Dagrenning - 01.02.1951, Side 10

Dagrenning - 01.02.1951, Side 10
dætur yðar mun hann taka og láta þær búa til smyrsl, elda og baka. Og bestu lendur vðar, víngarða og olíugarða mun hann taka og gefa þjónum sínum, og af sáðlöndum j'ðar og víngörðum mun liann taka tíund og gefa bana geldingum sínum og þjónum sínum. Og þræla yðar og ambáttir og bina bestu uxa vðar og asna yðar mun hann taka og hafa til sinna verka. Af sauðfénaði yðar mun hann taka tíund’, en sjálfir munuð þér verða þræl- ar hans. Þá munuð þér brópa undan konungi yðar ,er þér hafið kjörið yður, en þá mun Drottinn ekki svara yður.“ En fólkið vildi ekki hlýða fortölum Samú- els og sagði: Nei, konungur skal yfir oss vera.“ — Drottinn sagði þá við Samúel: „Lát þú að orðum þeirra og set yfir þá konung.“ — # Þessi tímamót í lífi ísraelsþjóðarinnar eru ekki ósvipuð þeim aldaskiptum, sem vér nú bfum. Lýðræðisskipulagið, í því formi, sem það hefur verið til þessa, befur sýnt flesta sömu ágallana sem fram komu í lýðræðis- kerfi dómaratímabilsins, og þjóðir heimsins virðast nú stefna vitandi vits að nýrri teg- und konungsstjórnar, skefjalausu einræði. Margar þeirra hafa þegar kallað einræðið yfir sig og hinar eru undantekningarlítið á sömu leið, þótt þær fari misjafnlega hratt. Hin látlausa flokkabarátta meðal lýðræð- isþjóðanna veldur þar slíkri spillingu og rotn- un, að hrun skipulags þeirra er óumflýjanlegt fyrr eða síðar, og þá bíður einræðið færis, að taka harðstjórnarvöldin í sínar hendur, en áður hefur það, leynt eða Ijóst, eflt flokk eða flokka, sem tilbúnir eru að taka við stjóm- artaumunum þegar stundin er komin. Og það er ekki vegna þess, að almenningur og hinir skammsýnu flokkaleiðtogar, viti það ekki mæta vel, hvað hið væntanlega einræð- isskipulag muni færa þeim, að haldið er áfram lengra og lengra á þeirri braut heldur af því, að illgimi og flokksofstæki útilokar alla skyn- samlega lausn vandamála. Kröfur einræðis- herra nútímans eru nákvæmlega hinar sömu nú og þær, sem Samúel lýsti fyrir ísraelslýð forðum, ef þær eru þá ekki enn harðari. # En hliðstæða nútímans við lok dómara- tímabilsins er mjög greinileg einnig að öðru leyti. Það er sem sé eins nú, eins og þá, að „orð frá Drottni er sjaldgæft, og vitranir fá- tíðar.“ Það, að andlegir eða veraldlegir leið- togar lýðsins fái „vitranir" nú, eins og áður átti sér stað, kemur ekki lengur fyrir, enda mundi enginn þora að segja frá því, þó Drott- inn vitrist honum, af bláberri hræðslu við „misjafna blaðadóma“, eða af hræðslu við að verða hafður að háði og spotti, ef liann léti nokkurn mann vita slíkt. En alvitur Guð hefur komið því þannig fvrir af vísdómi sínum, að hvorki andlegir né veraldlegir leiðtogar lýðsins þurfa beinlínis að taka áhættuna af því, að Drottinn vitrist þeim. Hann hefur skilið þeim og öðrum eftir orð sitt — Heilaga ritningu — þar sem sagt er frá hverri vitraninni annari merkilegri og hverjum spádómnum öðrum öruggri, til þess að færa kynslóðunum heim sanninn um til- veru Guðs, kærleika hans og umburðarlyndi. Þangað — í Guðs heilögu bók — Biblíuna — getum vér sótt vitranir, og þar er að finna hvern þann fróðleik, sem mannkyninu er nauðsynlegur til þess að það geti gengið á Guðs vegum. Þar er og að finna forskriftir um það, sem varast skal að gera, ef vér viljum að oss farnist vel. Þar er að finna stjórnarskrá framtíðarríkisins. Og síðast en ekki síst er þar að finna spádóma, sem „þjónar Guðs“ — spámennirnir — hafa eftirlátið oss. Og hver heilvita maður getur sagt sér það sjálfur, að ekki mundu þessir spádómar hafa verið gefnir mannkyninu og geymdir og varðveittir í þús- undir ára, með slíkri nákvæmni og raun ber vitni,ef þeir væru bláber hindurvitni,eða sam- safn óskiljanlegra orða og setninga, eða ein- 4 DAGRENNING

x

Dagrenning

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.