Vesturbæjarblaðið - 01.11.2007, Qupperneq 19
KR vann Grindavík fyrir
skömmu í körfuknattleik kvenna,
Iceland Expressdeildinni, 83:75
eftir að hafa átt í nokkru basli
framan af leiknum. KR stúlkur
hafa sýnt það í byrjun móts að
þær eru til alls líklegar og und-
irstrikuðu það með góðum sigri
gegn Grindavík.
Monique Martin var stigahæst
KR-inga með 34 stig, Hildur Sig-
urðardóttir með 20 stig og Sigrún
Ámundadóttir með 17 stig.
KR-konur komust svo að hlið
Haukum í annað sætið í Iceland
Express deild kvenna í körfuknatt-
leik sl. laugardag. Liðin mættust
þá í DHL-höllinni og lauk leiknum
með 88:81 sigri KR. Keflavík er sem
fyrr á toppnum, vann Fjölni 86:45.
Konurnar leika næst við Hamar
í Hveragerði og síðan 1. desember
við Fjölni í DHL-höllinni.
Lið KR í Iceland Expressdeild
karla leikur næst við Hamar í
Hveragerði 2. desember og svo
við Tindastól 13. desember í DHL-
höllinni.
19VesturbæjarblaðiðNÓVEMBER 2007
KR-SÍÐAN
GETRAUNANÚMER
KR ER 107
Körfuknattleikslið KV mætir Hetti
Knattspyrnufélag Vesturbæjar var stofnað 17.
september 2004 og framan af var eingöngu stund-
uð knattspyrna hjá félaginu. Félagið hefur tekið
þátt í Íslandsmótinu í knattspyrnu, 3. deild, undan-
farin nokkur sumur.
Körfuknattleiksdeild KV kemur til sögunnar haust-
ið 2007 þegar félagið skráði sig í bikarkeppni KKÍ og
utandeildina. Fyrsti leikur félagsins átti að vera gegn
liði Snæfells-B, en Hólmararnir sáu sér ekki fært að
mæta KV og því hélt KV áfram í 32 liða úrslit, án þess
að leika! Fyrsti sigur félagsins því í höfn, ekki amarleg
byrjun.
Næst mætir KV Hetti frá Egilsstöðum. Höttur var
síðast í úrvalsdeild tímabilið 2006 og hafa þess á
milli verið í toppbaráttu í fyrstu deildinni. Þrátt fyrir
það mæta KV-ingar óhræddir til leiks á Egilsstöðum
sunnudaginn 25. nóvember nk.
Framhaldið hjá KV er að spila í utandeild Breiða-
bliks í vetur, fara langt í bikarkeppninni og síðar skrá
liðið til þáttöku í annari deild karla. Liðið er að mestu
skipað ungum strákum úr Vesturbænum og af Sel-
tjarnarnesinu. Full ástæða er til að lofa þetta merka
átak og styðja þá af heilshug í þeim baráttuleik sem
þeir leika á sunnudaginn gegn Hetti. Áfram KV!
Frá leik KR og Grindavíkur í DHL-höllinni.
KR vann Grindavík og
Hauka í kvennakörfunni
Yfirmaður knattspyrnumála hjá KR
vill betri samsetningu leikmanna
KR hefur ráðið Rúnar Kristins-
son sem yfirmann Knattspyrnu-
mála (Director of football) hjá
KR. Knattspyrnuferill Rúnars
hefur verið glæsilegur bæði hjá
KR og erlendis þar sem hann spil-
aði sem atvinnumaður í Svíþjóð,
Noregi og Belgíu á árunum 1995
- 2007. Hann er jafnframt leikja-
hæsti leikmaður íslenska lands-
liðsins frá upphafi. Yfirmaður
Knattspyrnumála hefur umsjón
með öllu faglegu starfi knattspyrn-
unnar í KR.
Rúnar ber ábyrgð á ráðningu
allra þjálfara og aðstoðarmanna
KR, ásamt vali á þeim leikmönnum
meistaraflokks og KR-Akademíunn-
ar sem samið er við í samráði við
þjálfara og stjórn. Hann segir að
leikmenn þurfi að velja í ljósi þess
hvaða knattspyrnu eigi að leika
næsta leiktímabil. Dæmi séu þess
að góðir leikmenn hafi verið fengn-
ir til félagsins en þeir ekki nýst sem
skyldi vegna þess að þeir hafi ekki
fallið inn í það leikskipulag sem
þjálfarinn lagði upp með. Rúnar
mun einnig hafa yfirumsjón með
sérþjálfun einstakra leikmanna
meistaraflokks. Hann mun jafn-
framt stýra faglegu starfi KR-Aka-
demíunnar og annast alla tækni-
lega uppbygginu hennar og hafa
framkvæmd hennar með höndum,
s.s. einstaklingsæfingar fyrir leik-
menn og þróun þeirra.
Úlfar Hinriksson mun áfram vera
þjálfari KR-Akademíunnar og Einar
Sigurðsson einnig aðstoðarmaður
hans eins og undanfarið ár.
Rúnar segist vera ráðinn til þess
að vera Loga Ólafssyni þjálfara
og þjálfarateyminu hjá KR innan
handar og aðstoða þá við að skoða
leikmenn hjá félaginu og ekki síð-
ur að skoða leikmannamarkaðinn.
Rúnar mun einnig koma að einstak-
lingsþjálfun leikmanna, bæði hjá
meistaraflokki og hjá Akademíunni
og aðstoða Úlfar, þjálfara Akademí-
unnar, eftir þörfum.Starfið sé mjög
víðtækt, en að sama skapi áhuga-
vert.
“Ég mun einnig koma með fag-
lega ráðgjöf til allra yngra flokk-
anna og þjálfara þeirra og reyna að
veita þeim svolítið aðhald. Ég ætla
hins vegar ekki að stjórna þeim,
þeir eru ráðnir til að þjálfa viðkom-
andi flokka og hugsa um þá en ég
mun fylgjast með því hvað þeir eru
að gera, og svo geta þeir auðvitað
leitað til mín af fyrra bragði,” segir
Rúnar Kristinsson.
Grunntækni stundum
ábótavant
Rúnar segist hafa áhuga á að
koma inn í þjálfunina hjá KR atrið-
um sem honum finnst vera ábóta-
vant á Íslandi, og hægt er að bæta.
Rúnar nefnir í því sambandi grunn-
tækni og grunnsendingatækni, þ.e.
að geta gefið bolta á réttan stað í
einni snertingu. Liður í því í byrjun
er að ræða einslega við alla þjálfar-
ana og komast að því hvað þeir eru
að gera, hvernig þeir eru að nálg-
ast hlutina, hvað þeir eru að æfa
og hvernig. Rúnar segir KR hafa
getu til að bæta sig á ýmsum svið-
um. Hann hefur þegar haft æfingu
fyrir 2., 3. og 4. flokk og Akadem-
íuna sem hann hefur stjórnað til
þess að komast í betra og persónu-
legra samband við leikmennina.
- Finnst þér að það hefði átt að
vera búið að ráða fyrir löngu í þetta
starf sem þú ert nú að taka að þér?
“Já, það er ekki vafi. Þetta starf
þekkist víðast erlendis hjá knatt-
spyrnuþjóðum en það hefur þó þar
miðast fyrst og fremst við meistara-
flokk viðkomandi félags. Við göng-
um skrefinu lengra hér hjá KR, ég
er tengiliður allra þjálfara, stjórnar
og leikmanna og sé auk þess um að
fá leikmenn til félagsins í samstarfi
við þjálfara, þ.e. að þeir hafi þann
mannskap sem hann telur nauðsyn-
legt til að ná árangri. Ég vona líka
að ég geti komið með nýja vídd inn
í félagið.”
- Verður Akademían með svipuð-
um hætti og í fyrravetur?
“Við erum að skoða það mjög
gaumgæfilega. Þetta byrjaði mjög
vel í fyrra en svona margar æfingar
og svona snemma á morgnanna
gerir daginn mjög langan fyrir leik-
mennina sem fara eftir æfingu í
skólann. Að mínu mati var þetta of
mikið enda hef ég heyrt að þetta
hafi svolítið fjarað út þegar leið á
veturinn, var erfiðara fyrir krakk-
ana að fylgja þessari áætlun eftir
og fá það besta út úr æfingunum.
En við viljum gefa öllum sem við
teljum hafa hæfileika og getu til
þess að vera í Akademíunni tæki-
færi til þess, en kannski færri í
einu. Þannig getum við veitt hverj-
um og einum meiri athygli, betra
að vera með tvo 10 manna hópa en
einn 20 manna.”
Of margir líkir leikmenn
- KR var í fallbaráttu allt síðasta
sumar. Var þessi leikmannahópur
sem var að spila fyrir KR í sumar
ekki nógu góður eða nógu samstæð-
ur til þess að KR gæti náð árangri,
eða spiluðu einhver önnur atriði
þar inn í?
“Þessi hópur var alls ekki að
“funkera”, úrslitin segja okkur það
best. Það er eitthvað sem við vilj-
um forðast næsta sumar og þess
vegna erum við að leita að betri
samsetningu leikmanna fyrir sumar-
ið 2008. En það er oft erfitt að velja
karaktera og finna út hvað hentar,
en kannski næst betri árangur með
því að fylgjast mun betur með leikj-
um andstæðinganna.
Ég tel að á síðasta sumri höf-
um við KR-ingar verið með allt of
marga líka leikmenn og ekki bætti
úr skák að tímabilið fór mjög illa af
stað og leikmenn virkuðu þungir
og þreyttir og virtist skorta þenn-
an neista sem þarf til að ná toppá-
rangri. Ég var í þessu liði og ætla
ekki að skorast undan ábyrgð, ég
á jafn mikla sök á hvernig fór eins
og hver annar sem leik með félag-
inu. Það vantaði sterka og drífandi
karaktera.
Ég er bjartsýnn á að það gangi
á næsta sumri, við erum með
nýjan þjálfara þó svo Logi hafi tek-
ið við liðinu seinni hluta sumars en
hann gekk út frá því að nota eldri
og reyndari leikmenn í stað þeirra
yngri, en hann taldi þá eldri betur í
stakk búna til að bjarga félaginu frá
falli en hina yngri sem eru oft brot-
hættari auk þess að vera reynslu-
minni. Nú standa allir jafnir, hvort
sem þeir eru 18 ára eða 36 ára!,”
segir Rúnar Kristinsson, yfirmað-
ur knattspyrnumála hjá KR, sem
telur að kominn sé tími til að borg-
aryfirvöld útvegi félaginu frekari
aðstöðu til æfinga, enda sé félagið
miðstöð félagslífs í Vesturbænum
að flestra mati. Aukin æfingaað-
staða gæti t.d. verið á uppfyllingu
neðan Faxaskjóls eða Ægisíðu.
Rúnar Kristinsson ásamt Loga Ólafssyni þjálfara meistaraflokks karla
og Jónasi Guðna Sævarssyni er gengið var frá leikmannasamningi
þess síðastnefnda við KR.
KV á æfingu í Valsheimilinu, eða Vodafonehöll-
inni eins og þessi glæsilega bygging heitir.
Fyrir skömmu var gengið frá
nokkrum samningum við leik-
menn KR sem bæði eru að koma
til félagsins og við þá leikmenn
sem hafa framlengt samningi sín-
um við félagið.
Þeir leikmenn sem hafa fram-
lengt samningi sínum við KR eru:
Kristinn Magnússon út keppn-
istímabilið 2010, Guðmundur R
Gunnarsson út keppnistímabilið
2011, Stefán Logi Magnússon út
keppnistímabilið 2011 og Björgólf-
ur Hideaki Takefusa út keppnis-
tímabilið 2008.
Nýir leikmenn hjá félaginu eru:
Guðjón Baldvinsson sem kemur
frá Stjörnunni og skrifaði undir
samning út keppnistímabilið 2012,
Gunnar Örn Jónsson sem kemur
frá Breiðabliki og skrifaði undir
samning út keppnistímabilið 2011
og Grétar Sigfinnur Sigurðsson
(kominn heim), sem hefur verið
hjá Víkingi og skrifaði undir samn-
ing út keppnistímabilið 2001.
Í síðustu vikur var svo gengið
frá samningi við Jónas Guðna
Sævarsson sem hefur allan sinn
feril verið í Keflavík og leikið með
þeim 79 deildarleiki í efstu deild
auk 18 leikja í 1.deild og 14 bik-
arleikja. Hann var valinn í fyrsta
sinn í landsliðshópinn í fyrra fyrir
leik Íslands og Svíþjóðar og á að
baki landsleiki með U21, U19 og
U17.
Gamla kempan og varnarjaxl-
innn Þormóður Egilsson hefur ver-
ið ráðinn til félagsins til að sinna
séræfingum hjá meistaraflokknum
og KR-Akademíunni og sjá til þess
að leikmenn hafi KR blóð renn-
andi í æðum ..... allir sem einn!
Nýir leikmenn
til KR