Fréttatíminn


Fréttatíminn - 09.10.2015, Blaðsíða 64

Fréttatíminn - 09.10.2015, Blaðsíða 64
 Í takt við tÍmann Hörður Bjarkason Maður er flottur á gólfinu á b5 og Austur Hörður Bjarkason er 23 ára Seltirningur og nemi á lokaári í viðskiptafræði við HR. Hann var að senda frá sér sitt fyrsta lag og myndband, Ekki vera feimin. Hörður keyrir um á gömlum Pajero og horfir á norræna spennuþætti. Ég hef alltaf verið í tónlist, lærði á saxa- fón hjá Óskari Guðjónssyni og Hauki Gröndal, og hef mikið verið að spila og syngja í veislum undanfarin ár. Ég hef líka alltaf verið að semja tónlist en klára aldrei lögin. Í vor var ég svo í þriggja vikna áfanga um stefnumótun fyrir- tækja þar sem lögð var áhersla á hvað markmiðasetning er mikilvæg. Þar áttu allir að setja sér persónubundin markmið og sýna að þeir gætu staðið við þau. Ég ákvað að fullklára lag. Kennarinn greip þetta á lofti og sagði að ég yrði að flytja lagið í síðasta tímanum. Ég stóð við stóru orðin og tók gítarinn með í tímann og flutti Ekki vera feimin. Ég fékk svo félaga minn til að hjálpa mér að taka lagið upp í sumar og annar félagi skaut myndband- ið fyrir mig. Viðbrögðin hafa verið mjög skemmtileg – betri en ég þorði að vona. Staðalbúnaður Ég get ekki sagt að ég sé traustur við- skiptavinur neins fatamerkis. Ég fer ekki ýktar stefnur en reyni svona að vera með straumnum. Í skólanum er ég oftast í skyrtu og gallabuxum eða einhverju svoleiðis en svo hendir maður sér í spari- gallann ef maður fer á eitthvað skrallerí. Hugbúnaður Þegar ég á lausan tíma finnst mér fínt að gera eitthvað skemmtilegt með vinum mínum. Ég er tíður gestur í sundlaug- um bæjarins og ef maður er í stuði leyfir maður sér að kíkja í bíóhúsin. Á sumrin spila ég golf og það blundar líka í mér laumu veiðimaður. Stangveiðimaður, það er, ég er minna í rjúpunum, ísbjörn- unum og því öllu. Ég og félagar mínir erum nýlega komnir á norræna vagninn í sjónvarpsefni og vorum til dæmis að klára allar seríur af Forbrydelsen. Dan- ir og Norðmenn kunna þetta alveg. Ég fer ekki troðnar slóðir þegar ég fer út að skemmta mér. Ég fer á b5 og Austur. Þar kann ég vel við mig á gólfinu – þar er maður flottur. Vélbúnaður Ég er á eplalestinni og er nýbúinn að uppfæra búnaðinn. Nú er ég með nýja Macbook Pro Retina og er kominn yfir í sexuna í iPhone. Svo er ég líka mik- ill iPad maður. Eins og flestir nota ég Snapchat, Instagram og Facebook og svo skráði ég mig á Twitter fyrir ekki löngu. Ég hef reyndar verið alltof mikill farþegi þar og þarf að fara að rífa mig upp. Aukabúnaður Ég er mikill aðdáandi hótels mömmu þegar kemur að mat. Það er helvíti gott að komast í fínt nautakjöt eða lambalæri heima. En við námsmenn erum auðvi- tað mikið í skyndibitanum, það er engin undankomuleið þar. Ef maður reynir að velja eitthvað hollt þá er skálin á Gló al- veg geggjuð. Sumir segja að það sé und- antekning ef þeir sjá mig tvisvar á sama bílnum en ástæðan er sú að pabbi rekur bílaverkstæði og ég enda alltaf á bílum sem hann kaupir í gegnum vinnuna. Nú er ég á gömlum Pajero og hef gaman af að þykjast vera hluti af jeppamenning- unni. Ég er duglegur að kíkja í World Class, annað hvort uppi í HR eða úti á Nesi, það liggur beinast við. Ég tók mér ársfrí eftir stúdentsprófið úr Versló, vann í hálft ár og safnaði fyrir heimsreisu. Þá fór ég um Suðaustur Asíu með félaga mínum, við fórum um Indland, Taíland, Víetnam, Laos, Kambódíu og enduðum á að keyra upp Ástralíu. Það var alveg magnað. Lj ós m yn d/ H ar i B ubbi Morthens hefur nú deilt lífi sínu með okkur í gegnum söngtexta í 35 ár og að óreyndu hefði maður ekki haldið að hann ætti margt eftir ósagt. Annað kemur þó í ljós við lestur fyrstu ljóðabókar hans, Öskraðu gat á myrkrið, sem kom út á dögunum. Hér er Bubbi einlæg- ari og opnari en nokkru sinni fyrr og bókin er rússíban- areið í gegnum líf hans frá uppvexti þar sem heimilisofbeldi er snar þáttur yfir í flóttann í fíknina, móðurmissi, lífið sem frægur fíkill háður skuldbindinga- lausu kynlífi, klámi og aðdáun fjöldans og að lokum harða baráttu við að sigrast á fíkninni, ná tökum á lífi sínu, öskra gat á myrkrið og hleypa ljósinu inn. Þessi ljóð eru ekki auðveld lesning, sárs- aukinn á köf lum svo skerandi að maður fær kökk í hálsinn, en Bubbi hefur fullt vald á því sem hann er að gera og ljóðin 33 sem bókina mynda eru hnitmiðuð og snörp, þótt þessum lesanda hér þyki reyndar að enn hefði mátt skerpa og hvessa á nokkrum stöðum. Móðurmissir- inn er leiðarhnoða í gegnum alla bókina og aftur og aftur skýtur upp myndinni af augunum bláu sem vatnið lokaði en það er ekki fyrr en á síðustu síðunum, sem lýsa dvöl í meðferð, sem sá sársauki er færður í þetta eina orð: hvíslar maður orðið mamma stónd öskrar maður orðið mamma á spítti hlær maður að orðinu mamma á lsd grætur maður yfir orðinu mamma í meðferð Annar rauður þráður sem liggur í gegnum alla bókina er þráin eftir „eðlilegu“ lífi, heimili, ást, ró og því að geta verið góður pabbi. Heim, en hvar er heim? er setning sem kemur fyrir aftur og aftur en jafnvel eftir að hafa eignast heimili, ást og börn er fíkillinn ófær um að finna ham- ingjuna, það er fíknin sem heldur um stjórnar- taumana og drepur alla drauma, konur hverfa og börnin með og aft- ur tekur við hringiða neyslu og svalls. Við bókarlok grillir í nýtt upphaf, endurfæðingu og nýtt líf, en undir ligg- ur vissan um að fíknid- jöfullinn liggur í leyni og getur skotið upp kolli hvenær sem er. Það vinnst aldrei fulln- aðarsigur. Það ætti svo sem ekki að koma neinum á óvart að Bubbi kunni að búa hugsanir sínar í orð, nánast hvert einasta manns- barn á landinu kann textabrot eftir hann og ýmsir af frösum hans eru nánast orðnar ofnotaðar klisjur, en það er munur á söngtexta og ljóði og þessi bók skipar honum í flokk skálda. Friðrika Benónýsdóttir fridrikka@frettatiminn.is  öskraðu gat á myrkrið Bubbi Morthens Mál og menning 2015  ritdómur Fyrsta ljóðaBók BuBBa mortHens Eins og jóla- þorp í helvíti 64 dægurmál Helgin 19.-21. október 2012
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.