Fréttatíminn - 09.10.2015, Side 2
hágæða vítamín
Sigurjón dæmdur í
fangelsi
Sig ur jón Þ. Árna son var dæmdur í þriggja
og hálfs árs fang elsi í Hæstarétti í gær í
Imon-málinu svokallaða. Elín Sig fús dótt ir,
fyrr ver andi fram kvæmda stjóri fyr ir-
tækja sviðs bank ans, var einnig sak felld
og dæmd í 18 mánaða fang elsi. Þau höfðu
áður verið sýknuð í héraðsdómi. Þar
var Steinþór Gunnarsson dæmdur í níu
mánaða fangelsi, með sex mánaða skilorði.
Hæstiréttur dæmdi hann til að sitja allan
tímann óskilorðsbundið.
Huld tímabundið
forstjóri TR
Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðis-
málaráðherra hefur falið Huld Magnús-
dóttur að gegna stöðu forstjóra Trygg-
ingastofnunar ríkisins frá 15. október
næstkomandi, tímabundið um níu mánaða
skeið, í fjarveru Sigríðar Lillýar Baldurs-
dóttur sem hefur hlotið námsleyfi til sama
tíma. Huld hefur gegnt embætti forstjóra
Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir
blinda, sjónskerta og daufblinda einstak-
linga frá árinu 2009. Jafnframt hefur
ráðherra, að því er fram kemur á síðu vel-
ferðarráðuneytisins, sett Þorbjörgu Gunn-
arsdóttur til að gegna embætti forstjóra
þjónustu- og þekkingarmiðstöðvarinnar í
Huldar stað frá 15. október til níu mánuða.
Öll börnin í skóla
Búið er að tryggja fimmtán börnum hælis-
leitenda skólavist í þremur sveitarfélögum.
Greint var frá því á miðvikudaginn í síðustu
viku að sautján börn hælisleitenda hefðu
ekki fengið skólavist fyrir mistök Útlend-
ingastofnunar. Frá stofnuninni fást nú þær
upplýsingar að börnin séu fimmtán en ekki
sautján og þeim hafi nú öllum verið tryggð
skólavist. Fimm barnanna séu byrjuð í
skóla í Reykjavík. Þrjú þeirra hafi hafið nám
á föstudaginn og tvö nú á mánudaginn.
Tvær fjölskyldur með samtals sex börn fari
til Reykjanesbæjar og fjögur til Hafnar-
fjarðar. RÚV greindi frá.
Dómsmál sláanDi niðurstöður nýrrar rannsóknar
Lög um dómsúrskurð fyrir einangrunarvist hafa litlu breytt og
dæmi eru um 80 daga einangrunarvist fanga í gæsluvarðhaldi.
Elísabet Ingólfsdóttir rannsakaði málið í meistararitgerð sinni í
lögfræði og segir niðurstöðuna sláandi.
E inangrunarvistun er nán-ast meginregla við upphaf gæsluvarðhaldsvistar hér
á landi án þess að tillit sé tekið til
persónulegra einkenna sakborn-
inga, s.s. geðrænna kvilla, heilsu
eða aldurs. Þetta er niðurstaða
rannsóknar sem Elísabet Ingólfs-
dóttir gerði og birti niðurstöður úr
í meistararitgerð sinni í lögfræði nú
í júní. Elísabet segir mikinn mun á
beitingu einangrunarvistar í þágu
rannsóknarhagsmuna hér á landi og
í Danmörku. Til dæmis megi nefna
að árið 2013 hafi 55 gæsluvarðhalds-
fangar sætt einangrun í Danmörku
en 83 á Íslandi, þrátt fyrir augljósan
mun á fólksfjölda.
Engin skoðun á ástandi
Ritgerð Elísabetar nefnist „Einangr-
un gæsluvarðhaldsfanga í ljósi 3. gr.
Mannréttindasáttmála Evrópu“ og
hún segir starf með Amnesty inter-
national hafa kveikt áhuga sinn á
þessum málaflokki. „Í stuttu máli
fjallar ritgerðin um beitingu ein-
angrunarvistunar í gæsluvarðhaldi
– þ.e. á rannsóknarstigi og á grund-
velli rannsóknarhagsmuna – og þá
í ljósi 3. gr. Mannréttindasáttmála
Evrópu um bann við pyndingum og
ómannlegri eða vanvirðandi með-
ferð,“ segir Elísabet. „Varðandi
þann vinkil þá skoðaði ég hvað það
er sem Mannréttindadómstóllinn
skoðar þegar metið er hvort um
brot hafi verið að ræða og í ljós kom
að þeir skoða meðal annars hvert
markmiðið með einangrunarvist-
uninni er, hvort það tengist rann-
sóknarhagsmunum eða hvort það
sé ólögmætt. Þeir skoða líka hversu
lengi einangrunarvistin stendur og
hversu íþyngjandi hún er fyrir fang-
ann. Það gefur til dæmis auga leið
að ef einhver er veikur fyrir andlega
eða líkamlega þá auðvitað þarf að
gæta sérstakrar varkárni.“
Elísabet segir sína niðurstöðu
vera þá að hérlendis sé pottur helst
brotinn varðandi síðasta atriðið,
það virðist engin skoðun á ástandi
hvers einstaklings fara fram áður en
til einangrunarvistarinnar kemur.
„Reglur um einangrunarvist hafa
verið hertar og lögum breytt á þann
veg að nú þarf dómari að úrskurða
fólk í einangrunarvist, en það virð-
ist engu hafa breytt og tilfellum
hafi lítið fækkað. „Það kom fram í
mínum tölvupóstssamskiptum við
Margréti Frímannsdóttur, forstöðu-
mann á Litla Hrauni, að nánast und-
antekningalaust væru fyrstu dagar
gæsluvarðhalds í einangrun. Í flest-
um tilfellum er aðeins um nokkra
daga að ræða en ég sá dæmi um allt
upp í 80 daga einangrun í gæslu-
varðhaldi og það er undarlegt að
það skuli vera meginregla í fram-
kvæmd þegar þetta á að vera undan-
tekning samkvæmt teoríunni. Enda
mest íþyngjandi frelsissvipting sem
hægt er að beita gagnvart sakborn-
ingi við rannsókn máls.“
Staðfesta mat rannsóknarað-
ila
Eina skýringin sem Elísabet fékk
á þessu fyrirkomulagi var að þetta
væri gert til að tryggja rannsóknar-
hagsmuni mála. „Ég talaði líka við
Jón H.B. Snorrason, þáverandi að-
stoðarlögreglustjóra, og hann stað-
festi að úrskurðir dómara um ein-
angrunarvist staðfestu nánast alltaf
mat rannsóknaraðila, það færi mjög
lítil endurskoðun fram og sakborn-
ingur yrði algjörlega undir í þessu
ferli. Jafnvel þótt lögmaður ákærða
héldi því fram að hann væri andlega
vanheill væri það yfirleitt ekki tekið
til greina. Það þykir mér mjög óeðli-
legt því auðvitað á tilgangurinn með
því að dómari úrskurði í þessum
málum að vera að hafa eftirlitshlut-
verk gagnvart stjórnendum rann-
sóknarinnar.“
Elísabet segir niðurstöður sínar
þó ekki hafa leitt í ljós að um skýrt
brot á mannréttindasáttmálanum
væri að ræða. „Ég væri að taka mjög
djúpt í árinni ef ég segði að fram-
kvæmdin sé brot á 3. gr. Mannrétt-
indasáttmálans því þrátt fyrir allt
hafa aðildarríkin mjög mikið svig-
rúm. Hins vegar hafa hafa komið
upp mál er varða einangrunarvistun
sem ég er sannfærð um að séu klárt
brot á 3. gr. sáttmálans. Skýrustu
dæmin um það tengjast auðvitað
rannsókn Guðmundar- og Geir-
finnsmálsins.“
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
Nær allir gæsluvarðhalds-
fangar settir í einangrun
Árið 2013
sættu 55
gæsluvarð-
haldsfangar
einangrun í
Danmörku en
83 á Íslandi,
þrátt fyrir
augljósan
mun á fólks-
fjölda.
Mynd/Hari
Elísabet Ingólfsdóttir rannsakaði
beitingu einangrunarvistar í gæsluvarð-
haldi í meistararitgerð sinni í lögfræði.
Í ljósi dómaframkvæmda í fíkni-efnamálum kemur þetta ekki á óvart. Það hafa fallið þungir
dómar í brotum af þessu tagi áður,“
segir Helgi Gunnlaugsson, afbrota-
fræðingur og prófessor í félagsfræði
við Háskóla Íslands, um dómsupp-
kvaðningu í máli hinnar hollensku
Mirjam Foekje van Twuijver.
Hún hlaut ellefu ára fangelsisdóm
fyrir smygl á tæplega tuttugu kíló-
um af fíkniefnum til landsins. „Það
sem kemur hins vegar á óvart er að
ekki var tekið meira tillit til sam-
starfsvilja hennar, í ljósi þess að hún
var sakfelld sem burðardýr,“ segir
Helgi. Dómurinn er sá þyngsti sem
fallið hefur í fíkniefnamáli á Íslandi,
en refsiramminn fyrir fíkniefna-
smygl er 12 ár. Dómurinn byggir
meðal annars á því hversu mikil og
hrein efnin voru og því að þetta er
þriðja smyglferðin sem van Twujiver
kemur til Íslands.
Helgi segir að fíkniefnamál séu
einn af fáum málaflokkum þar sem
notast er við efsta stig refsiramm-
ans. „Almennt er ekki verið að nota
efsta stigið í hegningarlagaramm-
anum á Íslandi, nema í manndráps-
málum. Ástæðuna má rekja til
margar þungra dóma sem féllu á
10. áratug síðustu aldar, í takt við
aukinn fjölda fíkniefnamála.“
Helgi segir það því vera í hönd-
um löggjafarvaldsins að velta því
fyrir sér hvort það sé eðlilegt að
þessi málaflokkur sé kominn upp
í efstu mörk, því dómarar munu
halda áfram að fara eftir dómafor-
dæmum. „Það er einnig athugavert
að burðardýr sem sýnir samstarfs-
vilja sé að sprengja refsirammann.
Hvað verður gert við höfuðpaurinn,
finnist hann í næstu viku?“ spyr
Helgi. „Það vita allir að þess-
ir þungu dómar leysa ekki
fíkniefnavandann.“
Aðeins tvisvar sinnum
hafa jafn þungir eða
þyngri dómar verið
kveðnir upp í hér-
aðsdómi í f íkni-
efnamáli. Hæsti-
rét tur mi ldaði
re f s i n g u na í
bæði skipt in.
Ef Hæstiréttur
mun staðfesta
dóminn y f i r
Twuijver verður hann því
sá þyngsti dómur sögunnar
í fíkniefnamáli. -emm
Enn tími til samninga
Enn er tími til að semja, segir í yfirlýsingu sem fulltrúar SFR
stéttarfélags, Sjúkraliðafélags Íslands og Landssambands
lögreglumanna afhenda forsætisráðherra í upphafi ríkis-
stjórnarfundar í dag, föstudag.
Í yfirlýsingunni eru kröfur félaganna ítrekaðar og vilji þeirra
til að semja. Stjórnvöld eru í yfirlýsingunni minnt á það að
á fimmtudaginn í næstu viku hefst verkfall þúsunda ríkis-
starfsmanna, takist ekki að semja.
Dómsmál 11 ára fangElsi fyrir fÍkniEfnasmygl
Burðardýr fær þyngsta dóm sögunnar
Helgi Gunn-
laugsson,
afbrota-
fræðingur og
prófessor í
félagsfræði
við Háskóla
Íslands.
2 fréttir Helgin 9.-11. október 2015