Fréttatíminn - 10.07.2015, Blaðsíða 60
Í takt við tÍmann ElÍn mEtta JEnsEn
Lærir iðnaðarverkfræði og spilar
fótbolta í sólinni á Flórída
Ég kláraði MR í vor og í sumar er ég að
vinna í túristabúðinni The Viking niðri í
bæ. Í haust fer ég svo til Bandaríkjanna í
háskóla. Ég fékk skólastyrk í Florida State
og mun læra iðnaðarverkfræði og spila fót-
bolta. Það er auðvitað leiðinlegt að missa
stóran hluta úr Pepsi-deildinni en maður
verður að elta drauma sína.
Staðalbúnaður
Ég er með klassískan fatasmekk en það
fer eftir skapinu hverju ég klæðist. Ég get
verið svolítið bóhem í klæðaburði en svo er
ég oft mjög „sportí“ og vil vera í þægilegum
skóm, til dæmis íþróttaskóm. Ég á mikið
af bláum fötum sem er ágæt tilbreyting
frá rauða Valslitnum. Ég kaupi oftast föt í
H&M, Monki og Zöru.
Hugbúnaður
Mér finnst mjög skemmtilegt að fara á
kaffihús. Súfistinn og Eymundsson á
Skólavörðustíg eru í uppáhaldi og þar les
ég tímarit og fæ mér kannski kakóbolla.
Ég fer ekki mikið á djammið enda er eng-
inn tími til að gera það á sumrin, við erum
alltaf að keppa. En ef fótboltastelpurnar
fara eitthvert út þá er það yfirleitt b5. Ég
hef mjög gaman af bíómyndum. Ég er mikil
Audrey Hepburn-kona, ég á safnið hennar
og hef séð flestar myndirnar. Svo missi ég
heldur ekki af myndum með Will Ferrell.
Ég er búin að vera að fylgjast með Shark
Tank-þáttunum. Þeir eiga að vera geðveikt
alvarlegir en eru mjög fyndnir. Broad City
eru líka mjög skemmtilegir. Annars fylg-
ist ég auðvitað með fótbolta og núna síð-
ast HM kvenna. Úrslitaleikurinn var einn
skemmtilegasti leikur sem ég hef séð. Ég
hélt með Bandaríkjakonum og þetta var því
ekki leiðinlegt. Ég held líka að það hafi ver-
ið gott fyrir kvennaboltann að Bandaríkin
urðu heimsmeistarar. Þar eru gríðarlegir
peningar og deildin fær vítamínsprautu.
Það er ennþá meira spennandi fyrir mig
fara þangað eftir þetta.
Vélbúnaður
Ég er alltaf frekar sein í tæknimálunum en
næ þessu þó að lokum. Ég er með Macbo-
ok Air og iPhone og er mikið á þessum
týpísku miðlum. Skemmtilegasti miðill-
inn er Quora þar sem maður getur sett inn
spurningar og fullt af fólki úti í heimi svar-
ar þeim. Það er eiginlega skemmtilegra en
Facebook. Svo er ég mjög hrifin af Instag-
ram og Pinterest og ég nota Spotify mikið.
Ég hlusta eiginlega á allt þar en núna er
ég mest að hlusta á Queen og Foster the
People.
Aukabúnaður
Ég borða mikið hjá mömmu minni enda
fæ ég allskonar hollan mat þar. Til dæmis
mjög góðan fisk. Ég borða líka stundum úti
í bæ, oftast á Nings eða Saffran. Mér finnst
gott að fara út að labba með hundinn
minn, sem er Cavalier og heitir Kári,
til að hreinsa hugann og njóta þess
að vera úti. Ég reyni líka að vera
dugleg að lesa bækur og var síðast
að byrja á Jonathan Strange & Mr
Norrell. Hún lofar mjög góðu. Í
sumar ætla ég að reyna að vera
dugleg að fara í sumarbústað
og svo vona ég að tími gefist
til að fara með vinunum í úti-
legu. Annars er ég að vinna
niðri í bæ í sumar og kann
mjög vel við mig þar. Ég
er mikil 101-manneskja
og er líka mjög hrifin
af höfninni. Það er fal-
legur staður.
Elín Metta Jensen er tvítug fótboltastelpa sem raðar inn mörkum fyrir Val í Pepsi-deildinni. Hún heldur upp á
Audrey Hepburn og Will Ferrell og nýtur þess að lesa bækur og fara út að labba með hundinn sinn.
Ljósmynd/Hari
Snoop Dogg man
sjálfsagt ekkert
eftir síðustu heimsókn
sinni til Íslands enda
áratugur liðinn. Við
hin munum þó vel
eftir henni og
fögnum endur-
komu hans í
næstu viku.
tónlist snoop Dogg mEð partÍ Í Höllinni
Úlfur Úlfur hitar
upp fyrir Snoop
r apparinn Snoop Dogg er væntanlegur til landsins í næstu viku og heldur Snoo-
padelic partí í Laugardalshöllinni á
fimmtudagskvöld. Snoop kom síð-
ast til landsins sumarið 2005 og hélt
eftirminnilega tónleika í Egilshöll.
Að þessu sinni kemur hann fram
og spilar sem DJ Snoopadelic í tvo
klukkutíma á sviðinu með öðrum
erlendum plötusnúðum. Þá tekur
hann vinsælustu lögin sín inni á
milli til að halda uppi góðri stemn-
ingu.
Fjöldi íslenskra tónlistarmanna
hitar upp fyrir Snoop. Þar ber fyrst
að nefna drengina í Úlfur Úlfur
sem eru á allra vörum eftir
að þeir gáfu út frábæra
plötu á dög-
unum, Tvær
plánetur. Þeir
félagar, Helgi
Sæmundur og
Arnar Freyr,
njóta aðstoðar
Agent Fresco
á tónleikun-
um og eru
greinilega
nokkuð
spenntir ef marka má Facebooksíðu
sveitarinnar:
„Þegar ég var 8 ára heyrði ég
fyrsta rapplagið mitt. Það var g’z
and hustlas með Snoop Dogg. Þótt
ég hefði verið pínulítill pjakkur á
Sauðárkróki var ég samstundis al-
veg „holy shit þetta er allt sem ég
hef þráð hingað til“, hætti að leika
mér með dót og fór bara að hlusta
á rapp.
16. júlí. Við og Snoop Dogg í
Laugardalshöllinni. Damn good.“
Auk þeirra koma fram Blaz Roca
ásamt Herra Hnetusmjöri, Joe Fra-
zier, Dabbi T og Sesar Afrikanus,
DJ Gísli Galdur, Shades of Reykja-
vík og KSF ásamt Tiny úr Qua-
rashi og Alvia Islandia.
Arnar Freyr og Helgi Sæmundur segja að Snoop Dogg hafi breytt lífi þeirra. Þeir eru
spenntir að troða upp með kappanum.
60 dægurmál Helgin 10.-12. júlí 2015