Morgunblaðið - 23.01.2015, Síða 2

Morgunblaðið - 23.01.2015, Síða 2
BAKSVIÐ Brynja Björg Halldórsdóttir brynja@mbl.is Katar er meðal þeirra landa þar sem MERS-veiran svokallaða hefur greinst í mönnum, þar á meðal í Doha, þar sem heimsmeistaramótið í handbolta stendur nú yfir. Um 200 Íslendingar eru staddir þar vegna keppninnar. Birgir Jóhannesson smit- sjúkdómalæknir, sem flutti erindi um málið á Læknadögum í gær, segir sjúkdómstilfelli í Katar ekki mörg, kannski um tíu talsins, og þau séu ekki nýleg. Smit séu ekki algeng á þessum árstíma, auk þess sem sjúk- dómurinn berist ekki auðveldlega á milli manna. ,,Sjúkdómurinn virðist ganga í bylgjum og sem betur fer virðist heimsmeistaramótið í handbolta í Katar vera haldið utan þeirra mánaða sem mestu bylgjurnar eru.“ Hann segir sjúkdóminn að öllum líkindum eiga uppruna sinna í leð- urblökum en kameldýr séu talin aðal- uppspretta sjúkdómsins í mönnum. ,,Talið er að kameldýrið sé millihýsill- inn sem leiðir til sýkingar í mönnum. Engu að síður er ekki mikil almenn smithætta á milli manna. Þeir sem smitast hafa flestir verið í nánum samskiptum við kameldýr, svo sem kamelhirðar.“ Hann segir ekki einhlítt að fólk þurfi að forðast kamelferðir á þessum slóðum en ferðamönnum sé ráðlagt að forðast þéttar kamelhjarðir, sér- staklega ef dýr líta út fyrir að vera veik. ,,Lönd á Arabíuskaganum vita af sýkingahættunni þannig að ferða- þjónustuaðilar þar eru vonandi farnir að fjarlægja úr hjörðunum dýr sem gætu verið veik.“ Morgunblaðið/Golli Katar Um 200 Íslendingar eru nú staddir í Doha vegna HM í handbolta. Katarfarar varist kamelkjöt og mjólk  Afar ólíklegt að MERS-veiran breiðist út á Vesturlöndum, segir sérfræðingur í smitsjúkdómum Þá séu ferðamenn varaðir við að drekka ógerilsneydda kamelmjólk og borða kamelkjöt sem ekki sé full- eldað. Mikilvægast sé þó að viðhafa almennar sýkingavarnir, þ.e. gæta að handþvotti. ,,Frá því að veiran kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2012 hefur henni vaxið ásmegin en útbreiðsla nýrra til- fella hefur að mestu leyti takmarkast við Arabíuskagann. Eins og gengur og gerist í alþjóðasamfélögum koma upp einstaka tilfelli vegna fólksflutn- inga en þetta eru allt innflutt tilfelli.“ Engar líkur á faraldri Aðspurður segir Birgir engar líkur á að sjúkdómurinn verði að farsótt á Vesturlöndum. ,,Séu sýkingavarnir í lagi er auðvelt að koma í veg fyrir út- breiðslu sjúkdómsins.“ Þá sé íslenska heilbrigðiskerfið vel í stakk búið til að takast á við MERS-tilfelli. „Sýkingavarnir á Íslandi eru al- mennt séð mjög góðar og innviðir kerfisins eru mjög góðir.“ Aðrir nýir smitsjúkdómar voru í brennidepli á Læknadögunum í gær, þar sem rætt var um lyme-sjúkdóm- inn, chikungunya-vírus, dangue- flensu og ebólu. MERS- veiran (e. Middle East respiratory syndrome coronavirus) lýsir sér sem skæð lungna- bólga og hefur nú greinst í 22 löndum. Hún kom fram á sjónarsviðið árið 2012, í Sádi-Arabíu, og hefur dregið tæplega 300 manns til dauða þar í landi. Uppspretta veirunnar er í leðurblökum en menn smitast aðallega í gegn- um kameldýr. Birtingarmynd sjúkdómsins getur verið hiti, hrollur, skjálfti og vöðvaverkir. Höfuðeinkennin eru þó hósti, mæði og blóðhósti ásamt meltingafæraeinkennum. MERS-VEIRAN Birgir Jóhann- esson læknir. Helst á Arabíuskaga 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. JANÚAR 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Samninganefnd Starfsgreinasam- bands Íslands kom saman til fundar í Karphúsinu í gær til að ganga frá kröfugerð í komandi kjaraviðræð- um. Björn Snæbjörnsson, formaður SGS, sagði við Morgunblaðið að af- loknum fundi að kröfugerðin yrði ekki kynnt opinberlega fyrr en eftir fund með samninganefnd Samtaka atvinnulífsins næstkomandi mánu- dag. „Þetta var mjög góður fundur og með þeim betri sem hafa verið í samninganefnd Starfsgreinasam- bandsins. Samstaðan og samheldnin var mikil og góð. Fundurinn gefur góðan tón fyrir það sem væntanlegt er í vetur. Við göngum bjartsýn til leiks um að gengið verði að okkar kröfum en erum jafnframt tilbúin í átök,“ segir Björn. Formenn 16 aðildarfélaga SGS sitja í samninganefnd en þrjú félög til viðbótar, Flóabandalagið svo- nefnda, ganga frá sinni kröfugerð seinna í mánuðinum. Skynjum hvað okkar fólk vill Í Morgunblaðinu í gær sagði Þor- steinn Víglundsson, framkvæmda- stjóri SA, það tímabært að forysta verkalýðshreyfingarinnar yrði ábyrgari í yfirlýsingum sínum. Sagði Þorsteinn enga innistæðu vera fyrir tuga prósenta launahækk- unum á vinnumarkaðnum. Um þessi ummæli Þorsteins segir Björn Snæbjörnsson: „Við skynjum vel hvað okkar fólk segir og hugsar. Við hlustum á okkar fólk og vitum hvað það vill. Því finnst hreinlega að það sé verið að halda láglaunafólki niðri á meðan aðrir fá að leika sér eins og þeir vilja. Samtök atvinnu- lífsins spila þar stóra rullu.“ Eins og fram kom í Morgun- blaðinu á miðvikudag er þungt hljóð í forystu verkalýðshreyfingarinnar. Áhersla er lögð á að hækka lægstu launin og miða lágmarkslaun við 300 þúsund krónur, sem er talið formlegt framfærsluviðmið. Krafa er uppi um að hækka skattleysis- mörkin samkvæmt heimildum blaðs- ins og leggja áherslu á krónutölu- hækkanir. Samninganefnd SGS gefur tóninn  Samstaða á fundi samninganefndar Starfsgreinasambandsins  Kröfugerðin upplýst eftir fund með Samtökum atvinnulífsins á mánudag  Göngum bjartsýn til leiks en tilbúin í átök, segir formaður SGS Morgunblaðið/Eggert Kjör Formenn 16 aðildarfélaga SGS á fundi samninganefndar í Karphúsinu í gær. Björn Snæbjörnsson, formaður SGS, er við enda fundarborðsins. Veður var hlýtt og milt á höfuð- borgarsvæðinu í gær og kjörið til útreiðartúra. Í dag hvessir við suð- ur- og vesturströndina en hægara verður norðaustanlands. Kólnar síðdegis. Hvasst framan af degi við suður- og vesturströndina Morgunblaðið/Árni Sæberg Aftur frost eftir skamma þíðu Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Hæstiréttur sýknaði í gær fjóra at- vinnubílstjóra, sem allir höfðu verið dæmdir í Héraðsdómi Norðurlands eystra til að greiða sekt vegna þess að bíll og eftirvagn þeirra höfðu ver- ið þyngri en umferðarlög leyfa. Niðurstaða Hæstaréttar var að vigtar, sem notaðar voru til að vega bílana, hefðu ekki verið löggiltar og ekki lægi fyrir að þær hefðu verið kvarðaðar með réttum hætti. Bílstjórarnir fjórir voru upphaf- lega dæmdir til að greiða 30-60 þús- und króna sekt en dómar voru kveðnir upp í héraði síðari hluta árs 2013. Í dómi Hæstaréttar segir, að í janúar 2013, eftir að málin voru dóm- tekin í héraði, hafi Neytendastofa sent bréf til Vegagerðarinnar þar sem vakin var athygli á því að Neyt- endastofu hefði borist ábending um ólöggiltar vogir hjá Vegagerðinni og var vísað til þess að mælitæki, sem notuð væru til lögboðinna mælinga og eftirlits, skyldu kvörðuð með rekjanlegum kvörðunum af faggilt- um aðilum. Óskaði Neytendastofa eftir því að öxulþungavogir sem Vegagerðin notar yrðu þegar í stað löggiltar hjá aðilum sem starfa í um- boði Neytendastofu og hafa heimild til að löggilda vogirnar. Fyrir Hæstarétt hafi verið lögð gögn þess efnis að búið sé að löggilda allar vog- ir umferðareftirlits. Ómótmælt sé hins vegar, að vogir þær sem mældu þunga umræddra bíla hafi ekki verið löggiltar. „Menn hafa verið sektaðir eftir þessum vogum frá því reglu- gerðin var kynnt árið 2009 til ársins 2013. Spurning er hvort ríkið þurfi ekki að endurgreiða þessar sektir?“ segir Guðmundur V. Gunnarsson, eigandi GV grafna, þar sem bílstjór- arnir fjórir starfa. Engin sekt vegna rangrar vigtar  Spyr hvort ríkið þurfi að endurgreiða

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.