Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.07.2015, Page 26

Fréttatíminn - 10.07.2015, Page 26
Mér finnst að öll börn í öllum skól- um eigi að fá ukulele og læra á þau svona fimm til sex ára. Hugsaðu þér hvað það gætu komið margar Bjarkir og Sigurrósir út úr því! Alltaf með nokkrar byltingar í gangi Margrét Júlíana Sigurðardóttir er söngkona, tónskáld og framkvæmdastjóri tölvuleikjafyrirtækisins Rosamosa sem vinnur nú að því að klára tónlistartölvuleiksapp fyrir börn sem nefnist Music Box of Mussiland. Leikurinn hefur þegar vakið athygli og hlaut nú síðast styrk frá Nordic Games á stórri ráðstefnu í Svíþjóð. H ugmyndin að leiknum er alfarið upprunnin í höfði Margrétar Júlíönu, en hún segist þó ekki hafa hugmynd um hvers vegna hún lenti inn í tölvu- leikjasköpun. „Ég fékk þessa hugmynd og byrj- aði að vinna að henni árið 2011. Var bara ein í þessu lengst framan af en svo fór ég að fá minni styrki frá Nýsköpunarmiðstöð og gat ráðið teiknara í að hanna karakterana og ítalskan tæknistjóra sem býr á Íslandi til að vinna með mér í leikjaþróun- inni. Í gegnum hans komst ég í sam- band við Studio Evil á Ítalíu sem fóru að vinna þetta með mér. Í desember í fyrra fór ég í útvarpsviðtal um Mussi- kids og það skilaði mér nýjum sam- starfsaðila. Hilmar Þór Birgisson hafði verið að þróa tónlistarleiki út frá mastersverkefni sínu í tölvunarfræði og við ákváðum að slá okkur saman. Um áramótin fengum við svo stóran styrk frá Rannís, gátum ráðið starfs- fólk og nú er allt komið í fullan gang og vonandi verður fyrsti leikurinn til- búinn til markaðssetningar í haust.“ Margrét fer að hlæja þegar hún er spurð hvort hún sé tölvuleikjanörd og hristir höfuðið. „Nei, sko alls ekki. Mín reynsla á því sviði takmarkast nánast við Candy Crush, Angry Birds og Pacman og það síðasta sem mér hefði dottið í hug er að ég myndi lenda inn á þessa braut. Ég var að vinna með Hallfríði Ólafsdóttur sem skapaði Maxímús Músíkus en svo skildi okkar leiðir og ég ákvað að byrja upp á nýtt með mitt eigið konsept. Ég hef aldrei séð eftir þeirri ákvörðun því þetta er búið að vera hrikalega gaman og maður þarf að nýta allar heilastöðvar við sköpunina á þessum heimi.“ Annar af tveimur kommum í Garðabæ Margrét Júlíana stundaði klassískt söngnám í Royal Academy of Music í London en hún segist hafa komið mjög víða við á ferlinum. „Ég gæti alveg horft til baka og sagt að þetta hafi nú verið meira ruglið en í raun og veru má horfa á ferilinn eins og ég hafi verið í doktorsnámi fyrir ná- kvæmlega þetta verkefni. Ég var ein af þeim sem voru með sjónvarpsþáttinn Kolkrabbann á sínum tíma, 1998 til ’99, og þar á undan hafði ég verið eitt ár í námi í söngleikjadeild Konservatorísins í Vínarborg og verið í ýmsum hljómsveitum hér heima.“ Förum aðeins lengra aftur í tímann, hvaðan ertu? „Ég ólst upp í Garðabæ, pabbi var kennari og síðar skólastjóri og mamma hjúkrunarfræðingur en ég fæddist í Hafnarfirði, bjó þar fyrstu árin í kjallaranum hjá ömmu og afa. Amma kenndi mér að spila á píanó og gítar þegar ég var fjögurra ára og æskuárin ein- kenndust af því að ég hlustaði á Led Zeppelin með pabba og mömmu og fór svo upp til ömmu og afa og hlustaði á Berlínarfílharmóníuna með þeim þann- ig að tónlistarsmekkurinn varð strax ansi breiður. Amma var minn dyggasti hvetjandi í tónlistinni og fannst allt sem ég gerði alveg æðislegt, sem er auð- vitað stórkostleg hvatning fyrir ungan tónlistarmann.“ Spurð hvort hún hafi þá fengið dæmigert miðstétt- aruppeldi fer Margrét Júlíana aftur að hlæja. „Ekki alveg. Eins og ég sagði þá bjuggum við í Garða- bænum og sagt var að pabbi væri annar af tveimur kommum í bænum sem þótt ekki alls staðar fínt. Við liðum pínulítið fyrir það systkinin. Það var ekki fyrr en ég kom í MR sem ég fór að blómstra félags- lega. Þar fór það fyrst að skipta einhverju máli að ég kynni að spila á píanó og gæti dansað og leikið. Ég varð mjög virk í félagslífinu þar, tók þátt í Herranótt og naut þess alveg í botn.“ Það hefur samt ekki komið til greina að verða leik- kona? „Jú, mig dreymdi alltaf um að verða leikkona. Ég reyndar setti upp gestasýninguna The Big Cry í Þjóðleikhúsinu árið 2006, sýningu sem ég gerði úti í London og var multimediasýningu sem samanstóð af kvikmyndum og lifandi tónlistarflutningi. Ég held reyndar að enginn hafi skilið hvað ég var að gera þá, en myndu eflaust fleiri skilja það í dag. Þegar ég velti því fyrir mér í dag hvers vegna ég hafi ekki valið leik- listina þá held ég að ástæðan hafi verið sú að ég átti Ég var að vinna með Hallfríði Ólafsdóttur sem skapaði Max- ímús Músíkus en svo skildi okkar leiðir og ég ákvað að byrja upp á nýtt með mitt eigið, segir Margrét Júlíana Sigurðardóttir, söngkona, tónskáld og framkvæmda- stjóri tölvu- leikjafyrirtækis- ins Rosamosa sem vinnur nú að því að klára tónlistartölvu- leiksapp fyrir börn. Myndir/Hari Framhald á næstu opnu 26 viðtal Helgin 10.-12. júlí 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.