Vesturbæjarblaðið - 01.11.2005, Síða 19
KR-ingar hafa tekið þátt í þrem-
ur sundmótum í upphafi vetrar
þar sem árangurinn lofar góðu
um framhaldið í vetur. 15 sundfé-
lög tóku þátt í KR sundmóti sem
fram fór í Laugardalslaug 22. til
23. október sl. Mótið er ætlað
yngri sundmönnum sundfélag-
anna. Keppt var í 33 einstaklings-
greinum á mótinu í 3 aldursflokk-
um. Fjöldi keppenda var 265 og
sjaldan eða aldrei hafa verið jafn
margir í Laugardalslauginni og á
sunnudagsmorgninum, og létu
áhorfendur og keppendur vel í
sér heyra og hvöttu sitt fólk af
ákefð. Í flokki 10 ára og yngri voru
158 keppendur og fengu allir þátt-
tökupening í mótslok. 22 KR- ing-
ar tóku þátt í mótinu, og stóðu
þau sig vel eins og við var að bú-
ast, þar sem þau unnu til nokk-
urra verðlauna en öll bættu þau
tímana sína. Nærri 50 KR-foreldr-
ar komu að framkvæmd mótsins.
5 KR-met í Eyjum
Sprettmót ÍBV var haldið í Vest-
mannaeyjum 1. til 2. október sl. Á
mótinu kepptu 320 sundmenn frá
13 sundfélögum í 3 aldursflokk-
um. KR var með 22 keppendur á
mótinu. Árangurinn i flokki 12 ára
og yngri var sá besti sem KR hef-
ur náð á sprettmótinu til þessa,
en KR vann til 20 verðlauna af 66 í
þessum aldursflokki.
Methafar
Eftirtaldir settu KR aldurs-
flokkamet á mótinu:
Hrefna Hörn Leifsdóttir setti KR
telpnamet í 50 m baksundi á
33.91 sek.
Arna Margrét Ægisdóttir, KR
meyjamet í 100 m skriðsund á
tímanum 1.07.63 mín.
Arna Margrét Ægisdóttir KR
meyjamet í 100 m flugsundi á
tímanum 1.20.10 mín, 2.sæti
Tryggvi Gylfason KR sveinamet
50 m skriðsund á tímanum 31.52
sek.
Tryggvi Gylfason KR sveinamet
50 m flugsund á tímanum 36.73
sek.
Allir sundmenn 12 ára og yngri
voru að bæta sina fyrri tíma.
Flestir KR-ingar í 13 til 14 ára
flokki voru að bæta sig á mótinu.
KR meyjasveitin er mjög sterk í ár
og mun eflaust gera sterka atlögu
að KR metunum og jafnvel Ís-
landsmetum á næstu mánuðum.
Vinsæl skriðsundnám-
skeið
KR heldur reglulega skrið-
sundnáskeið fyrir fullorðna í sam-
starfi við Vesturbæjalaug. Nám-
skeið þessi eru mjög vinsæl en
hámarksfjöldi á hverju námskeiði
er 15 manns. Kennsla fer fram
tvisvar i viku, 5 vikur í senn.
Næsta námskeið hefst 8. nóvem-
ber nk. Hægt er að skrá sig á nám-
skeiðin hjá mads@claussen.dk
eða í síma 690-6500.
Viðurkenningar fyrir
ástundun
Sundmenn allra æfingahópa
hittast einu sinni í mánuði í KR-
heimilinu þar sem farið er yfir æf-
ingar mánaðarins og veittar við-
urkenningar fyrir ástundun síð-
asta mánaðar. Eftir afhendingu
viðurkenninga og pizzuveislu er
horft á bíómynd og farið í leiki hjá
yngstu hópunum.
Tvö KR-met á VÍS móti
Stór hluti sundmanna A-hóps
keppti á VÍS-mótinu 8. til 9. októ-
ber sl. þar sem 10 sundfélög tóku
þátt. Arna Margrét Ægisdóttir 12
ára setti KR meyja met i 200 m
fjórsundi þegar hún synti á 2 mín
og 49 sek. Eldra metið var 2 mín.
51 sek., sem Eva Hannesdóttir átti.
Inga Björg Jónasdóttir, 14 ára,
endurheimti KR telpnametið sitt i
200 m flugsundi á tímanum 2. mín.
45 sek. Eldra metið var 2 mín. 52
sek. Sem Eva María Gísladóttir átti.
Aðrir sundmenn KR voru flestir að
gera góða hluti á mótinu. ■
NÓVEMBER 2005 19Vesturbæjarblaðið
KR-SÍÐAN
Björgvin Barðdal, formaður
handknattleiksdeildar KR, og
Helga Þóra Þórarinsdóttir, þjón-
ustustjóri Sparisjóðs Reykjavíkur
og nágrennis á Seltjarnarnesi,
skrifuðu nýlega undir 3 ára samn-
ing í KR-heimilinu um að allir
flokkar KR spili í búningum
merktum SPRON. KR sendir í vet-
ur flokka til keppni í yngri flokk-
unum, og er þegar farið markvisst
að vinna að uppgangi handbolt-
ans hjá KR eftir að samstarfið við
Gróttu á Seltjarnarnesi gekk ekki
lengur upp.
Ennfremur verður haldið mót í
yngri flokkunum í vetur sem mun
bera heitið SPRON-mótið. Allir
iðkendur KR í handknattleik fá
óvænta gjöf frá SPRON. Enn er
tækifæri til þess að mæta á æfing-
ar í handboltanum og iðka þessa
skemmtilegu og ögrandi íþrótt. ■
SPRON styrkir
handboltann hjá KR
Björgvin Barðdal og Helga Jóna Þórarinsdóttir skrifa undir samstarfs-
samning handknattleiksdeildar KR og SPRON. Aftan við þau standa
KR-ingarnir Davíð Þór og Þórhildur Tinna.
KR-hnátur. Kristin Ferrel, Kolbrún Jónsdóttir, Guðrún Katrin og
Karen Jónasdóttir.
D-hópar. Verðlaunhafar fyrir ástundun.
Árlegt aðventukvöld
KR-kvenna verður haldið í
félagsheimili KR föstudaginn
2. desember nk., og opnar
húsið klukkan 20:00.
Gísli Marteinn Baldursson
verður ræðumaður kvöldsins
og Þóra H. Passauer
söngkona syngur fyrir
KR-konur og gesti þeirra.
Stjórnin hvetur allar
KR-konur til að fjölmenna og
sýna þar með samstöðu, en
ekki síður að taka með sér
gesti. ■
KR-konur með aðventukvöld
Góð byrjun á vetrarstarfi
sunddeildar KR
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins
í Reykjavík 4.- 5. nóv.
Bolli
Thoroddsen
www.bolli.is
Sæti 5
Verkfræðinemi HÍ
Formaður Heimdallar
Annar varaformaður SUS
Fulltrúi í borgarstjórnarflokki
Sjálfstæðisflokksins
Kosningaskrifstofan
opnar 22. október
kl. 16 í Borgartúni 6
Allir velkomnir