Fréttatíminn - 10.07.2015, Síða 58
Bækur Pönnukökur, harðfiskur og skata í nýrri Bók
Lifrarpylsa í stað
Viagra á kvöldin
Guðrún Helga Sigurðardóttir
var að senda frá sér bók fyrir
erlenda ferðamenn um hefð-
bundna íslenska matargerð.
Hún fann í starfi sínu sem
ökuleiðsögumaður þörf fyrir
slíka bók og reynslan sem
blaðamaður kom sér vel við
vinnslu hennar. Guðrún Helga
fléttar skemmtilegar og þjóð-
legar sögur af matnum inn í
frásögnina og útskýrir hátíðir
á borð við þorrablót.
M ér fannst hvað skemmti-legast að koma til skila öllum þeim sögum sem
tengjast íslenskum mat. Það var
sama hvaða matvæli ég var að fjalla
um – alltaf var til þjóðsaga eða
skemmtisaga sem tengdist konum,“
segir Guðrún Helga Sigurðardóttir,
blaðamaður og ökuleiðsögumaður,
sem var að senda frá sér bókina
Traditional Icelandic Food – A Gas-
tronomic Guide to Iceland. Bókin
fjallar um hefðbundna íslenska
matargerð og er sérstaklega ætluð
erlendum ferðamönnum sem hafa
áhuga á að smakka íslenskan mat
en Guðrún Helga bendir á að bókin
sé einnig tilvalin gjöf til erlendra
gesta.
Lærði leiðsögn
Bókin er á ensku og skiptist í 29
stutta kafla sem fallegar ljósmynd-
ir prýða með nánari umfjöllun um
hinar ýmsu tegundir matar, svo
sem skyr, hangikjöt, selkjöt, svið
og kleinur. Sem dæmi um skemmti-
legar sögur sem fylgja með er í
kaflanum um lifrarpylsu sagt frá
því að hún var áður fyrr talin hið
besta ástarmeðal og húsfreyjur
gáfu bændum sínum gjarna lifrar-
pylsu á kvöldin til að hressa þá við.
„Það væri kannski ráð að hætta að
taka Viagra og fá sér þess í stað
lifrarpylsu á kvöldin,“ segir Guð-
rún Helga kómísk.
Hún segir að tildrög bókarinnar
megi rekja allt að sex ár aftur í tím-
ann þegar hún missti vinnuna sem
blaðamaður á Fréttablaðinu og fór
að skapa sér sína eigin vinnu. „Ég
fór með fólk í léttar fjallgöngur með
Forsíða bókarinnar er afar þjóðleg.
sögulegu ívafi. Í pásunum
bauð ég fólki upp á jurtate,
pönnukökur og kleinur og
sagði fólki nánar frá sögu
þessara matvæla,“ segir hún
en í framhaldinu lærði hún
leiðsögn hjá Endurmennt-
un Háskóla Íslands og hef-
ur síðustu ár, auk þess að
starfa sjálfstætt sem blaða-
maður, unnið sem ökuleið-
sögumaður. „Í því starfi
fann ég þörf fyrir bók sem
þessa og ákvað hreinlega að skrifa
hana sjálf,“ segir Guðrún Helga.
Hangikjöt og soðin ýsa
Þetta er fyrsta bók Guðrúnar
Helgu, hún er 104 blaðsíður og í
þægilegu formi til að einfalt sé að
taka hana með sér, jafnvel í mat-
vörubúðina. „Ég sá fyrir mér að
forvitnir ferðamenn gætu tekið
hana með sér út í búð og keypt
það sem þeim finnst spennandi.
Það eru ekki allir ferðamenn sem
hingað koma sem gista á hótelum
eða borða á fínum veitingastöðum.
Með upplýsingunum úr bókinni
geta þeir smurt sér flatbrauð með
hangikjöti eða soðið sér ýsu,“ seg-
ir hún en jafnframt eru þar ýmsar
uppskriftir, til að mynda að hefð-
bundnum kleinum. Guðrún Helga
segir einnig frá því í bókinni hvaða
sælgæti nýtur mestra vinsælda
meðal landsmanna, hvað þorrablót
sé eiginlega og hvernig jurtir lands-
ins hafa nýst bæði sem góð næring
og til lækninga. Hún gefur bókina
út sjálf og auk þess að vera komin
víða í bókaverslanir er hún fáanleg
á Amazon í rafrænu formi.
Erla Hlynsdóttir
erla@frettatiminn.is
Guðrún Helga Sigurðardóttir,
blaðamaður og ökuleiðsögumaður,
svaraði þörf erlendra ferðamanna
fyrir handhæga bók um hefð-
bundinn íslenskan mat með því að
skrifa hana sjálf. Mynd/Hari
58 menning Helgin 10.-12. júlí 2015
Tölvutek • Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 • Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 • www.tolvutek.is
VILTU VINNA?
ÓSKUM EFTIR SÖLUMÖNNUM Í REYKJAVÍK OG AKUREYRI
Sendið tölvupóst á starf@tolvutek.is með ferilskrá • Góð laun í boði og fullur trúnaður
Ert þú hress og áhugasamur sölumaður með góða þekkingu á tölvubúnaði?
Fjölbreytt starf sem felst í ráðgjöf við val á tölvubúnaði til viðskiptavina auk tilfallandi starfa í
verslun. Óskum eftir jákvæðum og þjónustulunduðum einstakling sem hefur gaman af mann-
legum samskiptum. Nýleg og góð þekking á helstu tölvuíhlutum og tölvubúnaði æskileg.
Með umsókn skal fylgja upplýsingar um fyrri störf og tölvuþekkingu.
www.frittverdmat.is
Ég vil vinna fyrir þig
Hannes Steindórsson
Löggiltur fasteignasali
699 5008
hannes@fastlind.is
Heyrðu í mér og leyfðu
mér að segja þér frá
minni þjónustu.
PEPSI MAX OG WOW AIR KYNNA
KINGS
OF LEON
NÝJA LAUGARDALSHÖLLIN 13. ÁGÚST
#KOLICELAND WWW.SENA.IS/KOL
Það tekur á að fela sig
– við erum tilbúin að hlusta
Ókeypis Trúnaður Alltaf opinn
1717
.isHJÁLPARSÍMI OG NETSPJALL RAUÐA KROSSINS