Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.07.2015, Qupperneq 20

Fréttatíminn - 10.07.2015, Qupperneq 20
lÍs en ku ALPARNIR s Kúlutjöld - fjölskyldut jöld - gö ngutjöl d Tjaldasalur - verið velkom in Savana Junior (blár og rauður) Kuldaþol -15˚C Þyngd 0,95 kg Trekking (Petrol og Khaki) Kuldaþol -20˚C Þyngd 1,65 kg Micra (Grænn og blár) Kuldaþol -14˚C Þyngd 1 kg VERÐ KR 11.995,- VERÐ KR 13.995,- VERÐ KR 16.995,- FAXAFENI 8, 108 REYKJAVÍK • SÍMI 534 2727 • ALPARNIR@ALPARNIR.IS • WWW.ALPARNIR.IS 20% afsláttur af tjöldum í dag Spurð hvort Samfylkingunni hafi ekki tekist að hlusta á þjóðina mið- að við það litla fylgi sem flokkurinn hefur núna, svarar hún: „Nei, það er alveg rétt. Þetta er staða sem Sam- fylkingin þarf að vinna úr.“ Hún vill ekki dæma um það hvernig best sé fyrir flokkinn að gera það. „Ég er mjög meðvituð í því að horfa á Sam- fylkinguna utan frá núna og vil ekki dæma um það hvernig flokkurinn þarf að bregðast við,“ segir hún. Þórunn játar því að hjarta hennar slái enn fyrir Samfylkinguna. Hún var ein þeirra sem tók þátt í að stofna hana á sínum tíma, fyrst sem kosn- ingabandalag, en þá var Þórunn í Kvennalistanum. En hvar kviknaði pólitísk ástríða hennar? „Ég veit það ekki alveg. Hún er sennilega bara hluti af því að hafa áhuga á sam- félaginu og lífinu og öðru fólki. Og síðan áhugi á því að vita hvernig allt virkar. Mig dreymdi um það sem barn að fara til útlanda, ferðast og sjá heiminn. Ég hef gert töluvert af því og svo lærði ég stjórnmálafræði og alþjóðastjórnmál sem mér finnst alltaf skemmtilegust, þessi alþjóðlega sýn á það sem er að gerast,“ segir Þórunn. Ekki á leið í forsetaframboð Liggur þá ekki beinast við, miðað við reynslu hennar og áhugasvið, að bjóða sig fram til forseta? Þórunn skellir upp úr við þessa spurningu. „Nei,“ segir hún og hlær áfram. „En ég væri að ljúga ef ég segði þér að það hefði ekki ver- ið nefnt við mig. Sem ég sit hér þá finnst mér bjánalegt að segja þetta. En það er alltaf betra að segja bara satt. En nei, ég hef ekki áhuga. En ég hef mikinn áhuga á því að breyta stjórnskipan á Íslandi og að efla um- ræðu um gildi og tilgang forseta- embættisins. Ég held við ættum að reyna að gera það. Við ættum ef til „Ættleiðing er ferli sem er bæði strangt og erfitt. Það þarf og á að vera það. Ég var svo heppin að komast í gegnum þetta nálarauga en sem betur fer hafa margar aðrar einhleypar konur gert það líka. Á endanum snýst ættleiðing alltaf um barnið en ekki foreldrana, það þarf að minna á það í hvert skipti sem það er rætt. Ætt- leiðing snýst um að börn eignist fjölskyldu en ekki um að fullorðnir veðri foreldrar,“ segir Þórunn. Hér er Þórunn með dóttur sinni, Hrafnhildi Ming. vill að tala minna um hverjir eigi að gegna því og meira um það til hvers við höfum forseta lýðveldisins og hvaða hlutverki embættið gegnir í samfélaginu, bæði samfélagslega og pólitískt og hvaða breytingar við viljum gera á því,“ segir Þórunn. Ættleiddi barn ein Þórunn er móðir 13 ára stúlku sem hún ættleiddi ein frá Kína þegar hún var ársgömul. Ættleiðingin vakti áhuga margra á sínum tíma, ekki síst vegna þess að Þórunn var með- al fyrstu kvenna sem fengu að ætt- leiða barn án þess að vera með maka. Hún segist hafa fundið fyrir þessum áhuga, sér í lagi frá þeim sem fannst hún ef til vill hafa notið forréttinda vegna stöðu sinnar. „Það er svo sem skiljanlegt. Ættleiðing er hins vegar ferli sem er bæði strangt og erfitt. Það þarf og á að vera það. Ég var svo heppin að komast í gegnum þetta nál- arauga en sem betur fer hafa margar aðrar einhleypar konur gert það líka. Á endanum snýst ættleiðing alltaf um barnið en ekki foreldrana, það þarf að minna á það í hvert skipti sem það er rætt. Ættleiðing snýst um að börn eignist fjölskyldu en ekki um að full- orðnir verði foreldrar,“ segir hún. Þórunn er fædd og uppalin í Reykjavík, í Norðurmýri og Foss- vogi. Hún er ein þriggja systra og var fjölskyldan „ósköp venjuleg íslensk úthverfafjölskylda,“ eins og Þórunn orðar það. Þegar hún er spurð hvað hún taki sér fyrir hendur þegar hún er ekki að vinna svarar hún: „Ég hef alltaf unnið eins og skepna. Ég hef hinsvegar lært, kannski af biturri reynslu, að ef maður tekur sér ekki frí kemur það í bakið á manni. Auð- vitað er það þannig að þegar kona hefur um fleiri en sjálfa sig að hugsa verður hún náttúrlega að gjöra svo vel og forgangsraða rétt. Það hef ég líka lært. En það breytir því ekki að ég hef einhvern veginn sóst eftir því að vera í þannig umhverfi að vinna meira en minna og það er kannski bara af því það er skemmtilegt, það gefur mér svo mikið,“ segir hún. „Þegar ég er ekki í vinnunni þá er ég yfirleitt að slugsa við heimilsis- störfin af því mig langar frekar að lesa bók eða fara í bíó eða leikhús eða hitta vini mína. Svo reyni ég að sjálfsögðu að verja eins miklum tíma með dóttur minni og ég get. Við fengum okkur hund – eigum labrador sem er að verða tveggja ára. Sú góða tík hefur al- veg látið hafa fyrir sér síðan við feng- um hana en hún sér meðal annars til þess að ég fer út að ganga kvölds og morgna, sem er dásamlegt. Ég tala nú ekki um í svona sumri eins og núna. Það er ekki alltaf eins skemmtilegt þegar er myrkur og slydda en samt sem áður, það góða við að eiga hund er að hann setur manni skorður. Það þýðir ekki að fá sér hund og láta hann bara liggja,“ segir hún og hlær. Þórunn hefur, líkt og flestir ef ekki allir foreldrar ættleiddra barna á Ís- landi, talað um uppruna dóttur sinn- ar við hana frá því hún var ómálga barn. „Það er mjög mikilvægt og það gera allir sem betur fer. Dóttir mín er jákvæð fyrir uppruna sínum en það er misjafnt milli barna. Sum hafa mjög mikinn áhuga á uppruna sínum en önnur ekki. Við mæðgur fórum í nokkurs konar upprunaferð til Kína fyrir fjórum árum, sem var yndisleg. Það var mjög jákvæð og góð reynsla. Það var jafn gaman að fara í ferðina og koma heim aftur og vera kominn heim og vera búin að fara í þessa ferð saman. Þetta var eitthvað sem við urðum að gera og gaf okkur báðum mjög mikið,“ segir Þórunn. Sigríður Dögg Auðunsdóttir sigridur@frettatiminn.is 20 viðtal Helgin 10.-12. júlí 2015
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.