Fréttatíminn - 10.07.2015, Side 6
E rlendir kvikmyndablaða-menn hafa síðustu daga fjallað um valið á kvikmynd
Baltasars Kormáks, Everest, sem
opnunarmynd á Kvikmyndahátíð
Feneyja í ár og bendir blaðamaður
The Guardian á að síðastliðin tvö
ár hafi opnunarmynd hátíðarinnar
hlotið hin eftirsóttu Óskarsverð-
laun sem besta myndin, Birdman í
fyrra og Gravity árið áður. Að auki
hafi Gravity hlotið Óskarinn fyrir
bestu leikstjórn og halað inn tekjur
upp á milljarð dollara af miðasölu.
Ásgrímur Sverrisson, ritstjóri
kvikmyndavefjarins Klapptrés,
segir að mynd Baltasars hafi allt
til brunns að bera sem Óskarsverð-
launamynd. „Auðvitað er erfitt að
spá fyrir um svona, en hann er með
toppleikarahóp og spennandi efni
sem margir eru mjög áhugasamir
um.“ Þá hefur því verið gert skóna
að myndin sé gæluverkefni fram-
leiðslufyrirtækisins Working Title,
eins og kvikmyndin The Theory of
Everything í fyrra sem hlaut jafn-
framt óskarstilnefningu sem besta
myndin.
Ásgrímur segir að líkt og bent
hafi verið á séu það Kvikmyndahá-
tíð Feneyja og Kvikmyndahátíðin í
Toronto sem helst sé horft til þegar
spáð sé í hvaða myndir muni hljóta
náð fyrir augum óskarstilnefninga-
nefndarinnar. Þó svo að það viti á
gott að vera valin sem opnunar-
mynd á þessum hátíðum sé það
engin trygging fyrir velgengni á
Óskarnum.
Spurður hvað óskarsverðlauna-
myndir verði að innihalda segir
Ásgrímur: „Þetta eru oft myndir
sem lýsa miklum mannraunum,
líkt og Everst gerir einmitt, eða
átökum persónu sem stríðir við
einhvers konar fötlun eða andlegt
ástand. Þessar myndir horfa oft á
mannlega reynslu út frá afgerandi
sjónarhorni. En þær þurfa einnig
að vera óaðfinnanlegar hvað varðar
leik, framsetningu og annað,” seg-
ir hann. „Svo skiptir máli hvað er
uppi á teningnum hverju sinni og
hvernig staðið er að kynningar-
málum. Þetta spilar allt saman og
síðan þarf að vera einhver x-faktor,“
segir hann.
Aðspurður segir hann mynd Balt-
asars tikka í öll þessi box. „Út frá
því sem ég hef séð ætti hún að vera
fyllilega gjaldgeng í þessa keppni
en ég hef ekki séð alla myndina
heldur aðeins stiklur úr henni og
lesið mér til um hana. Það verður
gaman að spá í þetta aftur þegar
maður er búinn að sjá hana alla,“
segir Ásgrímur.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Þ að eru óneitanlega spennandi hlutir að gerast í fornleifaupp-greftri á höfuðborgarsvæð-
inu. Vegna fyrirhugaðrar hótelbygg-
ingar við hornið á Lækjargötu og
Vonarstræti hefur staðið yfir forn-
leifauppgröftur síðan í maí. Áður en
hafist var handa við uppgröftinn var
vitað um bæinn Lækjarkot frá árinu
1799 og timburhús frá árinu 1887 en
nú hefur komið í ljós að byggingin
sem verið er að rannsaka er líklegast
skálabygging frá tímum landnáms.
Lengi hefur verið vitað að elsta byggð
Reykjavíkur liggur við Aðalstrætið en
þessi fundur við Lækjargötu hefur þó
komið skemmtilega á óvart.
Við framkvæmdir á Austurbakka
við höfnina í Reykjavík kom svo
gamli hafnargarðurinn frá fyrri hluta
20. aldar fyrr í vikunni. Garðurinn,
sem fór undir landfyllingu árið 1939,
hefur verið grafinn upp að hluta til og
er óvenju heillegur og fallegur að sjá
og hefur Minjastofnun gert þá kröfu
að hann fái að halda sér að hluta til á
núverandi stað. Það mun væntanlega
raska framkvæmdum á byggingar-
reitnum þar sem stendur til að reisa
verslunar-og íbúðarhúsnæði.
Á Seltjarnarnesi sést einnig
glitta í söguna því í vikunni hófst
uppgröftur í túni Móakots, þar sem
minjar fundust við gröft könnunar-
skurða í júní á byggingarreitnum
þar sem hjúkrunarheimili Seltjarn-
arness á að rísa. Minjarnar hafa
fundist á þremur svæðum á túninu
svo byggingarframkvæmdir munu
líka tefjast þar. -hh
ÚTSALA
REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR | REYKJAVÍK | AKUREYRI | ÍSAFJÖRÐUR
20-50%AFSLÁTTUR
25-35%
AFSLÁTTUR
STILLANLEG
RÚM
Verðdæmi
C&J stillanlegt heilsurúm með
infinity dýnu 2x80x200 cm.
Fullt verð kr. 558.000
ÚTSÖLUVERÐ KR. 390.600
25%
AFSLÁTTUR
GOLD – HEILSU-
RÚM
GOLD heilsurúm
Með Classic botni 160x200 cm.
ÚTSÖLUVERÐ KR. 114.675
Með Classic botni 180x200 cm.
ÚTSÖLUVERÐ KR. 123.675
Gafl ekki
innifalinn í verði
Faxafeni 5, Reykjavík • Sími 588 8477
Dalsbraut 1, Akureyri • Sími: 558 1100 og Skeiði 1, Ísafirði • Sími 456 4566
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 11-16
betrabak@betrabak.is • www.betrabak.is
20-50%
AFSLÁTTUR
SÆNGUR-
FATASETT
MARGAR GERÐIR
Fáanlegt
90x200 cm
120x200 cm
140x200 cm
160x200 cm
180x200 cm
Gamli hafnargarðurinn sem byggður
var á fyrri hluta 20. aldar kom í ljós í
vikunni í kjölfar byggingarframkvæmda
við Austurbakka. Minjastofnun hefur
gert þá kröfu að hluti garðsins, sem
fór undir landfyllingu árið 1939, fái að
halda sér. Mynd/Hari.
FornlEiFauppgröFtur nýir Fundir í rEykjavík
Gamli hafnargarðurinn fær að halda sér
Mynd á þessu númeri
MT
Everest, mynd Baltasars Kormáks, verður frumsýnd í september.
20870
kvikmyndir EvErst valin opnunarmynd á FEnEyjahátíðinni
Baltasar skrefi nær
óskarstilnefningu
Baltasar Kormákur er sagður skrefi nær Óskarnum eftir að mynd hans, Everest, var valin sem
opnunarmynd á Kvikmyndahátíð Feneyja. Síðastliðin tvö ár hafa opnunarmyndir hátíðarinnar
hlotið hinn eftirsótta Óskar sem besta myndin. Ásgrímur Sverrisson kvikmyndasérfræðingur
segir Everest hafa allt til brunns að bera sem verðlaunamynd.
Everest, mynd Baltasars Kormáks, verður frumsýnd í september.
6 fréttir Helgin 10.-12. júlí 2015