Fréttatíminn - 10.07.2015, Page 10
V ið spörum á því að mynda sem minnstan úrgang,“ segir Guðmundur B. Frið-
riksson hjá Umhverfis-og skipu-
lagsráði Reykjavíkur. „Um leið
og þú byrjar að flokka vel þá fer
sífellt minna af endurvinnanlegu
rusli í almennu tunnuna og þá er
hægt að láta losa hana sjaldnar
sem er ódýrara,“ segir Guðmund-
ur en með því að láta losa svörtu
tunnuna á 10 daga fresti í stað 20
daga lækkar sorphirðugjaldið úr
21.400 á ári í 10.800 kr á ári.
Sorp í Reykjavík hefur dregist
saman um 35% á 8 árum
Borgin tilkynnti nýlega að frá
og með 1. október næstkomandi
muni hún bjóða upp á græna tunnu
undir plastúrgang. Guðmundur
segir tunnuna verða losaða á 28
daga fresti og að ársgjaldið verði
líklega 4.800 kr. Verulega hefur
dregið úr blönduðum úrgangi frá
heimilum í Reykjavík á undanförn-
um árum eða úr 233 kg á íbúa árið
2006 í 149 kg á íbúa árið 2014 eða
um 36% og má rekja það beint til
aukinnar endurvinnslu. Búast má
við að magn plasts sem skilað er
til endurvinnslu margfaldist eftir
að græna tunnan verður tekin í
notkun.
Reykjavík eina sveitarfélagið
sem rukkar fyrir bláa tunnu
Reykjavík er fyrsta sveitarfélagið
til að bjóða upp á endurvinnslu-
tunnu undir plast en býður líkt
og önnur sveitarfélög höfuðborg-
arsvæðisins upp á bláa tunnu
undir pappír. Bláa tunnan er val
í Reykjavík og kostar íbúa 6.700
krónur aukalega á ári en í öðrum
sveitarfélögum höfuðborgar-
svæðisins er blá tunna sett við
öll heimili íbúum að endurgjalds-
lausu. Lægsta sorphirðugjaldið
fyrir 10 daga losun er í Garðabæ,
21.400 kr.
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
Ef þú hleypur 10 kílómetra notarðu
jafnmikla orku og þarf til að hafa kveikt
á einum ljósastaur í átta klukkustundir
Opið 10-17 alla daga til 30. ágúst.
Leiðarlýsingar á landsvirkjun.is/heimsoknir
Gagnvirkar orkusýningar Landsvirkjunar í Búrfelli
og Kröflu varpa ljósi á orkuna sem býr í öllum hlutum.
Landsvirkjun vinnur rafmagn úr endurnýjanlegum
orkugjöfum; vatnsafli, jarðvarma og vindi.
Líttu við í sumar.
Sorphirða reykjaVík fyrSta SVeitarfélagið Sem býður upp á endurVinnSlutunnu fyrir plaSt
Spörum á því
að endurvinna
Reykjavík er fyrsta sveitarfélagið til að bjóða upp á endur-
vinnslutunnu fyrir plast. Tunnan mun kosta íbúa um 4.800
kr. á ári sem bætist ofan á sorphirðugjaldið sem er 21.600 kr
fyrir losun á 10 daga fresti. Reykjavík er eina sveitarfélagið
sem býður upp á örari losun gegn vægara gjaldi en er líka
eina sveitarfélagið sem rukkar fyrir bláu tunnuna, sem er
endurgjaldslaus þjónusta í öðrum sveitarfélögum á höfuð-
borgarsvæðinu.
Garðabær
n Sorphirðugjald
21.400 kr.
Losun á 10 daga fresti.
n Blá tunna
0 kr.
Kópavogur
n Sorphirðugjald
24.500 kr.
Losun á 14 daga fresti.
n Blá tunna
0 kr.
Seltjarnarnes
n Sorphirðugjald
21.800 kr.
Losun á 10 daga fresti.
n Blá tunna
0 kr.
Mosfellsbær
n Sorphirðugjald
24.000 kr.
Losun á 10 daga fresti.
n Blá tunna
0 kr.
Reykjavík
n Sorphirðugjald
21.600 kr.
Losun á 10 daga fresti.
10.800 kr.
Losun á 20 daga fresti.
n Blá tunna
6.700 kr.
n Græn tunna
4.800 kr.
10 fréttir Helgin 10.-12. júlí 2015