Dagrenning - 01.02.1951, Blaðsíða 14

Dagrenning - 01.02.1951, Blaðsíða 14
Kristur hafi gert ráð fyrir því að saman mundi fara eyðilegging musterisins í Jerúsalem og „endir veraldar“, en svo er endalokatíminn kallaður í Mattheusarguðspjalli. Þetta er sennilega byggt á því, að í Lúkasarguð- spjalli er frásögnin samfelld af þess- unr tveimur spádómum. Hins vegar er það mjög greinilegt í Mattheusarguð- spjalli, að þessir spádómar eru tveir og alveg aðgreindir. Tuttugasti og fjórði kapítuli Matt- heusarguðspjalls hefst á spádómnum um eyði- leggingu musterisins, og er augljóst, að þann spádóm hefur Kristur birt lærisveinunum, annað hvort í musterinu eða á leiðinni að því eða frá. Spádómur lrans um „endi veraldar“ byrjar fyrst í 3. versi og þar er tekið fram, að þá voru þeir, Kristur og lærisveinarnir, stadd- ir á Olíufjallinu. Spádómarnir um eyðingu musterisins og „endalokin“ eru því tveir alveg aðgreindir spádómar. Vér skulum nú líta á þennan merkilega spádóm og taka hann upp á þann veg ,að vér höfum í einni heild allt, sem sagt er í öllum þrem samstofna Guðspjöllunum, án þess að endurtaka það, sem sameiginlegt er í þeim. Auðvitað verður spádómurinn ekki settur fram þannig, án þess að umskrifa liann að verulegu leyti, en það breytir í engu efni hans. Kristur var staddur á Olíufjallinu. Þá gengu til hans þeir Pétur, Jakob, Jóhannes og And- rés og spyrja: Hvenær verða endalokin og hvert eða hver verða tákn þess, að þau séu í nánd? Hann svarar þeim á þessa leið: Táknin verða einkum þessi: 1. Þér munuð heyra um hemað og spyrja hernaðartíðindi. En hræðist ekki, þótt þér spyrjið slíkt, því að það er óhjá- kvæmilegur undanfari endalokanna, og þótt mikil hemaðarátök eigi sér stað, eru endalokin þá enn ekki kornin. 2. Þjóð mun rísa upp gegn þjóð og kon- ungsríki gegn konungsríki. Menn munu verða píndir, ofsóttir og kvaldir og hatrið manna í milli mun verða slíkt, að börn munu framselja foreldra sína, bræður og vinir munu svíkja hver annan og for- eldrar munu framselja börn sín. Margir munu verða líflátnir. 3. Miklir landskjálftar nrunu verða, hall- æri sumstaðar og drepsóttir, voðafyrir- burðir og nrargs konar tákn á himni, sólu, tungli og stjörnum. 4. Fram á sjónarsviðið munu koma menn, sem fólki verður kennt að líta á sem frelsara og endurlausnara mannkvnsins, en þeir eru aðeins falskristar, sem leiða menn afvega, þess vegna skuluð þið al- veg sérstaklega vara yður á þeim, þeir munu gera „tákn og undur“ fyrir fólkið, og það mun verða til þess að blinda fólkið enn meir og afvegaleiða það. 5. Lögmálsbrotin munu magnast og menn munu ekki hirða um hvað er rétt og hvað er rangt samkvæmt Guðs lögmáli. Sannleikann munu menn ekki hirða um, en margir munu leiddir verða í villu með táknum og undrum lýginnar. 6. Jerúsalem mun verða umkringd af her- fylkingum og hún mun verða eydd. Þá ættu þeir að flýja, sem búa í Júdeu (þ. e. í Palestínu), og sérstaklega ættu konur með böm að flýja þau landsvæði, því þar mun verða stórfelld neyð og óskap- legar þrengingar. Þessi eru, samkvæmt spádómi Krists, aðal- táknin um að „endalokin“ séu í nánd, en þau eru samt „enn ekki komin,“ þó þessi tákn séu sýnileg orðin. En þegar þjóðir heimsins sjá þessa atburði gerast, alla saman á skömm- um tíma, þá eiga þær að vita, að „tíminn er í nánd“ — aldaskiptin standa þá fyrir dyrum. Og nú vil ég spyrja: 8 DAGRENNING

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.