Morgunblaðið - 23.01.2015, Page 1
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Víglundur Þorsteinsson lögfræð-
ingur telur að stórfelld og marg-
vísleg lagabrot hafi verið framin
eftir að ákvörðunum Fjármálaeft-
irlitsins um stofnúrskurði nýju
bankanna í október 2008 var
breytt. Þannig hafi erlendir „hræ-
gammasjóðir“ hagnast um 300-400
milljarða króna á kostnað þjóðar-
innar, ekki síst fyrir atbeina Stein-
gríms J. Sigfússonar, þáverandi
fjármálaráðherra.
Víglundur
sendi seint í gær-
kvöld Einari K.
Guðfinnssyni,
forseta Alþingis,
og öllum þing-
mönnum bréf,
eigin greinargerð
og stofnúrskurði
Fjármálaeftirlits-
ins fyrir nýju
bankana, frá því í
október 2008, sem stofnaðir voru
með heimild í neyðarlögunum í októ-
ber 2008. Stofnúrskurðir FME hafa
ekki áður verið birtir opinberlega.
Í bréfi sínu til forseta Alþingis
segir Víglundur m.a.: „Í greinar-
gerðinni leiði ég líkur að því að fram-
in hafi verið stórfelld brot á almenn-
um hegningarlögum, stjórnsýslu-
lögum, lögum um fjármálafyrirtæki,
lögum um fjármálaeftirlit og ef til
vill fleiri lögum. Sýnist mér hugs-
anlegt að ólögmætur hagnaður
skilanefnda/slitastjórna af meintum
fjársvikum og auðgunarbrotum
kunni að nema á bilinu 300-400 millj-
örðum króna í bönkunum þremur.“
»18-19
Stórfelld svik og blekkingar
Sendi þingheimi stofnúrskurði FME um nýju bankana
Víglundur
Þorsteinsson
F Ö S T U D A G U R 2 3. J A N Ú A R 2 0 1 5
Stofnað 1913 19. tölublað 103. árgangur
HEFUR ÁHUGA Á
FJÖLBREYTILEIKA
MANNLÍFSINS
Á LEIÐ Á
ÁSTAFUND
Í KARÍBAHAFINU
HÖFUM ÞAÐ
ÞJÓÐLEGT
Á ÞORRA
SUÐURFERÐ HNÚFUBAKS 12 ÞORRABLÓTSIGGA ELLA LJÓSMYNDARI 10
Anna Lilja Þórisdóttir
Ingveldur Geirsdóttir
Íslendingar í
Noregi njóta
góðs af já-
kvæðum staðalmyndum um land og
þjóð. Þeim er tekið vel af Norð-
mönnum, öfugt við suma aðra hópa
innflytjenda sem mæta stundum for-
dómum og mismunun.
Þetta er meðal þess sem Guðbjört
Guðjónsdóttir, doktorsnemi í mann-
fræði, hefur orðið áskynja í rann-
sókn sinni á reynslu Íslendinga sem
hafa flutt til Noregs eftir hrun.
Í dag er áfram haldið með umfjöll-
un um flutninga Íslendinga til Nor-
egs, Danmerkur og Svíþjóðar á ár-
unum eftir bankahrun. Viðmæl-
endur Morgunblaðsins sem flutt
hafa til þessara þriggja landa segj-
ast fæstir upplifa sig sem innflytj-
endur. Flestir þeirra segja að
heimamenn líti öðrum augum á Ís-
lendinga en þá innflytjendur sem
komi lengra frá. »20-21
Íslending-
ar, ekki út-
lendingar
Danski seðla-
bankinn ákvað í
gær að lækka
innlánsvexti sína
um 0,15%, og eru
þeir nú mínus
0,35%. Ákvörð-
unin var tekin í
kjölfar ákvörð-
unar evrópska
seðlabankans
fyrr um daginn
um að kaupa skuldabréf á markaði
fyrir 60 milljarða evra, jafngildi um
9.200 milljarða króna. Hlutabréfa-
verð á evrópskum mörkuðum tók
kipp við tilkynninguna og gengi
evrunnar féll gagnvart dollar. »25
Bregðast við
skuldabréfakaupum
Evrópski seðla-
bankinn í Frankfurt.
Um 7% eru innflytj-
endur í Hafnarfirði
Um sjö prósent íbúa í Hafnarfirði
eru erlendir ríkisborgarar. Þrettán
prósent barna á leikskólum og tæp
tíu prósent í grunnskólum bæjarins
eru af erlendum uppruna. Þetta
kemur fram í lokaumfjöllun um
Hafnarfjörð í greinaflokknum
Heimsókn á höfuðborgarsvæðið í
blaðinu í dag. Rætt er við Edytu
Agnieszku Janikula sem annast
þjónustu við pólskumælandi fólk á
Bókasafni Hafnarfjarðar. Hún rek-
ur einnig lítið hreingerningar-
fyrirtæki með manni sínum.
Að auki er sagt frá uppbyggingu
á Völlunum og í Skarðshlíð, fjallað
um íþróttafélagið Hauka og for-
vitnast um löndun í Hafnarfjarðar-
höfn. »22
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Kaþólska kirkjan hyggur á byggingu tveggja
nýrra kirkna, það er á Selfossi og Reyðarfirði.
Einnig þarf að stækka Maríukirkjuna í Breið-
holti og Péturskirkjuna á Akureyri. Kaþólski
söfnuðurinn á Íslandi hefur þrefaldast á síð-
ustu tíu árum. Áætlað er að kaþólskir á Íslandi
séu nú um 13.000 talsins eða um 3,5% heildar-
mannfjöldans. Átján prestar og 31 nunna þjóna
söfnuðinum, að sögn Kaþólska kirkjublaðsins.
Pétur Bürcher Reykjavíkurbiskup hefur
keypt, helgað og blessað þrjár nýjar kirkjur
og tvær nýjar kapellur á sjö árum. Guðshús
kaþólskra eru alls 18 víða um land. Kirkjan
hefur einnig keypt nokkrar fasteignir og land-
spildur með stuðningi velunnara í Þýskalandi
og Sviss. Unnið er að því að koma á fót Mið-
stöð fyrir menntun og námskeið í Stykkis-
hólmi.
Benediktsmunkar frá Frakklandi eru hér á
landi í þeim tilgangi að kanna með stofnun
klausturs á Úlfljótsvatni. Munkarnir messuðu
ásamt prestum og biskupi á Úlfljótsvatni í
gær. Endanleg ákvörðun um stofnun klaust-
ursins verður tekin síðar.
Benediktsreglan er stærsta klausturreglan í
kaþólskum sið. Verði af stofnun klausturs á
Úlfljótsvatni verður það þriðja kaþólska
klaustrið hér á landi. Fyrir eru Karmelklaustr-
ið í Hafnarfirði, sem er nunnuklaustur, og
Kapúsínaklaustrið á Reyðarfirði, sem er
munkaklaustur.
Kaþólskum fjölgar ört
Stefnt að byggingu tveggja nýrra kirkna og stofnun klausturs á Úlfljótsvatni
MBenediktsmunkar kanna klausturstofnun »4
Veiði hefur verið með besta móti í mánuðinum
að sögn Júlíusar Sigurðssonar, skipstjóra á Dað-
ey GK 777. Skipið landaði vænum þorskafla í
Reykjavíkurhöfn í gær eftir vel heppnaðan túr á
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fínn fengur sóttur á Gróttuslóðir
Gróttuslóðir. Á myndinni má sjá Ólaf Sigurðs-
son, einn áhafnarmeðlima, vinna að löndun.