Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.07.2015, Síða 35

Fréttatíminn - 10.07.2015, Síða 35
ferðalög 35Helgin 10.-12. júlí 2015 VIÐKVÆM HÚÐ? PRÓFAÐU ALLA LÍNUNA… ÞVOTTAEFNI | HREINLÆTISVÖRUR | HÚÐVÖRUR | ANDLITSLÍNA | BARNAVÖRUR ASTMA- OG OFNÆMISFÉLAG ÍSLANDS MÆLIR MEÐ VÖRUM FRÁ NEUTRAL …fyrir heimilið, fjölskylduna og þig. Neutral er sérstaklega þróað fyrir viðkvæma húð og inniheldur engin ilmefni, litarefni eða paraben – þannig hjálpar Neutral þér að vernda húð allra í fjölskyldunni. Skoðaðu allar Neutral vörurnar í næstu verslun eða kíktu á Neutral.is ÍS LE N SK A S IA .IS N AT 7 16 82 1 1/ 14 Leikföng, Andrésblöð og límonaði í miðbænum Bernhöfts Bazaar er nýr og skemmti- legur fjölþema útimarkaður sem haldinn verður á laugardögum í sumar á Bernhöftstorfu, horni Bankastrætis og Lækjargötu. Basarinn er sérstakur að því leyti að hann fær nýtt þema hverju sinni og myndar þannig fjöl- breytta dagskrá sem býður ávallt uppá eitthvað nýtt til að skoða, versla og njóta. „Þema morgundagsins eru leikföng og munu krakkar selja gömul leikföng, bækur, Andrésblöð, föt, leiktæki, límonaði og annað skemmtilegt á leik- fanga basarnum,“ segir Þórey Björk Halldórsdóttir, einn skipuleggjenda Bernhöfts Bazaar. Fyrirtæki og félagasamtök koma líka til með að selja, kynna og þjónusta gesti með fallegum vörum sem snúa að krökkum á öllum aldri. Auk sölubásanna verður margt skemmtilegt um að vera. Boðið verður upp á krakka jóga undir leiðsögn Pop Up Yoga Reykjavík og ís- bíllinn mun koma og hringja bjöllunni sinni. Einnig munu ungir rithöfundar lesa draugasögur úr bókinni sinni „Eitthvað illt á leiðinni er.“ Auk þess verður sérstakur Dýragarðs Bazaar á svæðinu þar sem krakkar geta komið með gamla bangsa og dúkkur til að gefa til barna í Afríku sem eiga engin mjúk dýr að leika við. „Búið er að fylla upp í öll rýmin á markaðnum, en sett verður upp tombólusvæði þar sem krakkar geta komið og sett niður teppi á gras- flötinni sunnan megin við markaðinn,“ segir Þórey. Markaðurinn verður opinn á morgun, laugardag, milli klukkan 13 og 17. mitt að mörkum fyrir félagið.“ Það vakti því mikla athygli fyrir nokkrum árum þeg- ar Fjalla-Steini fór sjö ferðir upp og niður Esjuna sama daginn og safnaði áheitum fyrir Ljósið. Árið eftir gekk hann á 365 fjöll til að vekja athygli á starfsemi Ljóssins og bætti um betur ári seinna þegar hann gekk á 400 fjöll á einu ári. Styrkir Félag krabbameinssjúkra barna Bókin Íslensk bæjarfjöll kom út um síð- ustu jól og með henni langaði Steina að minna á hvað útivist og útivera gerir fólki gott. „Á ferðum mínum um landið átti ég erfitt með að finna upplýsingar um ein- kennisfjall hvers bæjar og því kom ég af stað kosningu um bæjarfjall í hverjum bæ, og afraksturinn má finna í bókinni,“ segir Steini. „Sums staðar urðu reyndar fleiri en eitt bæjarfjall fyrir valinu þar sem bæjarbúar komu sér ekki saman um eitt ákveðið fjall, og því eru fleiri fjöll en bæir í bókinni.“ Í bókinni má finna 90 fjöll og það tók Steina um tvö ár að ganga á þau öll, ásamt góðu fylgdarliði. Hann ákvað að halda áfram að nýta útivistina til að láta gott af sér leiða og í þetta skiptið ákvað hann að láta höfundarlaun sín af bókinni renna til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna. „Þar er unnið mjög gott starf og þetta er því verðugt málefni,“ segir Steini. Nýverið afhenti hann félaginu fyrstu ávísunina, að upphæð 500.000 krónur. Fjallgöngur fyrir alla Í bókinni er sagt frá hverju fjalli fyrir sig, gönguleiðum og helstu einkennum. Upp- lýsingar um erfiðleikastig fylgja hverri gönguleið. „Flest öll fjöllin eru við hæfi allra. Eina fjallið sem ég myndi ráðleggja fólki að hafa einhvern vanan með sér er Kirkjufell í Grundarfirði, önnur fjöll á landinu eru aðgengileg öllum,“ segir Steini. Hann er staddur á Tenerife um þessar mundir þar sem hann lauk ný- verið við að klífa hæsta fjallið þar, þann- ig fjallamennskan er aldrei langt undan. Fjalla-Steini mun svo halda áfram sam- vinnu sinni við Ljósið í haust þegar fé- lagið fagnar 10 ára afmæli. „Í nóvember fer fram ljósaganga þar sem við munum fylkja liði upp Esjuna og þegar tekur að rökkva kveikja allir á ljósi sem þeir hafa meðferðis og mynda þannig ljósafoss nið- ur hlíðar fjallsins.“ Erla María Markúsdóttir erlamaria@frettatiminn.is Fjalla- Steini hefur undanfarin ár gengið á fjöll til styrktar Ljósinu og Styrktarfélagi krabbameins- sjúkra barna. Með göngum sínum vill hann minna fólk á hvað útivist og útivera gerir okkur öllum gott. Mynd/ Jóhann Smári.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.