Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.07.2015, Side 31

Fréttatíminn - 10.07.2015, Side 31
um og pönnum, bollum, glösum og eldhúsáhöldum allskonar. Þangað kemur fólk líka í leit að gjöfum. Og þar sem fólk getur keypt sér ost og brauð er sjálfsagt að einhver selji samlokur, annar sushi, þriðji salöt, fjórði kebab og svo framvegis. Og þar sem þetta laðar að svanga er rakið að setja upp borð og stóla. Og úr því það eru komin borð og stól- ar má setja dúka á suma og kalla veitingastað og bjóða upp á flóknari rétti. Og þar sem öll aðstaða er fyr- ir hendi er kjörið að halda á nám- skeið á kvöldin og fræða fólk um osta, vín, eldamennsku, te, reyk- ingu eða súrsun. Svona hleður matarmarkaður- inn utan á sig. Þangað kemur fólk í ólíkum erindagjörðum en saman nær það að byggja upp þá lífrænu heild sem vellukkaður markaður þarf að vera til að geta dafnað. Nú- tíma matarmarkaðir eru því annað fyrirbrigði en vikulegir útimark- aðir með hrávöru, einkum græn- meti. Slíkir markaðir mótuðust af lífi fólks sem vann mikið og gerði stórinnkaup á laugardögum. Í dag byggjast markaðir í kringum fjöl- þættari þarfir. Matarmarkaður er flóttaleið Fólk hefur í dag ríka þörf fyrir að losna út úr framleiðslu-, dreifing- ar- og sölukerfi stórmarkaðanna, þar sem það vafrar um ganga án þess að hitta neinn sem ber ábyrgð á framboðinu. Matarmarkaðir eru byggðir upp af persónulegum sam- skiptum, viðskiptaháttum eins og tíðkuðust fyrir tíma stórmarkað- anna. Þar er allur matur afgreidd- ur af fólki. Og frá neytandanum liggur keðja frá kaupmanninum til bóndans eða smáframleiðandans. Keðja byggð á persónulega trausti er besta tryggingin sem fólk getur fengið fyrir að maturinn sem það kaupir sé hreinn, hollur og góður. Matareftirlit hefur reynst almenn- ingi jafn gagnlaust og fjármála- eftirlit. Þörf fólk fyrir forna viðskipta- hætti og mat sem byggir á hefðum frá því fyrir stórmarkaðina er raun- veruleg. Ekki bara vegna þess að umbreyting iðnfyrirtækja og stór- markaða á matnum fer ekki vel með heilbrigði fólks, fer ekki vel með dýrin eða náttúruna, veldur gríðar- legri sóun verðmæta og auðlinda og skilar fólki einhæfum og leiðinleg- um mat – heldur er þörfin raunveru- leg í þeim skilningi að hún mælist í hagkerfinu. Þar vex fátt hraðar en framleiðsla og sala á hefðbundnum, einföldum og hreinum mat. Matarmarkaðir spretta upp eins og gorkúlur í öllum borgum út um allan heim og hafa þar margháttar jákvæð áhrif á framleiðslu og sölu en ekki síður á mataræði fólks. Í sumum tilfellum hafa þeir verið settir á laggirnar af áhugasömum framleiðendum eða bændum. En al- gengast er að borgaryfirvöld komi þeim á legg með einum eða öðrum hætti; með beinni þátttöku, með ókeypis eða ódýru húsnæði, með afslætti af gjöldum, með kaupum á hentugu húsnæði, með breytingum á skipulagi eða einhverjum öðrum hætti. Fólk ætti því ekki að velta fyrir sér hvort Reykjavíkurborg ætti að setja upp matarmarkað heldur hvers vegna hún er ekki löngu búin að því eins og allar hinar borgirnar. Fiskmarkaður Reykjavík er eina hafnarborgin í okkar heimshluta sem hefur ekki fiskmarkað fyrir almenning á hafn- arbakkanum. Það myndi ekki kosta borgina mikið að kaupa kvóta og út- hluta smábátasjómönnum sem gera út frá Reykjavík gegn því að þeir seldu sjálfir fiskinn á hafnarbakk- anum. Það fyrirkomulag myndi styðja við umhverfis- og mannvæn- ar veiðar, auka lífið við höfnina og byggja upp sölu á nýjum fiski beint upp úr sjó. Gunnar Smári Egilsson gunnarsmari@frettatiminn.is Kauppatori er utandyra kauptorg á hafnarbakka í Helsinki. Eitt helsta túristastopp borgarinnar. Opið alla daga á sumrin en lokað á sunnudögum á vetrum. Finnskur matur í forgrunni en einnig túristavarningur; skinnhúfur og saunadót. Naschmarkt í Vín er kílómetri af því besta úr þýska eldhúsinu; alls- kyns veitingahús og allrahanda búðir fléttaðar saman. Þótt Naschmarkt sé ævagamall hefur hann verið endurnýj- aður í anda vellukkaðra nútímamarkaða sem þjónusta marga mismunandi hópa á ólíkan máta. Ferry Building Marketplace í San Franc- isco var breytt í markað fyrir þrettán árum. Snyrtilegt eins og Kringla; slátrarar, fiskkaupmenn, ostabúðir, eldhúsáhöld, grænmetissalar, kaffi- og tebúðir, kaffihús, veitingastaðir. Markaðurinn stendur fyrir námskeiðum og fræðslu. Vikulega eru haldnir stórir bændamarkaðir á Ferry Plaza fyrir utan bygginguna. Á örfáum árum hefur þessi markaður orðið eitt af helsta aðdráttar- afl borgarinnar fyrir túrista. Helgin 10.-12. júlí 2015 Veldu nýtt krydd í tilveruna Maggi býður nú þrjár nýjar kryddblöndur sem gefa uppáhaldsréttum fjölskyldunnar ómótstæðilegt bragð. Töfraðu fram einfalda og gómsæta rétti á augabragði. Kryddblanda fyrir lasanja 2 31 Stráið rifnum osti yfir réttinn. Bakið í 180°C heitum ofni í ca 30 mín. Látið réttinn standa í 5 mínútur áður en hann er borinn fram. Berið fram með salati. Steikið kjöthakkið. Bætið við vatni, léttmjólk og innihaldi pakkans. Látið krauma við lágan hita í 5 mín. Setjið til skiptis kjötsósuna og lasanjaplötur í smurt fat. Hafið sósu í neðsta og efsta laginu. 40 mín skammtar 4 FERSK VIÐBÓT400 g kjöthakk, magurt 10 g olía til steikingar 4 dl vatn 3 dl léttmjólk 8 lasanjaplötur 50 g rifinn ostur 2 31 Stráið rifnum osti yfir réttinn. Bakið í 180°C heitum ofni í ca 30 mín. Látið réttinn standa í 5 mínútur áður en hann er borinn fram. Berið fram með salati. Steikið kjöthakkið. Bætið við vatni, léttmjólk og innihaldi pakkans. Látið krauma við lágan hita í 5 mín. Setjið til skiptis kjötsósuna og lasanjaplötur í smurt fat. Hafið sósu í neðsta og efsta laginu. 40 mín skammtar 4 FERSK VIÐBÓT400 g kjöthakk, magurt 10 g olía til steikingar 4 dl vatn 3 dl léttmjólk 8 lasanjaplötur 50 g rifinn ostur Kryddblanda fyrir spaghettísósu 2 31 Berið fram með pasta og rifnum osti. Smakkast vel með salati. Steikið kjöthakkið. Bætið við vatni. Blandið innihaldi pakkans saman við hakkið og hrærið vel. Látið krauma í 10 mínútur. 15 mín skammtar 4 FERSK VIÐBÓT400 g kjöthakk 4 dl vatn 10 g olía til steikingar 200 g spaghettí, heilhveiti 2 31 Berið fram með pasta og rifnum osti. Smakkast vel með salati. Steikið kjöthakkið. Bætið við vatni. Blandið innihaldi pakkans saman við hakkið og hrærið vel. Látið krauma í 10 mínútur. 15 mín skammtar 4 FERSK VIÐBÓT400 g kjöthakk 4 dl vatn 10 g olía til steikingar 200 g spaghettí, heilhveiti Kryddblanda fyrir kjötbollur 2 31 20 mín skammtar 4 FERSK VIÐBÓT600 g kjöthakk, magurt 2 dl vatn 10 g olía til steikingar Grænmeti: 125 g rauð paprika, 200 g kúrbítur Kartöflumús: 600 g kartöflur 4 dl léttmjólk 2 g salt Setjið hakkið saman við og blandið vel. Mótið kjötbollur og steikið í 220°C heitum ofni í ca 15 mín. eða steikið á pönnu. Berið fram með heimalagaðri kartöflu- mús og gufusoðnu grænmeti. Hellið innihaldi pakkans út í vatn og látið taka sig í 5 mínútur. 2 31 20 mín skammtar 4 FERSK VIÐBÓT600 g kjöthakk, magurt 2 dl vatn 10 g olía til steikingar Grænmeti: 125 g rauð paprika, 200 g kúrbítur Kartöflumús: 600 g kartöflur 4 dl léttmjólk 2 g salt Setjið hakkið saman við og blandið vel. Mótið kjötbollur og steikið í 220°C heitum ofni í ca 15 mín. eða steikið á pönnu. Berið fram með heimalagaðri kartöflu- mús og gufusoðnu grænmeti. Hellið innihaldi pakkans út í vatn og látið taka sig í 5 mínútur. MEXICO, GUATEMALA & BELIZE Á SLÓÐIR MAYA INDÍÁNA 4. - 19. OKTÓBER Verð kr. 568.320.- Innifalið í verði: Flug, hótel, allar ferðir, skattar og íslenskur fararstjóri Við kynnumst stórkostlegri náttúru, dýralífi og hinum forna menningarheimi Maya indíána. Skoðum m.a. píramída, gamlar menningaborgir, syndum í sjónum við næst stærsta kóralrif heims og upplifum regnskóginn. Endum svo álúxus hóteli við Karabíska, þar sem allt er innifalið.

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.