Fréttatíminn - 10.07.2015, Blaðsíða 24
Ég setti
það aldrei
fyrir mig að
búa svona
langt í burtu
og margir
hreinlega
gleymdu því
hvar ég bjó.
María Björk Ingva-
dóttir, framkvæmda-
og rekstrarstjóri
fjölmiðlafyrirtækisins
N4 á Akureyri, segir
dásamlegt að kynna
lífið í landinu fyrir
fólki. Þrátt fyrir að
hún hafi aðeins
starfað á N4 í tvö ár
þá tók hún sín fyrstu
skref í fjölmiðlum árið
1988, sem þula á RÚV.
Ritstjórn þáttarins Að norðan: Hilda Jana Gísladóttir, María Björk Ingvadóttir,
Snæfríður Ingadóttir og Birna Pétursdóttir. Myndir/Guðrún-Fótografía
María Björk Ingvadóttir er nýtekin við sem framkvæmda-
og rekstrarstjóri fjölmiðlafyrirtækisins N4 á Akureyri
en hún starfar þar jafnframt sem einn umsjónarmanna
þáttarins Að norðan. María Björk er búsett á Sauðárkróki
og þarf að keyra 116 kílómetra í vinnuna sem henni finnst
þó lítið mál. Hún tók sín fyrstu skref í fjölmiðlum sem þula
hjá Ríkissjónvarpinu fyrir 27 árum. Hún sótti upphaflega
um starfið til að geta keypt draumaíbúðina með mann-
inum sínum en fyrir var hún í tveimur öðrum störfum.
Aldrei hitt
neinn sem
er leiðinlegt
að tala við
V ið hjónin viljum bara búa þar sem er gott að búa og okkur líður vel. Síðan sækjum við
vinnuna þar sem hún er í það skiptið,“
segir María Björk Ingvadóttir, fram-
kvæmda- og rekstrarstjóri fjölmiðla-
fyrirtækisins N4 á Akureyri. María
Björk er búsett á Sauðárkróki og þarf
því að aka 116 kílómetra í vinnuna,
yfir Öxnadalsheiðina. „Við bjuggum í
Noregi þegar ég var í námi og maður-
inn minn vann hjá Ikea í Svíþjóð. Við
erum því vön ýmiss konar fyrirkomu-
lagi á sambúð og vinnu, og finnst
þetta ekki mikið mál,“ segir hún.
Hann hrópaði: Þetta er mamma!
María Björk tók við stöðu fram-
kvæmda- og rekstrarstjóra í júní,
og á sama tíma var tilkynnt um
ráðningu Hildu Jönu Gísladóttur
sem framkvæmda- og sjónvarps-
stjóra. Þær tvær stýra því N4 í dag.
María Björk var upphaflega ráðin til
N4 fyrir tveimur árum til að sinna
Norðurlandi vestra betur en gert
hafði verið þangað til en hún er einn
umsjónarmanna þáttarins Að Norð-
an. Til að nýta tímann til hins ítrasta
skipuleggjum við María símaviðtal
á meðan hún ekur til vinnu einn
morguninn, vitanlega með aðstoð
handfrjáls búnaðar, en á sumrin og
í góðri færð er hún um 75 mínútur á
leiðinni. Þó aðeins séu tvö ár síðan
hún byrjaði á N4 er ferill hennar í
fjölmiðlum öllu lengri, og hófst
raunar fyrir 27 árum.
„Við f luttum aftur til Íslands
þegar Ikea opnaði hér árið 1985 en
maðurinn minn starfaði þar sem út-
stillingastjóri. Ég fékk vinnu sem
félagsráðgjafi á Greiningar- og ráð-
gjafastöð ríkisins, og tók svo líka
að mér að skúra þar á kvöldin. Við
stefndum á að kaupa íbúð í litlu
byggingarsamvinnufélagi í Kópa-
vogi en verðbólgan kom í veg fyrir
þau markmið. Það var ekki nóg að
vera í tveimur vinnum og þegar ég
heyrði auglýst eftir þulum á RÚV
ákvað ég að sækja um. Ég lét engan
vita nema manninn minn og þegar
á hólminn var komið hafði um 90
öðrum þótt þetta fýsilegur kostur.
Það var úr að við vorum tvær ráðnar
og ég birtist fyrst á skjánum í des-
ember 1988, kornung konan,“ segir
María Björk og hlær við.
„Þulurnar lásu fyrstu kynn-
inguna í mynd og buðu börnin
velkomin að skjánum. Seinna um
kvöldið lásum við kynningu fyrir
fréttir án þess að vera í mynd og
ég heyrði af því seinna að mamma
hefði gengið framhjá sjónvarps-
skjánum og haft orð á því að þessi
þula væri með alveg eins rödd og
hún María Björk sín. Eftir fréttir
kom ég síðan í mynd og mamma og
pabbi misstu þá hreinlega andlitið
þegar þau sáu dóttur sína á skjánum
fyrir framan alþjóð. Það er stundum
smá púki í mér og þá geri ég and-
stætt við það sem fólk býst við að ég
geri. Maðurinn minn var svo forsjáll
að hann beið með myndavélina fyrir
framan sjónvarpið þegar ég kynnti
barnaefnið og náði mynd af strákun-
um okkar tveimur, sem þá voru 2ja
og 6 ára. Það er óborganlegt að sjá
andlitið á þeim þegar þeir sáum mig
í fyrsta sinn í sjónvarpinu og sá eldri
hrópaði: „Þetta er mamma!“ Nú eig-
um við líka dóttur sem er 15 ára og
henni fannst ekki vitund merkilegt
að sjá mig í sjónvarpinu þegar ég
byrjaði aftur. Nú eru allt aðrir tímar
og það hefur verið gaman að upplifa
þessar breytingar sem hafa átt sér
stað í fjölmiðlum,“ segir hún.
Útkall að sunnan
María Björk er fædd og uppalin á
Akureyri, maðurinn hennar er úr
Skagafirðinum og hún segir það
ekki auðvelt að halda Skagfirðingi
lengi f jarri heimaslóðum. „Við
ákváðum að f lytja norður tíma-
bundið en hér er ég enn. Ég hélt
áfram að starfa sem þula hjá Ríkis-
sjónvarpinu og ýmist flaug á milli
eða keyrði aðra hverja viku og við
tókum upp margar kynningar sam-
an. Þá byrjaði ég líka að vinna sem
fréttaritari, fyrst fyrir Útvarpið en
seinna líka fyrir Sjónvarpið. Þetta
voru þá tvær aðskildar fréttastofur
og mikil samkeppni þeirra á milli.
Það var afskaplega dýrmæt reynsla
að vinna fréttir fyrir þessa mjög
svo ólíku miðla. Mig vantaði aldrei
í vinnu og það kom jafnvel fyrir að
ég leysti af fyrir sunnan vegna veik-
inda hjá þeim sem bjuggu rétt hjá
Sjónvarpshúsinu. Ég setti það aldrei
fyrir mig að búa svona langt í burtu
og margir hreinlega gleymdu því
hvar ég bjó. Ég var auðvitað þrjá og
hálfan tíma á leiðinni en þetta gekk
alveg upp. Ég viðurkenni að þetta
var óvenjulegt og er kannski enn, en
ég held að það hafi hjálpað mikið til
að hafa búið úti og vanist á annars
konar fyrirkomulag.“
Stúdíóið bara notað í neyð
Hún söðlaði síðar um og stofnaði
Kaffi Krók á Sauðárkróki sem hún
rak í sjö ár. Tók síðan við sem yfir-
maður forvarna- og frístundamála
hjá sveitarfélaginu Skagafirði, það-
an fór hún til Samtaka sveitarfélaga
á Norðurlandi vestra þar sem sér-
þekking hennar lá á sviði ungs fólks
og Evrópusamstarfs, og loks bloss-
aði sjónvarpsbakterían upp aftur
þegar henni bauðst starf á N4.
„Eðli málsins samkvæmt var
stöðin mjög Akureyrarmiðuð til
að byrja með en í mínum huga er
þátturinn Að norðan um allt Norður-
land. N4 stendur fyrir höfuðáttirnar
fjórar. Þetta er sjónvarpsstöð lands-
byggðarinnar. Við erum þegar að
sinna Austurlandi og Suðurlandi,
og við stefnum á að loka hringnum
með því að sinna líka Vesturlandi
og Vestfjörðum. Upptökustúdíóið
okkar er bara notað í neyð. Við vilj-
um heimsækja fólk og kynnast því.
Þess vegna þurfum við að vera þar
sem fólkið er.“
María Björk segir starfið vera
mjög ólíkt starfi fréttaritara. „Það
gat verið erfitt að standa einn úti á
örkinni og segja erfiðar fréttir úr litla
samfélaginu sem maður sjálfur býr í.
Það er enn fólk sem er ósátt við mig
fyrir að hafa sagt sannleikann í frétt-
um. Að vera fréttamaður á Íslandi
getur verið mjög erfitt og nauðsyn-
legt að hafa sterk bein. Mér finnst
ekki síður mikilvægt að kynna líka
mannlífið og lífið í landinu fyrir fólki.
Fyrst og fremst hef ég áhuga á fólki.
Þetta starf hentar mér afskaplega vel
því ég hef gaman að tala við fók, og
held ég hafi aldrei hitt fólk sem mér
finnst leiðinlegt að tala við.“
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
24 viðtal Helgin 10.-12. júlí 2015
Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 krumma.is
LEIKTÆKI
LEIKFÖNG
REIÐHJÓLAGRINDUR
FRÁ
122.900kr
FRÁ
106.800kr
58.900kr
KÍKTU Á VEFVERSLUN
KRUMMA.IS