Skinfaxi - 01.08.2015, Side 11
SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands 11
Sæmundur Runólfsson
sæmdur gullmerki UMFÍ
Sæmundur Runólfsson var sæmdur gullmerki UMFÍ á sambands-þinginu í Vík í Mýrdal, en hann lét af störfum sem framkvæmda-
stjóri UMFÍ 30. apríl sl. eftir ríflega 23 ára starf.
Sæmundur hóf störf sem framkvæmdastjóri UMFÍ 1. janúar 1992.
Hann hafði áður setið í stjórn UMFÍ 1985–1991 og verið fram-
kvæmdastjóri Landsmóts UMFÍ í Mosfellsbæ árið 1990. Hann var
einnig formaður Umf. Drangs í Vík 1977–1983. Sæmundur hefur
gegnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir ungmennafélagshreyfing-
una. Hann sat m.a. í stjórn Íslenskra getrauna 1992–2009, íþrótta-
nefnd ríkisins 1992–2004 og í stjórn ISCA 1999–2011.
Kristín Gunnarsdóttir UMSB
var valin matmaður þingsins
Sæmundur Runólfsson ásamt Helgu Guðrúnu Guðjónsdóttur,
fráfarandi formanni UMFÍ.
Valdimar Leó Friðriksson UMSK afhendir Kristínu Gunnarsdóttur UMSB askinn góða sem mat-
maður þingsins fær til varðveislu í tvö ár.
Áralöng hefð er fyrir því á sambandsþing-um UMFÍ að velja matmann þingsins.
Að þessu sinni var það Kristín Gunnarsdóttir,
einn af þingfulltrúum Ungmennasambands
Borgarfjarðar, sem varð þess heiðurs aðnjót-
andi að vera valin matmaður þingsins. Kristín
tók við viðurkenningunni sem er forkunnar-
fagur og glæsilega útskorinn askur. Valdimar
Leó Friðriksson, matmaður þingsins 2013,
afhenti Kristínu askinn sem HSK gaf á sínum
tíma. Kristín tók strax við hlutverki matmanns
og kallaði starfsfólk eldhússins fram og fékk
það dúndrandi lófaklapp fyrir frammistöðu
helgarinnar.
Svipmyndir frá 49. sambandsþingi UMFÍ 2015