Kristensa Marta Sigurgeirsdóttir. Afi minn í föðurætt var Halldór Steinsen, héraðslæknir í Ólafsvík og alþing- ismaður Snæfellinga og forseti efri deildar Alþingis og amma mín Guðrún Katrín Jónsdóttir var frá Borgargarði við Djúpavog. Afi minn og amma í móðurætt voru Sigurgeir Árnason, bóndi og sjó- maður frá Stapabæ á Hellnum og Steinunn Vigfúsdóttir, frá Arnar- stapa á Snæfellsnesi. Ég er því Snæfellingar í báðar ættir. Við vorum fjögur systkinin, Guðrún, Garðar, Anna Katrín og Örn. Systur mínar létust báðar kornungar, 23 ára og 30 ára. Ólst upp á Sólvallagötunni Ég ólst upp á Sólvallagötunni og bjó þar í rúmlega 21 ár. Í minn- ingunni voru þetta gjöful og dá- samleg ár og ég á margs að minn- ast frá þeim tíma. Aðalleiksvæði okkar félaganna á þessum tíma voru Framnesvöllurinn og Selsvörin og öll óbyggð svæði þar í kring. Ég man sérstaklega eftir Pétri Hoffman sem á tímabili bjó með hinni einu og sönnu Hunda-Mundu. Hann var fyrir margar sakir alveg einstakur „karakter“. Eitt sinn sem oftar fór ég með honum í róður, í góðu veðri, til að vitja grásleppuneta. Allt gekk glimrandi vel, en ekki þorði ég fyrir mitt litla líf að segja foreldrum mínum frá þessari sjó- ferð. Oft fórum við vinirnir líka með sem hjálparkokkar á ösku- haugana með Pétri til þess að finna verðmæta hluti að hans mati. Rotturnar hlupu allt í kring- um okkur, sem var auðvitað við- urstyggileg sjón. En svona var þetta bara í þá daga. Margir þekktir merkismenn áttu heima í námunda við okkar heimili. Má þar nefna, m.a. Stefán Jóhann Stefánsson, Eystein Jóns- son og Steingrím Steinþórsson, allt fyrrverandi ráðherra, Guð- laug Rósinkrans, þjóðleikhús- stjóra, Guðbrand í Ríkinu, Ófeig Ófeigsson, lækni og Þórð Eyjólfs- son hæstaréttardómara. Jón Björnsson, skipstjóra frá Ána- naustum, Magnús Georgsson, sundhallarstjóra á Seltjarnarnesi og bróður hans Guðmund Ge- orgsson, lækni og nú forstjóra að Keldum. Í minningunni ber þó hæst Sól- mund húsgagnasmið, sem bjó beint á móti heimili mínu, og var með stórt og mikið trésmíðaverk- stæði. Þar var skemmtilegt að koma fyrir ungan dreng. Ekki má heldur gleyma Stein- dóri, sem rak og átti Leigubíla- stöð Steindórs og var afi Geirs H. Haarde, utanríkisráðherra. Knattspyrnan í öndvegi Knattspyrnan var auðvitað númer eitt, tvö og þrjú hjá okkur félögunum. Við æfðum frá morgni til kvölds á sumrin og ekkert annað komst að. Eftir að við fórum að æfa hjá KR, þá var fyrst útiæfing í KR og þar á eftir var farið sem leið lá út á Fram- nesvöll og haldið áfram til myrk- urs. Það má því segja að uppi- staðan í 3. flokki KR-56 hafi flestallir alist upp á Framnesvell- inum. Við höfum síðan haldið saman öll þessi ár, sem eru tæp- lega 50. Tveir af félögum okkar úr KR-56 eru nú látnir. Leikfélagar mínir voru æði margir og góðir á þessum árum en sérstaklega vil ég þó nefna góðan æskuvin minn, Þórólf Beck, en við vorum allt í öllu á Framnesvellinum. Eins og allir vita varð Þórólfur einn af fyrstu atvinnuknattspyrnumönnum þjóðarinnar. Af góðum vini má ég síst gley- ma Daníel Benjamínssyni, oftast nefndur Dalli dómari, sem var bæði frábær knattspyrnumaður og dómari og Vali Páli Þórðar- syni, markmanni, besta vini mínum. Ég gekk í raðir Víkings þegar ég var 11 ára gamall og æfði og keppti með þeim í tvo mánuði. Lengri varð sú dvöl mín nú ekki. Síðar ákvað ég að ganga til liðs við KR, sem var mjög eðlilegt, þar sem ég bjó á yfirráðasvæði KR. Það var líka mitt gæfuspor. Þar hef ég síðan alið allan minn aldur. Sjálfblekungur afa konunnar Sumarið 1953 fór ég í sveit að Furubrekku í Staðarsveit, þá 13 ára gamall, og var þar í þrjá mán- uði. Þarna um sumarið kom í heimsókn eldri maður að nafni Guðmundur Pálsson, sem þá var farandprédikari á vegum Að- ventista. Hann tjaldaði rétt við bæinn á meðan hann dvaldi og prédikaði í sveitinni. Hjónin sem ég var hjá fengu síðar um sumar- ið bréf frá honum þar sem hann taldi sig hafa týnt forláta sjálf- blekung við tjaldstæðið og spurði hvort drengurinn gæti farið og at- hugað staðinn, ef hann fengi til þess tækifæri. Fundarlaun voru í boði. Pennann góða fann ég síðar og var hann sendur í pósti til gamla mannsins. Ég fékk síðan fundarlaunin í pósti sem voru fimmtíu krónur og voru miklir peningar í þá daga. Þessa skemmtilegu sögu finnst mér rétt að segja frá því að síðar kom í ljós að gamli maðurinn var afi konunnar minnar og ég á ennþá bréfið, sem hann sendi. Skemmti- leg tilviljun, eða hvað? Í landsleik gegn Dönum á Laugardalsvelli 1959. Á gamla Framnesvellinum sem fóstraði margan leikmann KR. Örn Steinsen fyrir miðju í aftari röð, og auðvitað með bolta. 40 árum síðar kom III flokkurinn saman, en það hefur hann reyndar gert oftar gegnum tíðina. Fjölskyldan fyrir um 25 árum síðan. III flokkur KR A 1956 sem hafði fáheyrða yfirburði það sumar. Unnu alla leikina sem þeir léku. Í Reykjavík- urmóti var markatalan 15:0, í Íslandsmóti 26:1 og í Haustmóti 12:3 eða alls í 11 leikjum 53:4. Liðið skoraði því að meðaltali nær 5 mörk í hverjum leik. Margir þessara stráka urðu síðan leikmenn í sigursælasta liði KR fyrr og síðar. Fremri röð f.v.: Gunnar Felixson, Björgólfur Guðmundsson, Úlfar Guðmundsson, Kristinn Jónsson, Þórólfur Beck og Magnús Jónsson. Aftari röð: Ólafur Stefánsson, Þorkell Jónsson, Gylfi Gunnars- son, Valur P. Þórðarson, Örn Steinsen, Skúli B. Ólafs og Sigurgeir Guðmannsson þjálfari.

x

Vesturbæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vesturbæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1114

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.