Dagrenning - 01.02.1951, Blaðsíða 23
Fljúgandi diskur.
þeirra, er Gerald Heard, sem skrifað hefir bókina: „Gátan um fljúgandi disk-
ana.“ Hann telur tvimcelalaust að um sé að ræða géimför frá öðrum jarð-
stjörnum.
/ greinum, sem skrifaðar hafa verið í ýms blöð og timarit vestanhafs, hefir
því verið haldið fram, að þessir „fljúgandi diskar“ hafi lent hér á jörðu og að
vart hafi orðið við lifandi verur, mjög smávaxnar, er vœru i þeim. Menn
hafa yfirleitt lagt litinn trúnað á sögusagnir þessar.
Fyrir nokkrum vikum barst Dagrenningu timarit þar sem sagt var frá þvi,
að i timaritinu „The Talk of the Times“, se.ru gefið er út i San Diego í Kali-
forniu, en ritstjóri þess heitir F. E. Rogers, hafi birst mynd af mannveru, sem
náðst hafi úr einum þessara „fljúgandi diska“ er skotinn var niður i Ariona-
riki i Bandaríltjunum. DAGRENNING hefir nú útvegað sér myndir þœr, sem
„The Talk of Times“ flutti og birtast þcer nú hér.
Myndunum fylgir svofelld frásögn:
„Hinn 25. mars 1950, kl. 9.45 að morgni náðist mynclin hér að
ofan af „ f 1 j ú g a n d i d i s k i “ nálægt Valley-minnismerkinu
(Monument Valley) í Arisona í Bandaríkjunum. Vikum saman hafa
amerískar flugvélar flogið á eftir þessum kynlegu og dularfullu hlutum.
DAGRENNING 17