Fréttatíminn


Fréttatíminn - 10.07.2015, Síða 60

Fréttatíminn - 10.07.2015, Síða 60
 Í takt við tÍmann ElÍn mEtta JEnsEn Lærir iðnaðarverkfræði og spilar fótbolta í sólinni á Flórída Ég kláraði MR í vor og í sumar er ég að vinna í túristabúðinni The Viking niðri í bæ. Í haust fer ég svo til Bandaríkjanna í háskóla. Ég fékk skólastyrk í Florida State og mun læra iðnaðarverkfræði og spila fót- bolta. Það er auðvitað leiðinlegt að missa stóran hluta úr Pepsi-deildinni en maður verður að elta drauma sína. Staðalbúnaður Ég er með klassískan fatasmekk en það fer eftir skapinu hverju ég klæðist. Ég get verið svolítið bóhem í klæðaburði en svo er ég oft mjög „sportí“ og vil vera í þægilegum skóm, til dæmis íþróttaskóm. Ég á mikið af bláum fötum sem er ágæt tilbreyting frá rauða Valslitnum. Ég kaupi oftast föt í H&M, Monki og Zöru. Hugbúnaður Mér finnst mjög skemmtilegt að fara á kaffihús. Súfistinn og Eymundsson á Skólavörðustíg eru í uppáhaldi og þar les ég tímarit og fæ mér kannski kakóbolla. Ég fer ekki mikið á djammið enda er eng- inn tími til að gera það á sumrin, við erum alltaf að keppa. En ef fótboltastelpurnar fara eitthvert út þá er það yfirleitt b5. Ég hef mjög gaman af bíómyndum. Ég er mikil Audrey Hepburn-kona, ég á safnið hennar og hef séð flestar myndirnar. Svo missi ég heldur ekki af myndum með Will Ferrell. Ég er búin að vera að fylgjast með Shark Tank-þáttunum. Þeir eiga að vera geðveikt alvarlegir en eru mjög fyndnir. Broad City eru líka mjög skemmtilegir. Annars fylg- ist ég auðvitað með fótbolta og núna síð- ast HM kvenna. Úrslitaleikurinn var einn skemmtilegasti leikur sem ég hef séð. Ég hélt með Bandaríkjakonum og þetta var því ekki leiðinlegt. Ég held líka að það hafi ver- ið gott fyrir kvennaboltann að Bandaríkin urðu heimsmeistarar. Þar eru gríðarlegir peningar og deildin fær vítamínsprautu. Það er ennþá meira spennandi fyrir mig fara þangað eftir þetta. Vélbúnaður Ég er alltaf frekar sein í tæknimálunum en næ þessu þó að lokum. Ég er með Macbo- ok Air og iPhone og er mikið á þessum týpísku miðlum. Skemmtilegasti miðill- inn er Quora þar sem maður getur sett inn spurningar og fullt af fólki úti í heimi svar- ar þeim. Það er eiginlega skemmtilegra en Facebook. Svo er ég mjög hrifin af Instag- ram og Pinterest og ég nota Spotify mikið. Ég hlusta eiginlega á allt þar en núna er ég mest að hlusta á Queen og Foster the People. Aukabúnaður Ég borða mikið hjá mömmu minni enda fæ ég allskonar hollan mat þar. Til dæmis mjög góðan fisk. Ég borða líka stundum úti í bæ, oftast á Nings eða Saffran. Mér finnst gott að fara út að labba með hundinn minn, sem er Cavalier og heitir Kári, til að hreinsa hugann og njóta þess að vera úti. Ég reyni líka að vera dugleg að lesa bækur og var síðast að byrja á Jonathan Strange & Mr Norrell. Hún lofar mjög góðu. Í sumar ætla ég að reyna að vera dugleg að fara í sumarbústað og svo vona ég að tími gefist til að fara með vinunum í úti- legu. Annars er ég að vinna niðri í bæ í sumar og kann mjög vel við mig þar. Ég er mikil 101-manneskja og er líka mjög hrifin af höfninni. Það er fal- legur staður. Elín Metta Jensen er tvítug fótboltastelpa sem raðar inn mörkum fyrir Val í Pepsi-deildinni. Hún heldur upp á Audrey Hepburn og Will Ferrell og nýtur þess að lesa bækur og fara út að labba með hundinn sinn. Ljósmynd/Hari Snoop Dogg man sjálfsagt ekkert eftir síðustu heimsókn sinni til Íslands enda áratugur liðinn. Við hin munum þó vel eftir henni og fögnum endur- komu hans í næstu viku.  tónlist snoop Dogg mEð partÍ Í Höllinni Úlfur Úlfur hitar upp fyrir Snoop r apparinn Snoop Dogg er væntanlegur til landsins í næstu viku og heldur Snoo- padelic partí í Laugardalshöllinni á fimmtudagskvöld. Snoop kom síð- ast til landsins sumarið 2005 og hélt eftirminnilega tónleika í Egilshöll. Að þessu sinni kemur hann fram og spilar sem DJ Snoopadelic í tvo klukkutíma á sviðinu með öðrum erlendum plötusnúðum. Þá tekur hann vinsælustu lögin sín inni á milli til að halda uppi góðri stemn- ingu. Fjöldi íslenskra tónlistarmanna hitar upp fyrir Snoop. Þar ber fyrst að nefna drengina í Úlfur Úlfur sem eru á allra vörum eftir að þeir gáfu út frábæra plötu á dög- unum, Tvær plánetur. Þeir félagar, Helgi Sæmundur og Arnar Freyr, njóta aðstoðar Agent Fresco á tónleikun- um og eru greinilega nokkuð spenntir ef marka má Facebooksíðu sveitarinnar: „Þegar ég var 8 ára heyrði ég fyrsta rapplagið mitt. Það var g’z and hustlas með Snoop Dogg. Þótt ég hefði verið pínulítill pjakkur á Sauðárkróki var ég samstundis al- veg „holy shit þetta er allt sem ég hef þráð hingað til“, hætti að leika mér með dót og fór bara að hlusta á rapp. 16. júlí. Við og Snoop Dogg í Laugardalshöllinni. Damn good.“ Auk þeirra koma fram Blaz Roca ásamt Herra Hnetusmjöri, Joe Fra- zier, Dabbi T og Sesar Afrikanus, DJ Gísli Galdur, Shades of Reykja- vík og KSF ásamt Tiny úr Qua- rashi og Alvia Islandia. Arnar Freyr og Helgi Sæmundur segja að Snoop Dogg hafi breytt lífi þeirra. Þeir eru spenntir að troða upp með kappanum. 60 dægurmál Helgin 10.-12. júlí 2015

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.