Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.07.2015, Síða 4

Fréttatíminn - 10.07.2015, Síða 4
VEGAHANDBÓKIN ehf. • www.vegahandbokin.is Sundaborg 9 • 104 Reykjavík • Sími 562 2600 TÍMAMÓTAVERK Vegahandbókin í snjalltækin • Yfir 3.000 staðir • Þúsundir þjónustuaðila • Kort sem sýnir staðsetningu • Sía, notandi ræður hvaða þjónustumerki birtast • Leit, hægt að leita eftir stöðum og þjónustu • Bókamerki, hægt að geyma og safna stöðum • Tungumál, íslenska, enska og þýska Alltafí bílnum VERÐ KR. 5.490,- Hægt að skipta gamalli bók upp í nýja og fá 1.000,- kr. afslátt af þeirri nýju (aðeins í bókabúðum) Snjallsímaútgáfan fylgir bókinni  Vikan sem Var Ísland aldrei ofar Íslenska karla landsliðið í knatt spyrnu er í 23. sæti á nýj um heimslista FIFA sem kynntur var í gær. Ísland er 16. sæti af Evrópuþjóðum og hefur aldrei verið ofar. Þar með er ljóst að Ísland verður í öðrum styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla fyrir undankeppni HM 25. júlí næstkom- andi. Það þýðir að aðeins eitt lið verður í riðli okkar sem telst sterkara, samkvæmt styrkleikalistanum. Ísland fór upp um fjór- tán sæti á FIFA-listanum. 208.535 Íslendingar hafa farið til útlanda það sem af er ári, 23.700 fleiri en á sama tíma í fyrra. Júní og júlí eru vinsælustu ferða- mánuðir Íslendinga en í síðasta mánuði voru brottfarir Íslendinga um Leifsstöð tæplega 48 þúsund talsins, 6.600 fleiri í fyrra. 27.400.000 króna hagnaður var af rekstri skemmti- staðarins b5 í fyrra. Hættir á þingi Jón Þór Ólafsson, þingmaður Pírata, hyggst hætta þing- mennsku eftir tveggja ára setu. Ásta Helgadóttir tekur sæti hans í haust. Enn fleiri uppsagnir 307 starfs menn Land spít al ans hafa sagt starfi sínu lausu und an farn ar vik ur. Þar af eru 255 hjúkr un ar fræðing ar og 25 geisla- fræðing ar. Fjórir hafa dregið uppsagnir sínar til baka. 14 sóttu um starf forstjóra Íbúðalána- sjóðs, þrjár konur og ellefu karlar. Ráðið verður í stöðuna fyrir lok mánaðarins. Veður Föstudagur laugardagur sunnudagur Norðlæg átt, hvassast Nv-til. skýjað fyrir austaN og súld eN þurrt v-til. höfuðborgarsvæðið: AustLæg Átt og bJARtvIðRI. FREMuR MILt. Norðaustlæg átt, 5-13 m/s. skýjað og væta a-til, eN þurrt að kalla fyrir vestaN. höfuðborgarsvæðið: AustLæg Átt, skýJAð og ÁFRAM FREMuR MILt. NorðaustaN 3-10 m/s, skýjað um mest allt laNd, eN léttskýjað á vesturlaNdi. höfuðborgarsvæðið: AustLæg Átt, skýJAð MEð köFLuM og FREMuR HLýtt. Kuldapollur yfir hálendinu Helgin byrjar á kuldapolli yfir norðanverðu landinu og gæti allt eins verið slydda til fjalla aðfaranótt laugardags, en þegar líður helgina á hlýnar smám saman. Norð- austan og austanáttir eru ríkjandi, og úrkoma viðvarandi um landið austanvert, og einhverjir dropar falla líklega á suðurlandi, en helst má búast við þurrviðri á vesturlandi. Hlýjast verður í innsveitum bæði sunnan og vestanlands. 14 7 7 8 11 12 7 7 8 10 14 7 8 10 11 elín björk jónasdóttir vedurvaktin@vedurvaktin.is  leiga ný lög leyFa útleigu á einkabílnum Deilihagkerfið er komið til að vera Nú mega Íslendingar leigja út einkabílinn sinn og geta aukið þannig ráðstöfunartekjur sínar verulega. gunnar Haraldsson hagfræðingur segir stjórnvöld eiga að setja fleiri fordæmi til að auðvelda einstaklingum að nýta sér deilikerfið og sýna þannig nágrannalöndunum gott fordæmi. Að reyna að sporna við þróuninni þýði ekkert því þá verði starfsemin neðanjarðar. Deilihagkerfið sé komið til að vera. Þ að felast mikil tækifæri í deilihag-kerfinu og ég er handviss um það sé komið til að vera,“ segir Gunn- ar Haraldsson, forstöðumaður hagfræði- stofnunar Íslands, en nýlega samþykkti Alþingi ný lög sem leyfa einstaklingum að leigja út einkabílinn sinn. Nýju lögin skapa umgjörð utan um leigu einstak- linga á einkabílnum með milligöngu miðlunar og er fyrirkomulagið því svip- að og húsnæðismiðlanir sem hafa milli- göngu með útleigu á húsnæði einstak- linga, líkt og Airbnb. viðskiptakostnaður lækkar Gunnar segir deilihagkerfið í raun alltaf hafa verið til staðar en að með tilkomu netsins og samfélagsmiðla hafi nýir möguleikar opnast. „Við höfum alltaf verið að skiptast á hlutum, passað börn hvers annars og fengið lánaðan sykur og salt í næsta húsi. Að fólk leigi út her- bergi í híbýlum sínum til að drýgja tekjur sínar er líka eitthvað sem alltaf hefur við- gengst en í dag er það svo miklu auðveld- ara, þökk sé samfélagsmiðlum. Það sem gerist núna er að allur viðskiptakostnað- ur lækkar, kostnaðurinn við það að eiga í viðskiptum er mun lægri en áður og það er auðveldara að fara út í viðskipti. Það er það sem drífur þetta hagkerfi áfram.“ Þýðir ekkert að banna deilihag- kerfið Gunnar segir að líkja megi netbylting- unni við iðnbyltinguna. „Þessi nýju lög eru mjög jákvæðar fréttir fyrir okkur því þau auka tekjur heimilanna og þau eru umhverfisvæn. Í iðnbyltingunni var ráðist á nýju vélarnar sem tóku atvinnu frá fólki og í dag er sumstaðar reynt að koma í veg fyrir deilihagkerfið með reglu- verki og lagasetningum. En þetta kerfi er komið til að vera og ákveði stjórnvöld að leggja stein í götu þess þá mun það ein- faldlega verða neðanjarðar,“ segir Gunn- ar og tekur Uber leigubílaþjónustuna í París sem dæmi. Þar hyggjast stjórnvöld leggja þjónustuna af vegna þrýstings frá verkalýðsfélagi leigubílstjóra. „Svoleiðis aðgerðir þýða að starfsemin verður svört. Eina hættan, ef svo má kalla, sem gæti skapast af svona atvinnustarfsemi er að hún verði neðanjarðar, að ekki myndist skatttekjur og að réttindi fólks sem vinn- ur við starfsemina séu ekki virt. Lög sem heimila deilihagkerfi gera það að verkum að það gerist ekki og Ísland ætti að setja fleiri fordæmi og sýna nágrannalöndun- um fram á það að deilihagkerfið virkar.“ Að græða án tilkostnaðar Þeir sem annast milligöngu um viðskipti á einkabílnum bera ábyrgð á því að þau gangi faglega og heiðarlega fyrir sig, í samstarfi við tryggingafélög og Sam- göngustofnun, en allir bílar eru tryggðir eins og um bílaleigubíla væri að ræða. Heimilt er að leigja út tvo bíla og segir Sölvi Melax, framkvæmdastjóri Vik- ingCars, fyrstu íslensku einkabílaleig- unnar, útleigu á einkabílnum sem venju- lega standi óhreyfður allan daginn geta skapað fjölskyldum miklar aukatekjur án nokkurs tilkostnaðar. Fyrirtæki hans tekur 30% af tekjunum fyrir milligöng- una. „Við getum tekið dæmi af Ford Fiesta árgerð 2013 sem við leigðum út í 26 daga í ágúst í fyrra á 260 þúsund krónur og öðrum Ford Explorer árgerð 2007 sem er leigður núna út þessa vikuna á 180 þús krónur í 12 daga. Þetta er auðvitað frá- bært kerfi sem getur til dæmis skapað fjölskyldu tekjur á meðan hún fer í frí.“ halla harðardóttir halla@frettatiminn.is gunnar Haraldsson hagfræðingur bendir á að auk þess að gefa fjölskyldum tækifæri á að auka tekjur sínar með útleigu á einkabíln- um, muni fyrirkomu- lagið skapa meira pláss í borginni því bílarnir séu nýttir betur. Eins og er notum við einkabílinn í einn klukkutíma á dag að meðaltali. Mynd/Hari Ísland ætti að setja fleiri for- dæmi og sýna nágranna- löndunum fram á það að deilihagkerfið virkar. 4 fréttir Helgin 10.-12. júlí 2015

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.