Dagrenning - 01.02.1951, Blaðsíða 19

Dagrenning - 01.02.1951, Blaðsíða 19
„Og ef Drottinn hefði eigi stytt þá daga, kæmist enginn maður af, en sakir hinna út- völdu, er hann hefui útvalið, hefur hann stytt dagana.“ Þessi orð eru lögð Kristi í nmnn, og Biblí- an þekkir enga aðra, sem Drottinn Abrahams, ísaks og Jakobs hefur útvalið, en ísraelsmenn. Þeir munu því korna fram á sjónarsviðið á síðustu árum hinna miklu þrenginga, og eiga hlut að því, að heimurinn ferst ekki gjörsam- lega í hinum væntanlegu Ragnarökum kom- andi styrjaldar. Og þeir ísraelsmenn verða ekki nein um- komulítil smáþjóð heldur stórþjóð eða þjóða- samband, sem mun geta látið til sín taka svo um munar. * Að lokurn skulum vér svo reyna að gera oss grein fyrir því, hvað bæði Kristur og spámennirnir eiga við, þegar þeir tala um hina „síðustu daga“, „daga endalokanna" eða „endir veraldar“. Það kemur langbest fram í Opinberunarbókinni, í spádómunum um „Hina dularfullu Babylon“ og „Ilina nýju Jerúsalem". „Dagar endalokanna“ tákna tví- mælalaust endalok ákveðins skipulags eða skipulagshátta, sem lengi hafa staðið. Adam Rutherford hefur í ágætri ritgerð um tímabilið frá 1914 til 1956 kornist að orði á þessa leið: „Hvers vegna skyldu þessar miklu þreng- ingar og eyðilegging eiga sér stað í lok núver- andi skipunar og vera undanfari hinnar nýju?“ Svarið er að finna í 2. kapítula Daníels- bókar, þar sem hin heiðnu stórveldi og ríkja- samstevpur síðustu tuttugu og fimm alda, eru táknuð með gríðarstórri mannsmynd úr málmi. Líkamshlutar hennar eru gerðir úr mismunandi málmum ,sem tákna eiga hin ýmsu stórveldi, er ríkja skyldu í heiminum, allt frá dögum Daníels til endalokanna. Höfuðið, sem er úr gulli, táknar veldi Baby- lonar á þeim tímum, og þau heimsveldi, sem á eftir fara eru í réttri tímaröð táknuð með ýmsurn málmurn. Hið síðasta í röðinni táknar árásarríki meginlands Evrópu í dag, sem ekki eru annað en sundurtættar leifar hins foma rómverska heimsveldis. Síðan er því lýst í spá- dómnum hvernig gríðarstór steinn, sem losaður er úr fjalli, án þess nokkur manns- hönd sé þar að verki, lendir á fóturn líkneskj- unnar og rnolar hana sundur svo að eftir verð- ur duft eitt, en steinninn verður að stóru fjalli, sem nær um alla jörð. Og skýring spá- dómsins er gefin í sama kapítula: Steininn táknar Guðriki, sem koma skal ,og sem gjör- eyðir fyrst hinum síngjörnu árásarríkjum, en leggur síðan undir sig allan heiminn og stend- ur að eilífu. Þess vegna eru hinir miklu erfið- leikar nauðsynlegir, að ekki er hægt að stofn- setja hið dásamlega ríki friðarkonungsins á jörðunni, fyrr en öll hin gamla skipan með alhi sinni. spillingu hefur verið gjörsamlega afmáð, en það getur ekki orðið nema með miklum þrengingum.“ Þessi lýsing Rutherfords er skýr og vafa- laust rétt. „Hinir siðustu dagar“ eru því ekki sá dómsdagur sem miðaldakirkjan boðaði, þar sem jörðin ferst með öllu sem á henni er, heldur lokastig og hrun þess heimsskipu- Jags, sem vér nú búum við, og skiptir þar engu hvort vér búum í hinum kapitalistiska, sósialistiska eða kommúnistiska heimi. Kommúnisminn er lokastig hinna baby- lonsku skipulagshátta, þar sem öllu því er út- rýmt, sem nefnt hefur verið frelsi, sjálfstjóm og mannúð, en komið er á í staðinn full- komlega vísindalegu þrælahaldi. — Það er álíka mikill misskilningur að halda að kommúnisminn sé byrjun nýrra skipu- lagshátta í heimi vorum eins og að halda að kvöldið sé morgun. í þeim Ragnarökum, sem nú standa yfir, líður allt hið gamla heimsskipulag undir lok — það tortímir sjálfu sér. DAGRENNING 15

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.