Fréttatíminn - 10.07.2015, Page 56
TónlisT GreTa salóme með sTarfsframa í Tveimur heimsálfum
Með eigið stúdíó
í skemmtiferðaskipinu
Tónlistarkonan Greta Salóme
Stefánsdóttir er með marga
bolta á lofti. Hún undirbýr
nýja plötu sem hún er að gera
með Daða Birgissyni úr Mono
Town, leggur drög að tónlistar-
sýningu í Menningarhúsinu
Hofi og skemmtir þúsund
manns á hverju kvöldi um borð
í skemmtiferðaskipinu Disney
Magic.
Þ að vefst ekki fyrir Gretu Sal-óme Stefánsdóttur tónlistar-konu að sinna starfsframa í
tveimur heimsálfum. Hún kom til
landsins um helgina með skemmti-
ferðaskipinu Disney Magic þar sem
hún hefur samið tónlist, leikstýrt,
sungið og spilað í eigin sýningu
„The Greta Salóme show“ í nokkra
mánuði og troðið upp með eigið efni
fyrir mörg þúsund manns í hverri
viku. Skipið hefur tvisvar komið til
Íslands.
Tónlistarkonan var á síðasta
ári á siglingu í f jóra mánuði
með skemmtiferðaskipinu Dis-
ney Dream, sem er eitt stærsta
skemmtiferðarskip samsteypunnar
og fékk í framhaldinu samning um
borð í Disney Magic. Hún er með
eigið stúdíó um borð þar sem hún
semur alla tónlistina fyrir sýning-
una og fyrir nýja plötu sem hún hef-
ur verið að vinna að. Hún hefur til
aðstoðar fyrir sýninguna leikstjóra,
dansara og búningahönnuði frá Dis-
ney. Platan hennar „In the Silence“
sem seld er um borð hefur einnig
selst upp fjórum sinnum, að því er
fram kemur í tilkynningu.
Síðastliðinn vetur sendi Greta Sal-
óme frá sér lagið Í dag sem verið
hefur á vinsældalista Rásar 2 í 11
vikur samfleytt. Lagið er hluti af
plötu sem hún er að vinna að um
borð í skipinu og víðar og mun koma
út síðar á árinu. Fljótlega verður
einnig gefið út nýtt lag. „Þetta er
eins og að reka fyrirtæki í tveim-
ur heimsálfum en mér finnst mikil
áskorun að halda svona mörgum
boltum á lofti í einu. Ég sem, leik-
stýri, syng og spila á sýningunni um
borð. Samhliða því er ég að semja
efni fyrir nýju plötuna með Daða
Birgissyni úr hljómsveitinni Mono
Town. Það er mikil reynsla fyrir mig
að halda utan um starfsemina bæði
um borð í skipinu og upptökum á
plötunni.“
„Ég kem heim í haust til þess
að setja upp sýningu í Menningar-
húsinu Hofi á Akureyri en ég ætla
ásamt Þorvaldi Bjarna Þorvalds-
syni, tónlistarstjóra Menningar-
félags Norðurlands, að setja upp
glæsilega tónlistarsýningu í Menn-
ingarhúsinu Hofi á Akureyri. Þar
ætla ég,“ segir Greta Salóme,“ að
leika með Sinfóníuhljómsveit Norð-
urlands á tónleikum sem nefnast
Disney-Frozen. Ég er mjög spennt
fyrir því verkefni.“
Greta Salóme fyrir framan skemmtiferðaskipið Disney Magic í Reykjavíkurhöfn en
hún skemmtir í skipinu á hverju kvöldi fyrir um 1.000 manns.
PEPSI MAX OG WOW AIR KYNNA
KINGS OF LEON
NÝJA LAUGARDALSHÖLLIN 13. ÁGÚST
#KOLICELAND WWW.SENA.IS/KOL
ÆVINTÝRALANDIÐ TAÍLAND 1.–16. NÓV.
Fjölbreytt og skemmtileg ferð til Taílands.
Höfuðborgin Bangkok, náttúruperlur í fjöllum
norðursins og hvíld við tærar strendur Hua Hin í
lokin. Fararstjóri er Bjarni Hinriksson.
VERÐ FRÁ
498.000 KR.
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is
NÝ
TT
SÚKKULAÐIKLEINUR
www.ommubakstur.is
Tilvalið í ferðalagið...
56 menning Helgin 10.-12. júlí 2015