Dagrenning - 01.02.1951, Síða 11

Dagrenning - 01.02.1951, Síða 11
göngu bundnir við tíma spámannanna, sem þeir eru komnir frá. Ég veit ekki allskostar hvernig því er var- ið með öðrum þjóðum, en hér hjá oss er það nú svo, að það er hrein undantekning ef vart verður var við mann, sem nokkurn trún- að leggur á spádóma Biblíunnar. Þetta er því merkilegra sem spádómarnir eru einmitt sterkasta og öruggasta sönnunin fyrir tilveru almáttugs, alvalds og óskeikuls Guðs. Spá- dómarnir eru gefnir oss til þess að vér skulum trúa á Guð, og eðlileg afleiðing af því, ef menn hætta að trúa spádómunum, eða sneiða hjá þeim, verður sú, að menn hætta einnig að frúa á Guð. Ef nokkuð af ritum Biblíunnar er Guðs orð í bókstaflegri merkingu, þá eru það spádómarnir. Þeir eru beinlínis, þannig til orðnir, að spámaðurinn „hevrði" eða „sá“ hvað „verða mundi“. Guðs orð „kom til hans“, eða „orð kom frá Drottni", eins og það þráfaldlega er orðað í Biblíunni. Og Guð hafði alveg sérstakan tilgang með spádómunum. Tilgangurinn var sá, að sann- færa ísraelsmenn, þá þjóð, sem hann hafði valið sér til þjónustu hér á jörðinni, um það tvennt, að Drottin væri til og að hann væri sá, sem hann sagðist vera. Enginn hefur und- irstrikað betur þýðingu og gildi spádómanna en Frelsarinn — Jesús Kristur. Hvað eftir annað sagði hann lærisveinum sínum fyrir ýmislegt, sumt jafnvel næsta hversdagslegt en annað harla ótrúlegt, í þeim tilgangi, að þeir skyldu trúa því, sem honum var aðal- triðið, að þeir tryðu, að hann væri sá, sem hann sagðist vera Guðs sonur og FreJsarisynd- ugra manna. Hvað eftir annað vitnar hann til ýmsra spámanna og tekur upp orð þeirra. Og eitt hið síðasta, sem guðspjöllin segja um hann er, að hann hafi sagt við lærisveinana: „Þetta eru þau orð mín, sem ég talaði við yð- ur, meðan ég enn var með yður, að rætast ætti allt það, sem ritað er í lögmáli Móse og spámönnunum og sálmunum um mig.“ Vér, sem teljum oss kristna menn, og kennum oss þannig til nafns Krists, þó ekki sé þar ef til vill meiru til að dreifa en nafn- inu einu, getum ekki komist hjá því að gefa gaum þessari afstöðu Jesú. Hann er sannfærð- ur um það, að allt, sem um hann er ritað í lögmáli Móse, spámannaritunum og sálm- unum, á að rætast. Og ef vér förum í gegnum þessi rit er hægðarleikur að bqnda á fjölda spádóma og fyrirsagna þar, er snerta Krist komu hans og starf, sem hafa þegar rættst. En það er einnig margt í þessum sömu spá- dómsbókum, sem enn heíur ekki rættst. Mundu það þá vera falsspádómur? Það er engin ástæða til að ætla slíkt, því eins og spámaðurinn gat séð þúsund ár fram í tím- ann með hjálp Guðs, eins gat hann séð tvö þúsund ár eða þrjú þúsund ár eða enn lengra fram. Ef vér á annað borð viðurkennum það, að almáttugur Guð sé til, þá leiðir þar af einnig viðurkenning á mætti hans til þess að segja fyrir gang sögunnar um langa framtíð. Ef vér hins vegar höfnum spádómunum, teljum það aðeins tilraunir skarpskvgnra manna þess tímabils, er þeir lifðu á, til að hafa áhrif á samtíð sína, — sem sumir spá- dómar Gamla Testamentisins óneitanlega eru, — líður ekki á löngu þar til vér tökum að hafna ýmsu fleiru af því, sem sagt er í Heilagri ritningu. Mér er í minni ágæt ritgerð eftir amerísk- an prest og doktor í guðfræði, sem ég las fyrir nokkru og sem fjallaði um sannleiksgildi Biblíunnar. Honum fórust orð á þessa leið: Ef þú rífur úr Biblíunni þinni blöðin með sköpunarsögunni, ættartölunum, sem taldar eru rangar, og frásögnunum af fyrirbærun- um, sem menn telja nú hugarburð og æf- intýri, svo sem Nóaflóði. Ef þú hafn- ar Móse-lögmáli og telur það týnt saman úr ýmsum eldri heiðnum heimildum. Ef þú telur, að sagan um ættkvíslir ísraels sé rneiri eða minni tilbúningur og þjóðsögur, sem lítið DAGRENNING

x

Dagrenning

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.