Fréttatíminn - 09.10.2015, Side 4
KAMBÓDÍA OG VÍETNAM 16.–29. JANÚAR
Tveggja vikna ferð til þessara
stórbrotnu landa sem státa af
mikilli náttúrufegurð, iðandi
borgum og vingjarnlegu fólki.
Fararstjóri er Halla Himintungl
sem þekkir svæðið vel.
VERÐ FRÁ
589.900 KR.
Mikið innifalið.
Kynningarfundur 12. okt.
kl. 17:30, Hlíðasmári 19
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Rigning nV-til, skúRiR V-til, en léttskýj-
að na- og a-lands. kólnaR um kVöldið.
HöfuðboRgaRsVæðið: Að mestu
skýjAð og skúrir.
að mestu úRkomulaust og
Hæglátt VeðuR.
HöfuðboRgaRsVæðið: sól með köflum og
hægur vindur. fremur svAlt
Rigning Víða um land, einkum V-til.
snjóR til fjalla. léttiR til a-lands.
HöfuðboRgaRsVæðið: meirA og minnA
rigning AllAn dAginn.
Haustsól á laugardag
október er vætumánuður og sunnanlands
hefur þegar rignt mikið í þeirri viku sem
liðin er. Allar líkur eru á smá hléi á
laugardag og þá er spáð fallegu og hæglátu
haustveðri. morgunkul og jafnvel frost en
sólin mun skína víða yfir daginn. Nú er að
koma sá árstími að sólin nær
lítið að hita loftið, samt er hún
notarleg yfir hádaginn. Lægð
kemur beint úr suðri með
rigningu seint á laugardag
og fram á sunnudag og þá
má gera ráð fyrir talsverðu
vatnsveðri v-til. snjóar víða
á fjallvegum.
5
4 4
3
5
4
4 4
5
5
4
3 2
6
4
einar sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
1,2milljarðar af styrkjum hafa borist
Landspítalanum síðustu fimm ár til
fjárfestingar á tækjabúnaði. Heildarfjár-
festing í tækjabúnaði á sama tíma var
5,2 milljarðar, að því er viðskiptablaðið
greinir frá.
Ódýra vínið hækkar
frumvarp ríkisstjórnarinnar um að færa
allt áfengi í lægra virðisaukaskattsþrep
mun hækka verð á ódýrum léttvínum en
lækka verð á dýrara áfengi. nái frum-
varpið fram að ganga getur léttvín
í kassa
hækkað
um 300
krónur og
flaska af
vodka um 500
krónur.
20%
aukning verður í innflutningi á vörum
sem keyptar eru í gegnum netið og
kosta undir 40 þúsund krónur í ár,
gangi spár eftir. Í fyrra voru slíkar vörur
fluttar inn fyrir 1,6 milljarða króna.
Kreppulán AGS að fullu greitt
seðlabankinn hefur ákveðið að greiða
fyrirfram eftirstöðvar láns frá Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum, Ags. um er að ræða
endurgreiðslu að jafnvirði um 42 milljarða
króna, með gjalddaga 2015 og 2016.
Vegna rúmrar lausafjárstöðu bankans
er svigrúm til að minnka skamm-
tímaskuldir í erlendum gjaldeyri,
segir í tilkynningu hans. gjaldeyrisforði
dregst saman sem þessu nemur. lánið frá
Ags var tekið í tengslum við efnahags-
áætlun stjórnvalda hér á landi og Ags í
kjölfar bankahrunsins í október 2008.
heildarfjárhæð lánsins, sem tekið var í
áföngum í samræmi við efnahagsáætl-
unina, nam um 250 milljörðum króna
þegar áætluninni lauk í ágúst 2011. Með
uppgreiðslu Ags-lánsins lýkur jafnframt
eftirfylgni Ags hér á landi.
ólafur ólafsson
athafnamaður greinir
frá daglegu lífi á Kvía-
bryggju, þar sem hann
afplánar nú fjögurra og
hálfs árs dóm, í viðtali
við viðskiptablaðið.
segir ólafur að hann
stundi sína vinnu og lesi
mikið. „svo hef ég verið
mjög duglegur í líkams-
rækt. Hér er Magnús
guðmundsson frábær
crossfit-þjálfari, svo
ég held að ég hafi ekki
verið í jafngóðu formi í
áratugi.“
Crossfit á Kvíabryggju
a ð sjálfsögðu ætlumst við til að sú styrking krónunnar sem hefur verið að undanförnu skili
sér í verðlækkunum, og ég fagna því að
það sé gert,“ segir Jóhannes Gunnars-
son, formaður Neytendasamtakanna,
um ákvörðun Myllunnar um að lækka
vöruverð í kjölfar styrkingar krónunnar.
Verð á innfluttum vörum mun lækka um
3,17% en á framleiddum vörum um 1,42%.
Stjórn endur Myllunnar segjast miða verð-
breytingar hjá sér við 5% sveiflur á gengi
evrunnar gagnvart krónunni og hafa frá
því hausti 2013 breytt vöruverði í sam-
ræmi við það.
Menn vanalega fljótari að hækka
verð en lækka
Önnur fyrirtæki sem
hafa brugð-
ist nýlega
við styrk-
ingu
krón-
unnar
með því að
lækka verð
á innflutt-
um vörum
eru meðal
annars Ölgerðin, Ikea og Bónus. Jóhanns
segir það gleðiefni þegar svo stór fyrir-
tæki ákveði að lækka verð í samræmi við
gengið, það hafi þó lengi verið viðloðandi
að menn séu fljótari að hækka verð en
lækka vegna gengisbreytinga. En ætli
menn yfir höfuð að fylgja verðbreytingum
verði það að sjálfsögðu að vera á báða
bóga.
Komin forsenda fyrir lækkun
„Yfirleitt eru fyrirtæki fljótari að hækka
verð heldur en lækka þó flestir drattist
nú til þess svona í lokin. Við sjáum það
munstur því miður ítrekað. En ég veit þó
um fyrirtæki sem miða við 2% sveiflur á
gengi evrunnar í báðar áttir. Ég vil minna
á það að við erum hér með lista sem
kallast verðhækkanir birgja frá því að
krónan veiktist, þá þurftu allir að hækka
verð mjög hratt. Að þeirra sögn þurfti að
hækka vegna aukins kostnaðar sem þeir
urðu fyrir, svo ef þeir eru að kaupa krón-
una á lægra verði núna til að kaupa vörur
úti þá er að sjálfsögðu komin forsenda
fyrir lækkun. Það verður að vera eitthvað
samhengi í hlutunum.“
Halla Harðardóttir
halla@frettatiminn.is
neytendamál myllan lækkar vöruverð
Fyrirtæki vanalega fljótari
að hækka verð en lækka
Myllan hefur lækkað vöruverð í kjölfar styrkingar krónunnar. Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna fagnar því að stór fyrirtæki að borð við Mylluna skuli lækka vöruverð.
Hann segir veikingu krónunnar vanalega skila sér mun hraðar í verðlagið en að sjálfsögðu verði
að vera samhengi í hlutunum.
Myllan hefur lækkað vöruverð í kjölfar styrkingar krónu gagnvart evru. Þegar Myllan lækkaði vöruverð í febrúar kostaði ein
evra 150,7 íslenskar krónur. Á hádegi á fimmtudag í síðustu viku var gengi hennar komið niður í 142,92 krónur. Það jafngildir
rétt rúmlega 5,1% lækkun á tímabilinu.
stjórnendur myll-
unnar segjast miða
verðbreytingar
hjá sér við 5%
sveiflur á gengi
evrunnar gagnvart
krónunni og hafa
frá því hausti 2013
breytt vöruverði í
samræmi við
það.
4 fréttir Helgin 9.-11. október 2015