Fréttatíminn - 09.10.2015, Síða 50
50 heilsutíminn Helgin 9.-11. október 2015
Fáanlegt í nær öllum apótekum landsins, Heilsuhúsið, Hagkaup,
Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður, Sportlíf, Heilsuver,
Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is og Heimkaup
Gullkryddið
Liðir - bólgur
CURCUMIN
Allt að 50 sinnum
áhrifameira
en hefðbundið
Túrmerik!
CURCUMIN (gullkryddið)
er virka innihaldsefnið í
Túrmerik rótinni og hefur
verið notað til lækninga
og til matargerðar í yfir
2000 ár í Asíu. Hátt í 3.000
rannsóknir hafa verið gerðar
á þessari undrarót undafarna
áratugi.
• Liðamót
• Bólgur
• Gigt
• Hjarta- og æðakerfi
MÓÐURÁST
Allt fyrir barn og móður.
Laugavegi 178
www.modurast.is
s - 564 14 51
Áttu við svefnvandamál að stríða?
Balsam kynnir: Magnolia frá Natural Health Labs er tilvalið fyrir þá sem vilja aðstoð við svefn-
vandamálum. Magnolita stuðlar einnig að heilbrigðum samfelldum svefni ásamt því að vinna
gegn þunglyndi, kvíða og depurð og bæta andlega og líkamlega líðan.
H rafnhildur Ólafsdóttir starf-aði við ferðaþjónustu árum saman og eyðir nú tíma
sínum við hjálparstarf hjá Rauða
Krossinum og í sjálfboðavinnu í
verslun Rauða Krossins.
Ekki sofið betur í mörg ár
Hrafnhildur hefur átt við
svefnvandamál að stríða
um árabil sem hún hefur
nýlega ráðið bót á. Hún
prófaði náttúrulega fæðu-
bótaefnið Magnolia og
segist ekki hafa sofið
betur í mörg ár. „Ég vil
alls ekki nota lyfseðils-
skyld svefnlyf og ákvað
því að prófa Magnolia.
Ég hef tekið tvö hylki á
kvöldin um klukkustund
fyrir svefn í nokkra mán-
uði og hef ekki sofið betur
í mörg ár. Mér finnst rosa-
lega gott að vita af því, það
gefur mér mikla öryggistil-
finningu.“
Ótrúlegt hvað góður svefn er
mikilvægur
Samkvæmt upplýsingum embætt-
is landlæknis getur svefnleysi sett
mikið álag og streitu á andlega og
líkamlega líðan og góður og sam-
felldur svefn er því nauðsynlegur
heilsunni. Hrafnhildur segir að
sér líði miklu betur í líkama og sál
eftir að hún byrjaði að nota Magn-
olia, hún sofi eins og barn og vakni
endurnærð. „Magnolia hjálpar mér
ekki einungis að sofna heldur stein-
sef ég alveg til morguns og vakna
hress og kát. Mér hefur ekki liðið
betur í langan tíma og mæli ein-
dregið með Magnolia
fyrir alla sem eiga erf-
itt með svefn. Það hefur
unnið kraftaverk fyrir
mig. Það er ótrúlegt
hvað góður svefn er
mikilvægur. Það er
svo miklu skemmti-
legra að vakna úthvíld
og í góðu skapi,“ segir
Hrafnhildur og hlær.
Náttúruleg lausn
við svefnvanda-
málum, kvíða og
þunglyndi
Börkur af plöntunni
Magnolia officinalis vex í fjalla-
héruðum Kína og hefur verið not-
aður við svefnvandamálum, kvíða
og þunglyndi í yfir 2000 ár í Asíu.
Rekja má ótrúlegan lækningamátt
hans til náttúrulegu efnanna Ho-
nokiol og Magnolol. Börkurinn
virkir taugaboðefni í heilanum
sem hafa slakandi og róandi áhrif
og stuðla að heilbrigðum og sam-
felldum svefni. Börkurinn vinnur
einnig gríðarlega vel gegn stressi,
kvíða og þunglyndi með því að
koma jafnvægi á hormónið Cortisol
sem er stundum kallað stress horm-
ónið. Nýleg rannsókn frá embætti
landlæknis sýnir að um þriðjungur
Íslendinga á við svefnvandamál eða
þunglyndi að stríða.
Unnið í samstarfi við
Balsam
Ráðlögð notkun: Taktu 1-2 hylki með
vatnsglasi með kvöldmat eða um
30-60 mínútum fyrir svefn. Dags-
skammtur er 1-2 grænmetishylki.
Magnolia hefur þegar notið mikilla
vinsælda og hjálpað fjölmörgum á
Íslandi. Sölustaðir: Öll betri apótek,
Heilsuhúsið, Heilsuver, Heilsutorgið
Blómaval, Lifandi markaður, Hag-
kaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið og
Heimkaup.
Hrafnhildur Ólafsdóttir mælir eindregið með Magnolia.
Krefjandi fyrir líkama og sál
Kolbrá Bragadóttir, mynd-
listarkona og jógakennari, er
meðal breiðs hóps kennara
sem sér um jógatíma í stöðv-
um World Class. Kolbrá segir
Hot Yoga henta fólki á öllum
aldri með alls konar líkama.
É g hef alltaf stundað einhverja hreyfingu og hef mikla hreyfiþörf og líður beinlínis
illa ef ég hreyfi mig ekki í lengri
tíma. Hins vegar er nauðsynlegt að
hvíla líkamann inn á milli því það
gerir hann sterkari,“ segir Kolbrá,
en jóga er eina líkamsræktin sem
hún stundar í dag. „Svo fer ég dag-
lega í göngutúra með óþekka hund-
inn minn sem er ágætis þolinmæð-
isæfing fyrir mig.“
Misheitt jóga
Jógadagskráin í World Class er
mjög metnaðarfull. „Kennararnir
eru frábærir og allir geta fundið
eitthvað við sitt hæfi. Tímarnir eru
opnir öllum korthöfum sem geta
valið úr mismunandi tegundum af
jóga. Fyrir utan Hot yoga má finna
Warm yoga sem hentar þeim sem
vilja ekki of mikinn hita, jóga fyr-
ir golfara og jóga fyrir hlaupara,
jóga og Hot Inversion yoga þar sem
farið er í hand- og höfuðstöður og
flóknari jafnvægisstöður en hægt
er að kenna í Hot yoga flæði,“ segir
Kolbrá. Tímarnir eru mis langir,
hægt er að velja um 60, 75 eða 90
mínútna tíma. Tímarnir eru ýmist
á morgnana, í hádeginu eða seinni-
part dags. World Class býður einn-
ig upp á námskeið með ýmsum teg-
undum af jóga.
Virðum líkamann okkar
„Það sem heillar mig mest við Hot
yoga er hvað það er krefjandi, ekki
bara líkamlega heldur andlega
líka. Það tekur á að vera inni í hit-
anum og rakanum að gera jóga-
æfingar og til að byrja með átti
ég í ástar-haturssambandi við Hot
yoga. Um miðbik hvers tíma lofaði
ég sjálfri mér að koma ekki aftur,
sem ég samt gerði vegna þess að
þessi 90 mínútna „þjáning“ gerði
allar hinar stundirnar í sólar-
hringnum svo miklu betri and-
lega og líkamlega,“ segir Kolbrá.
„Hot yoga hentar fólki á öllum aldri
með alls konar líkama og jafnvel
líkamlegar takmarkanir, hvort sem
er vegna meðfæddra takmarkana
eða meiðsla.“ Kolbrá segir þó að
Hot yoga henti best yfir þá sem
vilja laga líkamann og græða. „Það
eina sem þú þarft til að mæta í tíma
er að langa til þess og virða þann
líkama sem þú kemur með þann
daginn og leyfa honum að leiða þig
í gegnum flæðið. Ekki miða þig við
aðra í salnum heldur leyfa þeim að
vera þér innblástur og njóta.“ Allar
nánari upplýsingar um Hot yoga
og aðra yogatíma í World Class má
nálgast á www.wc.is.
Unnið í samstarfi við
World Class
Yogatímarnir
í World Class
eru fjölbreyttir
og krefjandi.
Hægt er að
velja á milli
mismunandi
tegunda
af yoga, á
morgnana, í
hádeginu og
seinni part
dags. Mynd/Hari.
Kolbrá Bragadóttir kennir Hot yoga í World Class. „Það sem heillar mig mest við Hot
yoga er hvað það er krefjandi, ekki bara líkamlega heldur andlega líka.“ Mynd/Saga Sig.