Dagrenning - 01.02.1951, Blaðsíða 24

Dagrenning - 01.02.1951, Blaðsíða 24
Nokkrar myndir ha£a náðst, er sýna ljósgeislana frá „diskunum" eins og hvít bönd á næturhimninum. Hlutir þessir („diskarnir") geta skyndi- lega breytt um stefnu, til þess að forða sér undan eða víkja úr vegi fvrir flugtélum, sent reyna að kornast nálægt þeim. Þessi mynd var tekin af Flak. Sgt. D. Ussel úr 13. bandaríska flug- hernum (13th Airborn division). Fáum sekundum síðar hitti llugskeyti úr loftvarnabyssu (flak rockets) „diskinn", og sprengdi hann, en spreng- ingin líktist flugeldaregni, og um 20 sillurlit hylki féllu til jarðar.“ Síðan segir: „Þegar eitt þessara silfurhylkja var brotið náðist fyrsti „maðurinn frá Mars“. Sjónarvottur segir: „Ég varð gagntekinn af mikilvægi þessa augnabliks, en jafnframt var ég undrandi á örvinglan Jtessa „alumini- um rnanns". Líkami hans var Jtakinn gljáandi málmþynnum." Stjörnu- athugunarstöðin Phonix í Arisona telur líklegt að þær séu til verndar gegn hættulegum geimgeislum (cosrnic rays).“ Lengri er frásögnin ekki á þeim blöðum, scm fylgdu myndunum, en myndirnar voru þar endurprentaðar eftir „The Talk of the Times.“ Ef hér er eklti um falsmyndir að rœða er hér á ferðinni merkilegasti atburður, sem gerst hcfir í sögu mannkynsins svo langt aftur, sem vér höfum sögur af. En hvers vegna er þessa þá ekki getið i heimsblöðunum munu menn spyrja? Til þess kunna að liggja ýmsar ástœður. Geta þessar dvergverur lifað hér? Þcer skilja ekki okkar mál. Ráða þcer e. t. v. yfir einhverjum leyndarmálum sem vér þekkjum ekki og gcrtu orðið okkur hcettuleg? Hvernig má varðveita þessar dvergiierur svo þccr fái haldið lifi og ef til vill megi fra’ðast af þeim um það lwaðan þcer eru? Ef fólk almennt fengi vitneskju um verur þessar, og hvar þcer vceru niður- komnar gceti það hccglega orðið til þess, að þetta mikilvcegasta spor til sam- bands við aðra hnetti yrði algjörlega ónýtt. Þess vegna er það ekki óskiljanlegt, að opinber stjórnamöld i Randarikjunum, sem vafalaust hafa tekið málið i sinar hendur, þar sem það var lierinn sem skaut „diskinn“ niður, vilji ekki á þessu stigi láta neitt verulegt vitnast um málið fyrr en rannsóknum er lengra komið. Vér skulum rninnast þess, að þó ef til vill séu hingað komnir nokkrir „menn frá Mars“ eða einhverri annari jarðstjörnu, getum vér ekki af þeim frceðst fyrr en oss hefir tekist að halda i þeim lifinu, gera þá oss vinveitta, og fundið leið til að tala við þá með einhverjum hcetti. DAGRENNING hefir nú skrifað til Bandarikjanna til þess að afla sér enn betri sannana og meiri fróðleiks um þetta efni og vonar að hcegt verði i ncesta hefti að segja frekar frá þessu einstaka fyrirbceri eftir enn betri og ör- uggari lieimildum. J. G. 1S DAGRENNING

x

Dagrenning

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagrenning
https://timarit.is/publication/1118

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.