Skinfaxi - 01.08.2015, Síða 28
28 SKINFAXI tímarit Ungmennafélags Íslands
U ngmennasamband Eyja-fjarðar var stofnað 8. apríl 1922 á Akureyri. Fyrstu stjórn sambandsins skip-uðu þeir Jón Sigurðsson frá Dagverðareyri sem var forseti, Kristján Karlsson
bankafulltrúi, ritari, og Jóhannes Jónasson
verslunarmaður, féhirðir. Jón lét af störfum
sem forseti á þinginu 1924 og var þá Þor-
steinn Þorsteinsson kosinn forseti og gegndi
því starfi til 1929 en þá var Jóhann
Frímann kosinn forseti. Kristján
Karlsson lét af ritarastörfum á
þingi 1923 og ári síðar var hann
kjörinn í sambandsstjórn UMFÍ,
og hafði hann það starf á hendi í
tvö kjörtímabil, eða til 1930.
Þetta kemur fram í afmælisriti
UMSE sem gefið var út á 40 ára
afmælinu 1962. Héraðsmót voru hald-
in á hverju ári og ennfremur lögðu menn
kapp á skógrækt svo að eitthvað sé nefnt.
Stefnir í 14 aðildarfélög
Aðildarfélög UMSE eru 12 talsins auk
þess sem tvö félög til viðbótar eru með
bráðabirgðaaðild og eru í formlegu ferli um
inngöngu í sambandið. Þau koma úr fimm
sveitarfélögum. Ýmiskonar starfsemi fer fram
í félögunum. Sex þeirra eru ungmennafélög
og eru þau einnig fjölgreinafélög. Hin sex
eru sérgreinafélög, þar af þrjú hestamanna-
félög, golfklúbbur, skíðafélag, sundfélag,
blakfélag og klifurfélag.
Innan aðildarfélaganna
eru stundaðar eftirtaldar
íþróttagreinar: Badmin-
ton, blak, fimleikar, frjáls-
íþróttir, golf, hestaíþróttir,
knattspyrna, skíði (alpa-
greinar), skák, sund, klifur
og borðtennis. Formaður
UMSE nú er Bjarnveig
Ingvadóttir og framkvæmda-
stjóri Þorsteinn Marinósson.
Sambandið gegnir veigamiklu
hlutverki á þessu svæði
Félög sem standa sig
vel á landsvísu
,,Félögin á svæðinu sjá svona að mestu leyti
um sig sjálf. Starfsemin er mismunandi en
hér á Dalvík og í kring getum við sagt að
sé heilmikil starfsemi. Við getum í því sam-
bandi nefnt knattspyrnu, golf, sund og skíði
og við höfum átt keppendur framarlega í
þessum greinum. Öldungablak hefur alltaf
verið vinsælt, hér er öflugt hestamannafélag
og svo er líka haldið úti æfingum í frjálsum
íþróttum. Öll þessi félög standa sig vel
miðað við stærð á landsvísu. Samherjar inni í
Eyjafjarðarsveit halda vel utan um starfið hjá
sér,“ sagði Bjarnveig Ingvadóttir, formaður
Ungmennasambands Eyjafjarðar, í spjalli við
Skinfaxa.
Bjarnveig sagði að þegar á allt væri litið
stæði starfið með ágætum en aðstaðan í
sumum greinum mætti verða betri.
„Aðstaðan er ekki allt of góð en
skíðaaðstaðan er fín þannig lagað og alltaf
er verið að endurnýja eitthvað. Hestamenn
Bjarnveig Ingva-
dóttir, formaður
Ungmennasam-
bands Eyjafjarðar.