Fréttatíminn - 10.07.2015, Qupperneq 8
TónlisT Mikil innkoMa í kringuM iceland airwaves
Erlendir gestir eyða meira og gista lengur
Erlendir gestir eyddu 1.620 milljónum
króna í Reykjavík á Iceland Airways í
fyrra. Útflutningsskrifstofa íslenskrar
tónlistar, ÚTÓN, hefur líkt og síðast-
liðin fjögur ár gert könnun á eyðslu
gestanna en könnunin var fram-
kvæmd á síðustu hátíð og eru helstu
niðurstöður þær að gestir eyða meira
og gista lengur en síðustu ár.
Helstu niðurstöður fyrir hátíðina
2014 eru þær að ferða-, gisti- og mið-
akostnaður hefur í heild lækkað. Hins
vegar hefur erlendum gestum fjölgað
á milli ára og gistinætur eru fleiri.
Þetta skilaði sér í heildarneyslu sem
nam 1.620 milljónum króna, sem er
420 milljóna króna aukning frá árinu
áður.
„Einnig var reiknaður út tekju-
margfaldari,“ segir í tilkynningu
ÚTÓN, „en í hagfræði er hann not-
aður til að reikna út heildaráhrif þess
þegar ný innspýting fjármagns kemur
inn í lokað hagkerfi.“
„Þegar tekin eru til greina marg-
földunaráhrif eru heildartekjur af
erlendum gestum innan Reykjavík-
ur á bilinu 2,7 til tæplega 3 milljarð-
ar króna. Þessum fjármunum er að
mestu varið í veitingastaði og kaffi-
hús, þar á eftir í afþreyingu ýmis-
konar og í þriðja lagi í verslun. Tekið
skal fram að eyðsla utan höfuðborgar-
svæðisins og eyðsla íslenskra gesta er
ekki tekin með í reikninginn.“
HeilbrigðisMál eldri kona HandTekin vegna ölvunar
Árlega leita nokkrir tugir eldri borgara til SÁÁ og koma jafnvel í meðferð í fyrsta sinn. Breytt
áfengisneyslumenning og hækkandi lífaldur þjóðarinnar eru meðal skýringa á þessari þróun.
Hinsvegar fækkar fólki undir tvítugu sem leitar sér meðferðar.
l ögreglan þurfti að hafa af-skipti af eldri konu í Grafar-vogi um síðastliðna helgi og
handtaka hana vegna ölvunar. Hún
var færð á lögreglustöð og vistuð í
fangageymslu sökum ástands, að
því er fram kemur í tilkynningu frá
lögreglu.
Samkvæmt upplýsingum frá SÁÁ
fer þeim fjölgandi sem eru komnir
á efri ár og eiga við áfengisvanda-
mál að stríða. Þórarinn Tyrfings-
son, formaður SÁÁ, segir að árlega
komi nokkrir tugir eldri borgara í
sína fyrstu meðferð á Vog og séu
það breytingar sem átt hafi sér stað
undanfarin ár. „Til þess að skilja
þessa þróun verðum við að skoða
þetta í sögulegu samhengi,“ bendir
Þórarinn á. „Hér áður fyrir var stór
hluti þjóðarinnar bindindisfólk og
konur drukku yfirleitt alls ekki. Svo
voru til alkóhólistar sem urðu alkó-
hólistar snemma og drukku í aftur-
sætunum á amerískum drossíum.
Nú hefur þetta hins vegar breyst.
Stór hluti fólks notar áfengi og tel-
ur sig, sem er eflaust rétt, gera það
innan hófsemdarmarka. Það er ekki
séð að sú áfengisneysla skaði nokk-
urn og telja margir áfengisneyslu til
lífsgæða nú orðið,“ segir Þórarinn.
„Hins vegar getur fólk – og við
erum að sjá það gerast – orðið alkó-
hólistar seint á ævinni þótt það hafi
aldrei átt í vandræðum með áfengi á
sínum yngri árum. Þessu fólki hefur
farið fjölgandi á Vogi þótt breyting-
in sé ekki byltingarkennd. Á móti
sjáum við að fólki undir tvítugt er
að fækka. Það má því ef til vill segja
að „ungi frændinn“ komi síður á Vog
en „gamla frænkan“ frekar en áður,“
segir Þórarinn.
Hann bendir á að þjóðin sé að
eldast og nú séu fleiri fullorðn-
ir með góða heilsu að taka þátt í
þjóðfélaginu þótt þeir séu hættir að
vinna. „Fullorðið fólk ferðast meira
og er að njóta lífsins,“ bendir hann
á. Vogur hefur þurft að bregðast
við þessum breytingum og tók í
notkun nýja álmu fyrir um einu
og hálfu ári þar sem hægt er með
betra móti að taka á móti fullorðnu
fólki, jafnvel hreyfihömluðu, að
sögn Þórarins.
Sigríður Dögg Auðunsdóttir
sigridur@frettatiminn.is
Fleiri eldri borgarar
alkóhólistar en áður
Fólk getur orðið alkóhólistar seint á ævinni þótt það hafi aldrei átt í vandræðum með áfengi á sínum yngri árum. Þessu fólki
hefur farið fjölgandi á Vogi þótt breytingin sé ekki byltingarkennd.
Aukin eyðsla fylgir fleiri gestum á
Iceland Airwaves. Mynd/ÚTÓN
VW Passat
Comfortline Ecofuel
2.790.0002011
79
VW Jetta
1.6 AT 102 hö
Audi Q7
V8 4.2 TDI 313 hö
Skoda Superb
2.0 TDI AT
Audi A5
Sportb. 2.0 Quattro
1.390.000
5.650.000
3.890.000
7.990.000
2007
2007
2013
2011
115
168
50
110
Skoda Rapid
2.0 TDI 177 hö
2.550.0002013
44
Skoda Octavia
Combi TDI 1.6
VW Bjalla
Turbo Sport 200 hö
VW Passat
4Motion TDI AT
VW Passat Comfortline
2.0TDI 4Motion
2.920.000
5.950.000
4.990.000
1.790.000
2011
2014
2013
2006
83
6
127
38
Klettháls 13 · HeklaNotadirBilar.is · 590 5040
Útilega og
drif á öllum
Stór dagur
Raf / Bensín
Ekinn þús. km.
Myndir á vef
Dísil
Fjórhjóladrif
Metan & bensín
Sjálfskiptur
Beinskiptur
Rafmagnsbíll
30
8 fréttir Helgin 10.-12. júlí 2015