Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.07.2015, Blaðsíða 36

Fréttatíminn - 10.07.2015, Blaðsíða 36
36 ferðalög Helgin 10.-12. júlí 2015 Ferðamenn í eigin borg Sumarið er tíminn til að njóta lífsins með sínum nánustu og upplifa nýja hluti. Nú þegar sumarfrí í skólum og leikskólum standa sem hæst er tilvalið fyrir þá sem hafa fengið nóg af tjaldútilegum og bílferðum í bili að kynna sér hvað borgin okkar hefur upp á að bjóða. B orgarpassinn, eða Reykjavík City Card, veitir aðgang í strætó og sund, auk aðgangs að söfnum Reykjavíkurborgar, svo sem Árbæjarsafni og Þjóðminja- safninu. Passinn gildir einnig sem aðgöngumiði í Viðeyjarferjuna og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn. Svo virðist sem passinn sé eingöngu ætlaður fyrir ferðamenn, en í raun er þetta vannýtt tækifæri fyrir Ís- lendinga til að gerast ferðamenn í eigin borg. Því kynntust þau Sigrún Helga Davíðsdóttir og Elías Kjart- an Bjarnason fyrir nokkru, en þeim áskotnaðist tveggja daga passi fyrir tvo fullorða og tvö börn. Pikknikk og fjöruferð í Viðey „Við ákváðum að bjóða frænku minni sem er fimm ára og frænda Elíasar sem er sjö ára að gista hjá okkur heila helgi og vorum að leita að einhverju skemmtilegu að gera sem hentaði þessum aldri og okkur í leiðinni. Stjúpmamma mín gaf mér þá borgarpassann, sem hún hafði unnið í happdrætti. Ég hafði ekki heyrt af þessum passa áður og hann kom því skemmtilega á óvart.“ Sigrún segir að það hafi verið smá púsluspil að raða saman því sem þau vildu gera. „Við ákváðum á endanum að velja staði sem eru nálægt hver öðrum. Við fórum í Viðey, Árbæjar- safn og Árbæjarlaug fyrri daginn og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og Laugardalslaugina seinni daginn. Við hefðum eiginlega þurft einn dag í viðbót til að ná miðbænum líka.“ Sigrún segir að helgin hafi ver- ið besta skemmtun og erfitt sé að velja hvað stóð upp úr. „Samveran var án efa skemmtilegust. En í Við- ey fórum við í fjöruferð, pikknikk og æfðum okkar að blása í strá. Svo var mikið sport að fara í ferj- una sjálfa. Við skemmtum okkur öll ótrúlega vel saman og lýsti Grétar Máni helginni sem bestu helgi lífs síns,“ segir Sigrún. Hægt er að velja hversu lengi passinn gildir, allt frá einum sólarhring upp í þrjá, og eru verðin eftir því. Þrír dagar fyrir full- orðna kosta til að mynda 4.900 og 3.000 krónur fyrir börn 6-18 ára. „Passinn er fljótur að borga sig upp þannig þetta er vel þess virði og sniðug lausn fyrir fjölskyldur eða vinahópa sem eru að leita eftir skemmtun í borginni og nágrenni hennar,“ segir Sigrún. Gestapassi fyrir innlenda og erlenda gesti Drífa Magnúsdóttir, upplýsinga- fulltrúi hjá Visit Reykjavík, segir að passinn sé hugsaður fyrir gesti Reykjavíkur, hvort sem þeir eru erlendir eða innlendir. „Einhverra hluta vegna hefur ekki gengið neitt sérstaklega vel að markaðs- setja gestapassann fyrir innan- landsmarkað, sama hvað við höfum reynt. En ég veit að þeir Íslending- ar sem hafa nýtt sér passann hafa skemmt sér konunglega, sérstak- lega börnin,“ segir Drífa, en hún segir jafnframt að passi af þessu tagi sé vel þekktur í öðrum borgum. „Passinn er auðvitað tilvalinn fyrir fjölskyldufólk sem er í sumarfríi og vill finna sér eitthvað skemmtilegt að gera í borginni okkar,“ segir Drífa. Borgarpassinn er fáanlegur á öllum helstu ferðamannastöðum í borginni og það er því um að gera að reima á sig túristaskóna og gerast ferðamaður í eigin höfuðborg. Erla María Markúsdóttir erlamaria@frettatiminn.is Elías Kjartan og Sigrún Helga buðu Lovísu og Grétari Mána, frændsystkinum sínum, í borgarferð um Reykjavík fyrir skömmu þegar þeim áskotnaðist borgarpassi heila helgi. Kassabíllinn var fyrirtaks ferðamáti um Árbæjarsafnið. Í Viðey lærðu Lovísa og Grétar Máni meðal annars að blása í strá. N M 68 96 8 Siminn.is/spotify POTTURINN HEFUR ALDREI HLJÓMAÐ EINS VEL VATNSHELDAR TÖSKUR OG SJÓPOKAR margar gerðir, stærðir og l itir í húsi Hirzlunnar, Smiðsbúð 6, Garðabæ, s ími : 564 5040 Duffle Big Zip Rack-Pack X-tremer PS 10 Moto dry bag PD 350 Sölustaðir: Útilíf Smáralind og Glæsibæ Kaupfélag Skagfirðinga Verslunin Eyri www.fjalli.is PD 350 19.–22. NÓV. ÓPERUFERÐ TIL BERLÍN MEÐ PÉTRI GAUT Fararstjóri er myndlistarmaðurinn og óperu unnandinn Pétur Gautur sem hefur verið með annan fótinn í Berlín síðastliðin 10 ár. VERÐ FRÁ 148.900 KR. Innifalið er miði á 2 óperusýningar í mjög vel staðsett sæti og skoðunarferð um óperuhúsið. Úrval Útsýn |  Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi |  585 4000 |  uu.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.