Fréttatíminn - 09.10.2015, Page 16
S tærsti styrkleiki Heimis Hallgrímssonar er færni hans í mannlegum sam-
skiptum. Þetta kemur skýrt
fram í samtölum Fréttatímans
við fólk sem þekkir til hans.
„Í fyrsta lagi er hann bara
klár en hann er líka svo ljúfur
og góður. Hann er ótrúlega fær
í mannlegum samskiptum. Það
er alveg sama við hvern hann er
að tala – hvort sem það er barn í
tannlæknastólnum eða á blaða-
mannafundi fyrir stóran lands-
leik. Hann ber virðingu fyrir
öllum og kann þetta,“ segir
einn viðmælenda Fréttatímans.
Heimir þykir afar metnaðar-
fullur þegar kemur að knatt-
spyrnuþjálfun. Hann er sagður
hafa dúxað á A-prófinu hjá
UEFA fyrir tæpum áratug og
er einn fárra íslenskra þjálf-
ara sem hafa lokið UEFA Pro
gráðunni.
Uppgangur hans í þjálfara-
starfinu hefur enda verið eftir-
tektarverður síðasta áratug. Á
þeim tíma hefur hann farið frá
því að þjálfa kvennalið ÍBV í að
fara að stjórna landsliði á EM.
Í starfi sínu hjá landsliðinu
þykir hann bæði flottur í leik-
greiningu og einstaklega fær
í að koma leikmönnum í rétta
gírinn fyrir leiki.
„Hann treður þessu inn í
Fjárbóndinn sem fór með
Ísland á EM í Frakklandi
Íslenska landsliðið í
knattspyrnu karla mætir
Lettlandi á Laugardals-
velli á morgun. Liðið
hefur þegar tryggt
sér þátttökurétt á EM
í Frakklandi næsta
sumar. Ný kynslóð leik-
manna hefur náð áður
óþekktum hæðum fyrir
okkur og að baki þeim
er traust þjálfarateymi. Í
brúnni hefur staðið hinn
sigldi Lars Lagerbäck
en við hlið hans stendur
Eyjapeyinn Heimir Hall-
grímsson. Við kynntum
okkur þennan brosmilda
og geðþekka mann.
hausinn á þeim og hver leikmað-
ur veit nákvæmlega hvað hann
á að gera,“ sagði einn viðmæl-
enda.
Þá ná þeir Lars Lagerbäck vel
saman og sá sænski sá ekkert
því til fyrirstöðu að deila sviðinu
með Heimi eftir tveggja ára
samstarf þeirra.
Utan vinnunnar er Heimir
mjög heimakær og rækir sitt
fólk vel. Sem dæmi um það
byrjaði hann með þá hefð þegar
hann þjálfaði ÍBV að mæta með
tertu á kaffistofu bræðra sinna
eftir sigurleiki. Þeirri hefð hefur
hann haldið við eftir að hann
fór að þjálfa landsliðið og hefur
mannskapurinn þar ekki liðið
skort, enda gengi landsliðsins
með afbrigðum gott.
Honum finnst gott að borða
góðan mat og var, að minnsta
kosti fyrr á tíð, bölvaður sæl-
gætisgrís sem er skondið í ljósi
starfans. Heimir hefur þá reglu
að brjóta upp tarnir hjá lands-
liðinu með því að skella sér í bíó
á kvöldin. Strákabíó, eins og það
heitir.
Ekki vita margir að Heimir
er fjárbóndi í Vestmannaeyjum.
Fjölskylda hans á veiðifélagið
Ystaklett þar sem lundi var
veiddur á árum áður. En eftir að
veiðin lagðist af var svo mikil
16 nærmynd Helgin 9.-11. október 2015
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755
flísar fyrir vandláta
PORCELANOSA
Göngugreining
Pantaðu
tíma
í síma
5173900
Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900
Vandamál sem göngugreining Flexor getur
hjálpað til við að leysa eru til dæmis:
• þreytuverkir og pirringur í fótum
• verkir í hnjám
• sársauki eða eymsli í hælum
(hælspori, „plantar fasciitis“ o.fl.)
• beinhimnubólga
• óþægindi eða verkir í baki
og/eða mjöðmum
• verkir í tábergi og/eða iljum
• hásinavandamál
• óþægindi í ökklum
• þreytu- og álagsverkir
hjá börnum og unglingum